Unga Ísland - 01.05.1941, Page 10
Afríku-strútur.
Þau voru ellefu í hóp, móktu í grasinu
og stundu af hita. Gamalt karldýr lá
og velti sér um hrygg, þegar >við nálg-
uðumst hægt og hægt, og tókum stöð-
ugt myndir.
Ég hélt,\að þau myndu annað hvort
ráðast á oklcur eða flýja, en þau gerðu
hvorugt. Við staðnæmdumst fáein fót-
mál frá fallegu, gömlu ljóni. Það lyfti
höfðinu og horfði háðslega á okkur, eins
og það vildi segja: — Þið eruð skrítnir
fuglar, en það er allt of heitt til þess að
skoða ykkur betur og ég er þar að auki
ekki matarþurfi.
Allt í einu kom kvenljón út úr kjarr-
inu í grendinni, gekk til félaga sinna og
vakti þá hvern af öðrum, með því að
dangla glettnislega í þá með annarri
framlöppinni. Þau virtust verða hálf
gröm og líta á þetta sem óviðeigandi
frekju, en slógu þó ekki til hennar aftur.
Eitt þeirra reis á fætur og gekk burtu
hægt og virðulega, eins og það þyrfti
að ljúka mikilsverðu starfi. Ekki var
að sjá, að' það veitti okkur nokkra at-
hygli, þó er ég viss um, að ekkert ann-
að en við hefir komist að í huga þess.
Ljóninu er full alvara með allt, sem
það gerir. Þegar það er hungrað, fer
það beint þangað, sem veiði er að fá,
leitar uppi gíraffahóp eða sebradýr og
velur sér eitt dýrið að bráð. Það drep-
ur fljótt og hreinlega og étur strax
nægju sína. í bardaga er það hraust og
þolgott, og ekki vantar það hugrekki til
að mæta margföldu ofurefli. Það legg-
ur aldrei á flótta, eftir að á hólminn er
komið, hvernig sem á stendur, þó að
því sé bráður bani búinn og hæg leið til
undankomu. Það berst með hugprýði,
þangað til það fellur eða sigrar.
Hýenan er gerólík ljóninu. Hún er
laumuleg og full af undirferli, en bæði
huglaus og grinim, og viðbjóðsleg.
Stundum læðast þær að varnarlausum
geitum og bíta sundur hásinar eins
margra og þær geta. Þetta gera þær til
þess að hafa ánægjuna af að limlesta
þær og kvelja. Við vatnsbólið sjást þær
oft hryggbrjóta dýr, sem eru minni-
máttar og láta þau svo liggja og bíða
dauðans, sem miskunnar sig yfir þau
eftir miklar þjáningar. Oft liggur hún
í leyni inni í runnum og ræðst á ung-
viði, sem fer fram hjá. Þetta hefir hún
sér til skennntunar, en hún drepur ekki
af því, að hún sé soltin. Hún er í eðli
sínu huglaus og undirförull morðingi.
Ljón.
U N G A ÍSLAND
72'