Unga Ísland - 01.11.1941, Page 23

Unga Ísland - 01.11.1941, Page 23
— Ég var að skyggnast eftir kind- um, sagði hann. — En í stað þess fann ég ykkur. Svo sögðu drengirnir honum allt af létta, hvernig stæði á ferðum þeirra. — Jæja, drengir! Þið komið nú heim með mér og fáið einhverja hress- ingu, áður en ég fylgi ykkur heim, sagði hann svo. — Getum við ekki komizt heim strax? spurði Árni. Hann var farinn að verða óþolinmóður. — Nei, ég flyt ykkur heldur á bát fyrir nesið. Það er styttra. Drengirnir létu sér það vel lynda og fóru á bak hjá manninum, annar fyr- ir framan hann, en hinn fyrir aftan. Svo fetaði hesturinn sig með byrði sína niður skógivaxna fjallshlíðina umluktur grárri þoku á alla vegu . . . Drengirnir kunnu vel við þehnan uýja vin sinn og röbbuðu um alla óeima og geima. — Af hverju kemur þokan? spurði Árni. — Já, ef þú vissir það, sagði Sig- tryggur. -— Þú átt ekki að spyrja svona bjánalega, sagði Bjössi fullorðins- lega. — Þetta er ósköp eðlileg spurning, eftir þetta ævintýri, sagði Sigtryggur °g hló. Þú skalt lesa um það í bókun- uni litlí karl, bætti hann við. Allt eiga litlir drengir að lesa í bókunum. Það Vi*r víst betra að flýta sér að verða læs, eða svo fannst Árna. — Nú, erum við rétt komnir niðui á •lafnsléttu, sagði Sigtryggur, er þeir l^ræddu niður krákustiginn. — Jafnsléttu, hvað er það? spurði ^rni. — Það er sama og túnið heima; er bað jafnslétta? unga ísland — Já. Sigtryggur hló . . . En allt í einu var eins og hulu væri svipt frá augum þeirra. Það var þok- an, sem hvarf eins snögglega og hún kom. Þeir sáu bæ niður við sjóinn spöl- korn frá. — Þarna á ég heima, sagði Sig- tryggur. Drengirnir litu til baka. Fjallið var ennþá hulið í þokunni, nema neðstu hlíðarnar. — Við vorum heppnir, að þú skyldir finna okkur, sagði Bjössi. Sigtryggur brosti og klappaði honum á öxlina. — Þið eruð mestu dugnaðarpiltar, sagði hann . . . Er þeir riðu niður tröð- ina, er lá heim að bænum, sáu þeir tvo litla drengi á líku reki og þeir voru, út á bæjarhlaðinu. Þeir voru ósköp undr- andi er þeir sáu þessa ókunnu gesti.. — Komið þið sælir, sagði Sigtrygg- ur. — Sæll pabbi minn, önzuðu þeir, og tóku svo sprett inn í bæ . . . Fáum mín- útum síðar, þegar bóndi var að taka Árna af baki, kom húsfreyjan út með syni sína á hælum sér. Þau heilsuðu drengjunum. Konan átti bágt með að leyna undrun sinni. — Hvaðan komið þið? spurði hún. Drengirnir ætluðu að svara, en Sig- tryggur varð fyrri til: — Ég fann þá upp í fjalli . . . Sk.vldu það ekki vera útilegumannabörn . . . Þau hlógu öll. — Þið hafið verið í berjamó, sagði konan. — Já; við fundum mikið af berjum, sagði Árni. — Alveg fulla flösku, anzaði Bjössi og sýndi þeim. Svo gáfu þeir öllum ber í lófann. — Jæja, komið þið nú inn drengir 147

x

Unga Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.