Unga Ísland - 01.09.1941, Side 16
starfið allan veturinn. Fundur t. d.
tvisvar í mánuði. Á síðasta fundi, eða
við skólaslit væri svo gaman að at-
huga, hver árangurinn hefði orðið.
Að sjálfsögðu yrðu börnin að njóta
aðstoðar kennara sinna í þessu starfi;
yrði það áreiðanlegá auðfengið.
Hvernig lízt ykkur á að reyna
þetta?
Ég held, að með svona starfsemi
gætu þið gert meira fyrir móðurmálið
ykkar, en ykkur sjálf eða aðra grunar.
Og hversu lítið sem þokaði í rétta átt,
þá er það unnið afrek, sem þið búið
að síðar í lífinu, þegar þið sjálf berið
abyrgð á móðurmálinu — tungu
feðra ykkar og mæðra, — íslenzk-
unni.
Með kærri kveðju til ykkar allra.
Skúli Þorsteinsson•
Rithöfundurinn og
hundurinn hans.
Sú saga er sögð um hinn fræga
finnska rithöfund Zakharias Topelius,
að eitt sinn, er hann var á sjóferð
nokkurri, hafi hundur, sem hann átti,
fallið fyrir borð. Topelius bað skip-
stjórann að stöðva skipið.
— Það er ómögulegt, svaraði skip-
stjórinn, áætlun skipsins verður að
halda, og ég hefði aðeins leyfi til að
stöðva skipið, ef einhver af skipshöfn-
inni félli fyrir. borð. En vegna hunds
er það ómögulegt.
— Jæja, það er allt í lagi, svaraði
Topelius og í sama svip var hann
stokkinn fyrir borð á eftir hundinum.
Skipið staðnæmdist og manninum og
hundinum var bjargað. Þegar rithöf-
undurinn síðar var spurður, hversvegna
hann hefði hætt lífi sínu þannig, svai*
aði hann:
— Þessi hundur er sá tryggasti vin-
ur, sem ég hef átt og mundi fúslega
hætta lífi sínu vegna mín. Hversvegna
skyldi ég þá ekki gera það sama fyrir
hann?
Til lesendanna.
Ef þið getið svarað eftirfarandi
spurningum án þess áð leita að svar-
inu í síðasta tbl. Unga íslands, hafið
þið lesið blaðið af mikilli kostgæfni.
1) Hvað heitir ljóðabókin, er Guðni.
I. Kristjánsson gaf út 1938?
2) Hvernig stóð á því, að refurinn í
sögunni af íbúum heiðarinnar beið
ósigur fyrir svanahjónunum?
3) í hverskonar fylgsni flýr villigölt-
urinn í Afríku tíðast, er hættu ber
að?
4) Hvað getið þið nefnt sem dæmi um
félagslyndi fílanna?
5) Hvað hét aðal söguhetjan í sögu
Ól. Þ. Ingvarssonar ,,í skútanum“,
sem birtist í síðasta blaði?
6) Hvað hét kvæðið, eftir Siguvð
Draumland, sem einnig birtist í síð-
asta blaði?
Orð&ending.
Munið, að efni, sem ætlað er til birt-
ingar í blaðinu, er bezt að senda til
ritstjóranna, en allt, er við kemur af'
greiðslu blaðsins, kvartanir um van-
skil, áskriftabeiðnir og úrsagnir til af-
greiðslunnar. Minnist þess einnig, að
nú sem stendur fer kaupendum blaðs-
ins fjölgandi og er þó allt of lítið gert
að því að útbreiða það. Gerið ykkar
bezta í því efni.
110
UNGA ÍSLAND