Unga Ísland - 01.04.1941, Síða 10

Unga Ísland - 01.04.1941, Síða 10
Sigurður Helgason: F rá meginlandinu myrka Þið hafið heyrt talað um Afríku, undralan.dið, sem stundum hefir verið kallað „meginlandið myrka“. Fékk álf- an þetta heiti sökum þess, að nokkuð þótti dragast, að menn fengju fulla vitneskju um lönd .hennar og náttúru þeirra, dýralíf, jurtir og þjóðflokka. En smám saman urðu hin ókunnu svæði smærri og smærri, og nú er fyrir löngu búið að rannsaka hana alla og mæla og leyndardómar meginlandsins myrka eru víst flestir horfnir úr sögunni og hættir að vera leyndardómar. En landkönnunarmennirnir, sem áð- ur fyrri lögðu leið sína til Afríku, urðu fyrir mörgum hindrunum á ferðum sín- um. Þjóðflokkarnir, sem búa þar, voru margir óvinveittir hvítum mönnum, og var ekki heiglum hent, að hætta sér langt inn í land þeirra. Torfærur urðu á leiðum þeirra, sem örðugt var að af- stýra, og fleira varð að farartálma. Ef þeir komu að norðan, varð eyðimörkin Sahara lítt sigrandi hindrun. Hún nær alla leið vestan frá Atlantshafi og aust- ur að Rauðahafi, yfir álfuna þvera, og 56 er mörg hundruð km. löng. Á ströndum álfunnar er lítið um góðar hafnir. Eru því siglingar þangað ekki neinn barna- leikur. Þær fáu hafnir, sem þar eru, eru flestar við árósa og sumar árnar eru stórar, en þær eru ekki skipgengar nema skammt inn í landið, því að upp frá ströndunum eru víða fjallgarðar, og lengra en að rótum þeirra, verður ekki siglt eftir ánum. Þegar yfir fjallgarð- ana kemur, taka við víðlendar háslétt- ur. Þar eru mörg stór vötn og vatns- mikil fljót og um þau er hægt að sigla UNGA ÍSLAND

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.