Unga Ísland - 01.09.1941, Síða 11

Unga Ísland - 01.09.1941, Síða 11
Hann tók^á rás heimleiðis — ann fyri!r stiga upp til himnaríkis, sagði afi.* Er regnið hætti, fór hjörðin áftur á stjá, og yfirgaf skjól, sitt. Kindurnar hristu sig, kýrnar sleiktu kálfana sína, en kálfarnir og lömbin skulfu af kuldahrolli, því að loftið var svo svalt. Óveðrið var gengið hjá, og nú sáust bess lítil merki lengur í öðru en því, &ð sums staðar hafði grasið lagzt flatt tii jarðar og kofaþakið var allt úfið eins og stél á kalkúnhana/ Óttanum var einnig slotað í brjósti ■álbinas, nú dró hann andann létt- ara og bar glóhærðan hrokkinnkollinn hserra en áður. ~— Oh ! hrópaði hann og rómur hans Var fullur af gleði. — Oh! sagði bergmálið hinum meg- *n við vatnið. Afi fór úr frakkanum sínum og hristi hann og barði með svipuskaftinu sínu. Sólin var um það bil að setjast bak við fjöllin. Það var brátt kominn tími til að reka hjörðina heim. '— Nú skaltu fara heim, sagði afi Vlð Albinas, ég ætla að vera hérna stundarkorn enn, svo kem ég heim lna. Hvíldu þig nú rækilega, því að á UnGa ÍSLAND morgun verður þú látinn gæta hjarð- arinnar einn. Albinas lagði af stað heimleiðs yfir . hina litlu hæð, er skyggði á þorpið. Gatan var sleip og blaut, og rigning- arvatnið hafði safnast í smápolla og tjarnir hér og þar. Grösin og blómin tóku að rétta sig við á ný og lyftu regnvotum kollunum til himins. Nú var Albinas ekkert óttasleginn meir, nú var hann ekkert hræddur við þrum- urnar og regnið lengur, en iðraði þess sáran að hafa sagt afa sínum allt af létta. Það var auma vitleysan að hafa gloprað þessu út úr sér. Hann nam allt í einu staðar uppi á hæðinni, því nú var hann rétt komimn heim, og hrópaði: — Afi! — Hvað er það? — Pípan þín, afi. Það var ekki allt saman mér að kenna. Það var ekki ég einn, sem henti henni í tjörnina. Og það var heldur ekki ég einn, sem braut fótinn á gæsinni. Svo tók hann á rás heim, sem mest hann mátti. Forarpollarnir og bleytn götunnar slettust og spýttust út frá fótum hans. (Lar,sl. þýtt). S. J. 105

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.