Unga Ísland - 01.05.1941, Side 17

Unga Ísland - 01.05.1941, Side 17
Er sumarið kemur og sveittir menn hamast við sláttinn, og svanirnir fljúga til heiðanna — frjálsir og glaðir Sveinn Knstinsson 15 ára: 0g sauðkindin hleypur svo sælleg um móa og traðir, en sólin, hún spinnur þó fegursta og dýrasta þáttinn. Þá er svo gaman að ganga upp um hæðir og móa; glitrandi sólskinið blikar á jökulsins skalla, og þeir, sem að sjá það, þeir muna það æfina alla, C I ■ "X í þessu fyrstu minningar bernzkunnar gróa. oumarljóo Og loks þegar kvöldar og komandi skuggar þess læðast með kyrrlátum fjöllum, en sólin er gengin til viðar, og lítill einmana lækur í fjarlægð niðar og ljúfustu söngvar af vörum hans titrandi fæðast. Þá göngum við heim því að nóttin hún nálgast óðum, og næturdísirnar sveima um fjallsins hnjúka, og skuggarnir kyrrir á hamrabeltunum húka Ó; heillandi sumarnótt ljómandi í kveldroðans glóðum. En fegurðin ríkir alla nóttina á enda þó að augu vor lokist og svefninn hann vefji mann örmum, en sælunnar glampi lifir í lokuðum hvörmum og lágnættisdraumar í sólaráttina benda. fagurt fordæmi Unga Islandi hefir borizt bréf frá nokkrum litlum drengjum í Vestmanna- eyjum, er hafa bu'ndizt félagssamtökum til hjálpar gömlu fólki. Bréfritararnir heita Emil Arason, Akurey og Einar Bjarnason, Stakkholti.. „Okkur langar svo til að geta gert eitthvað fyrir Rauða krossinn", segja þeir. Unga ísland þakkar þeim bréfið og framtakssemina, um leið og það óskar þeim til hamingju nieð starfið. Ritstjórn blaðsins hefir sýnt stjórn Rauða krossins bréf þeirra félaga. Lét hún í ljós aðdáun á áhuga drengjanna, og mun veita starfi þeirra verðuga athygli. UNGA ÍSLAND Felunafna vísur. Kvenmannsnöfn. Þ-r-ý, D-gr-n, —h-l-ur Þ-r-ei-, —rún, R-n-il-r —ný, -o-b-rg, S-r-ð-r -ól-e-g, —rún, B-y-h-d-r K a r 1 m a n n a n ö f n. V-gf-s, S—þ-r, V-gl-n-ur, —týr, Ó-k-r, Sig—gur, Sig—, —lld—, Hall—mur Hj—tý-, R-gn-, Guð—ur. Austri. 79

x

Unga Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.