Unga Ísland - 01.04.1941, Qupperneq 17
Heilsan er fyrir öllu
Eitt af því nauðsynlegasta, sem
ungir menn iðka í frístundum eru í-
þróttir. Þær eru það þarfasta sem
nokkur maður iðkar heilsu sinni og
líkama til hreysti. Ef það væri aðalá-
hugamál hvers unglings að stunda í-
þróttir í æsku, mundu ábyggilega
vaxa upp fleiri og fjölhæfari íþrótta-
menn en enn sem komið er. Sumir
unglingar setja sér það takmark efst
í huga, þegar þeir byrja á að iðka
íþróttir, að setja síðar met á íþrótta-
ftiótum, en fyrst og fremst á ungling-
urinn að stunda þær sjálfum sér til
skemmtunar og hreysti, og svo koma
uietin á eftir, eftir því hvernig hann
er upplagður til þeirra hluta. Gagn-
legustu íþróttina tel ég vafalaust
sundið, og ætti hver unglingur að læra
sund í æsku, og hversu sviplegt er
bað ekki þegar menn drukkna upp við
landsteinana vegna þess, að þeir
kunna ekki þá fljótlærðu og einföldu
aðferð, að synda, en sem betui fer,
fer þeim alltaf fjölgandi sem læra
það. En nú eru til margar sveitir á
landinu, sem ekki eru til sundlaugar
h og verða því unglingarnir að fara
uð geta, að tölur þessar eru ekki nýjar,
teknar haustið 1938, svo sennilega hefir
síðar náðst betri árangur í hinum ýmsu
greinum fluglistarinnar.
H. B.
eitthvað úr sinni eigin sveit til að læra
sund, það kostar ekki nema eins
*
og mánaðai'tíma og þar af leiðahdi
litla peninga að læra það, svo _það
ætti að vera flestum foreldrum kleift
að kosta börn sín til sundnáms.
Þar sem strjálbýlt er í sveitum, er
erfitt fyrir piltana að koma saman á
vetrum til íþróttaæfinga, en það get-
ur hver og einn bæt.t úr þessu með því
að æfa sig í frístundum sínum á sumr-
in, og svo getur hann ef til vill haft
betra tækifæri seinna til íþróttaiðk-
ana.
Þið ungu piltar landsins, stundið í-
þróttir heilsu ykkar og líkama til
hreysti og styrktar. Allt ykkar iíf er
undir heilsunni komið og hún er fram-
ar öllu öðru.
Hjalti í. Jóhannssony
Skriðufelli, Þjórsárdal.
Ráðningar á nafnagátum
næst síðasta tölblaðs
1. Argentína.
2. Missisippi.
3. Stokkhólmur.
4. Tóledó.
5. Englaná.
6. Reykir í Hrútafirði.
7. Danmörk.
8. Akureyfi.
Mælifell.
Borgin er Amsterdam,
UNGA ísland
63