Unga Ísland - 01.04.1941, Síða 9
Allir voru árla á fótum í Vindheim-
um. Það átti að reka snemma af stað.
Björn litli labbaði með norður að
lambhúsinu.
Hann vildi vera viðstaddur, er lagt
yrði af stað. Hann hleypti út lömb-
unum.
Svarta gimbrin hans kom fyrst, svo
hvert af öðru. Vissulega var hún með
fallegustu og stærstu lömbunum!
Björn stóð eins og dáleiddur.
Hann rankaði við sér, er faðir hans
lagði hönd sína á öxl honum:
— Jæja, drengur minn, vertu nú
ssell, sagði hann.
— Vertu sæll, svaraði Bjössi og
sneri sér við í áttina að lömbunum.
Faðir hans flýtti sér á bak Skjóna
sínum og gerði smell með svipunni.
— Af stað, sagði hann. Snati gelti
og svo lagði hópurinn af stað.
En allt í einu tók Litla-Svört við-
bragð og hljóp út úr hópnum. Sig-
hvatur ætlaði að komast fyrir hana,
en of seint. Hún var þegar komin yfir
girðinguna fyrir vestan. — Sighvatur
ætlaði sér að hlaupa á eftir henni, en
Jón hrópaði:
— Láttu hana bara eiga sig. Mig
munar ekkert um að fóðra hana í vet-
ur úr því svona fór. Bjössi á þá bara
tvær kindur næsta vor, ef þessi lifir.
Hann veifaði hendinni hlægjandi til
sonar síns.
Bjössi veifaði á móti.
— Ég ætla að skíra hana Ófeig, og
ég ætla sjálfur að gefa henni í vetur,
kallaði hann.
— Rétt drengur minn, anzaði faðir
hans og hvatti hest sinn á eftir hinum
dauðadæmdu lömbum, er runnu jarm-
andi norður göturnar.
En heima á lambhúsveggnum sat
Bjössi litli. Hann hló og horfði út á
mýrina, þar sem nokkrar kindur voru
á beit, og hugsaði með gleði um Ófeig
litlu, sem bjargaði lífi sínu á síðustu
stundu.
Góð barnabók
Af öllum barnabókum, er út komu
síðastliðið haust, mun óhætt að full-
y^’ða, að fáar eða engin hafi betur upp-
^yllt þá tvo höfuðkosti, að vera í senn
fi’óðleg og skemmtileg en bókin „Um
l°ftin blá“, eftir Sig. Thorlacius skóla-
stjóra.
Sigurður hefir áður gefið út barna-
bókina ,,Sumardagar“; hlaut sú bók
rniklar vinsældir unglinga og að verð-
LNGA ísland
leikum. „Sumardagar" er sagan um ær-
ina og lambið hennar, eitt íslenzkt sum-
ar inn á afréttinum. „Um loftin blá“ er
aftur á móti sagan um blikann og æð-
arkolluna, auk þess sem hún bregður
upp skýrri og ógleymanlegri mynd úr
lífi fuglanna yfirleitt, eitt daglangt
sumar og skuggalegan vetur, unz vorar
á ný. Unga ísland þorir fullkomlega að
mæla með þessari bók.
★
Myndin framan á kápu þessa heftis
er fengin að láni úr bókinni og heitir
þar „Tindilvængja við hreiðrið sitt“.
55