Unga Ísland - 01.09.1941, Side 14
GUNNHILDARGERÐI
Saga sú, er hér fer á eftir, er gömui
þjóðsögn, sem að sennilega hefur gerzt
á landnámstíð, en eftir því, sem ég
veit bezt, þá held ég, að hún hafi
aldrei verið færð í letur, aðeins lifað
á vörum þjóðarinnar. — Sagan er á
þessa leið:
Það var einu sinni kona úti í Noregi,
sem hét Gunnhildur. Henni mun ekki
hafa liðið vel þar, því að hún lét búa
skip sitt og sigldi með því til íslands,
sem þá var nýfundið. Hún kom að
landi nálægt Unaósi. Mun hún hafa
lagt leið sína vestur yfir Lagarfljót
og numið land milli Jökulsár og Lag-
arfljóts, og byggði hún sér þar bæ, sem
hún nefndi eftir sér, og kállaði hann
Gunnhildargerði. Syni átti hún þrjá,
sem hafa verið á unga aldri, þegar hún
lagði af stað með þá í ferðina miklu.
Þeir hétu Galti, Geiri og Nefbjörn.
Líður nú fram, unz drengirnir eru
orðnir fullþroska. Þá vildu þeir fara
frá móður sinni og nema nýtt land. En
Gunnhildur unni sonum sínum heitt
og vildi að þeir yrðu kyrrir heima hjá
sér. Þess vegna gaf hún þeim sína
jörðina hverjum, úr sinni landareign.
Þeir byggðu nú sinn bæinn hver og
nefndu þeir bá eftir sér, t. d. lét Galti
sinn bæ heita Galtastaði, Nefbjörn
sinn Nefbjarnarstaði, en Geiri sinn
Geirastaði. Það var sumar eitt, að vör-
ur komu upp að Kolbeinstanga. Þeir
bræður fóru þangað og festu kaup á
vörum, en fengu þær geymdar þar
nyrðra þangað til um veturinn, að
snjó legði, en þá ætluðu þeir að senda
þræla sína eftir þeim.
Líður nú að þeim tíma, að þeir senda
þrælana af sjtað eftir vörunum. — Á
meðan þeir voru í ferðinni gættu
bærðurnir fjár síns, sem var margt. En
á milli bæjanna er ás, sem er góður til
beitar og heitir Tunguás og dregur
nafn sitt af því, að sitt hvorum megin
við hann rennur lækur; en á ás þessum
vildu þeir allir beita fá sínu. Deila
þessi smá harðnaði, unz þeir börðust
og lauk því svo, að Galti feldi bræður
sína, en að því loknu sprakk hann af
mæði. Atburður þessi spurðist víða, en
þegar móðir þeirra frétti það, þá fór
hún þangað, sem líkin voru, en þegar
hún sá þau, setti að henni grát mikinn
og urðu það æfiafdrif hennar, að hún
sprakk af harmi. Síðan voru þau öll
heygð þarna. Bræðurnir tveir Geiri,
Nefbjörn og Gunnhildur sunnan við
lækinn, sem rennur sunnan við Tungu-
ásinn, og síðan heitir Hauglækur, en
Galti norðan við hann. Sjást haug-
arnir enn þann dag í dag. En það er
frá þrælunum að segja, að á heimleið
fréttu þeir lát húsbænda sinna og fara
þeir nú að tala um það, að nú muni
þeir erfa þá, en þeim kom ekki saman
um, hvernig þeir skyldu skipta eign-
unum, svo að þeir börðust og drápu
hver annan og voru þeir þá staddir á
mel, er heitir Dysjarmelur og er hann
við Kaldá á Jökulsárhlíð.
Gunnhildargerði stendur undir hlíð
sem veit á móti suðri og er mjög hlý-
legt í kringum bænin minn, og finnst
mér að allt bendi til þess, að fyrsta
konan, sem hér bjó, hafi verið góð.
Margrét Jónsdóttir (12 ára),
Gunnhildárgerði.
UNGA ÍSLAND
108