Unga Ísland - 01.09.1941, Síða 3

Unga Ísland - 01.09.1941, Síða 3
UH6R 15LRHD XXXV/. ÁRQ. 7. HEFTÍ SEPT. 1941 IS L A N D Hvað finnst ykkur? Telpan he'r á myndunum, er sjáið þið hér samarl, Cr sjálfsagt ekkert falleg - en þctta er nú ég. Svona cr ég á vangann og svona er ég í framan. Þau segia, pabbi og mamma, að ég sé yndisleg. En það er ná af myndunum og sjálfri mér að segja, að einn sólskinsdag í júlí e'g brá mér út í garð. — Þið megið ekki hlœja og þið verðið að þegja um þessa litlu sögu, hve raunaleg hún varð. En þarna úti' í garðinum, sem ribsber vaxa í runna með rauðum litl'um berjum, sem tindra á hverri grein, já, þar eru margar freistingarnar fyrir litla munna. Ég fór svo ósköp gœtilega og helt, að ég vœri ein. Ég vildi ei taka mikið, ég mundi fullvel þetta, sem mamma sagði um daginn með alvarlegri raust: Þú mátt ei snerta berin á meðan þau eru að spretta, en máske fœrðu að tína þau í septcmber í haust. Og um það var ég grunlaus, að einhver „stœði á hleri", en ótrúlegt mér fannst, að það gœti verið synd að langa til að linupla sér aðeins einu beri, en einhver lá á gœgjum og tók svo þessa mynd. En þð að við að sögunni sennilega hlœjum, ég sjálf er oft að spyrja og velta fyrir mér, hvort það sé ekki Ijótara að liggja og vera á gœgjum en langa til að ná sér í pínulítið ber. Siefán Jónsson. 97

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.