Alþýðublaðið - 29.01.1924, Qupperneq 1
...... ■v.-.JhA-
. 'v
1924
Þriðjudaglnn 29. janúar.
23. töíubiað.
Erlend símskeyti.
V. M. F. Dagsbrðn.
Aöalfundur
félagsins varíur haldinn miðvikudaginn 30. þ. m. kl. 7V2 í I®n6.
Dagskrá samkvæmt lögum félagsins. — Félagar, fjöimennið!
Sýnið skirteici við innganginn! StjÓJ*nln.
Fulltrúaráðsfnndnr í kvöld kl. 8.
Khötn, 28. jan. FB.
Jarðarför Lenins.
Frá Moskva er símað- Útför
Lenins fór fraifl í gær(?), og var
hluttekningin, sem almenningur
lót í Ijós við athöfnina, fádæma-
mikil. Fyrir útförina streymdi fólk
fram hjá líkpallinum látlaust í 16
klukkustundir. Klukkan 4 kvað
við blástur allra eimp'pna í verkr
smiðjum og annars staðar um alt
Russland, og stóð blásturinn í þrjár
mínútur. Allar járnbrautarlestir,
sem á ferð voru, staðnæmdust i
sama mund og héldu kýrru fyrir
í 5 mínútur. Og frá öllum foft-
skeytástöðum í Rússiandi var send
út þessi orðsending: >Lenin er
dáinn. Verk hans lifa um aldur
og æfi.<
Sérfræðluganefndlrnar.
Samkvæmt símfregnum fráBer-
lín eru sérfræðinganefodir þær, sem
skaðabótanefnd bandamanna skip-
aði fyrir nokkru og komu saman í
París um síðustu helgi, komnar
til Berlínar sem gestir þýzku stjórn-
arinnar til þess að kynna sér
ástandið í Þýzkalandi af eigin
sjón.
Arás á yerkamannastjórnina
hrtzkn.
Frá Lundúnum er símað: Tölu-
vert kveður nú við annan tón í
sumum ensku blöðunum í garð
stjómarinnar en fyrstu dagana eftir
að hún tók við. Var þá farið ein-
tómum viðurkenningarorðum um
verkamannaráðuneytið og því til
dæmis hrósað íyrir það, hve vinnu-
samir ráðherrarnir væru; hefðu
þeir sýnt það með því meðal ann-
ars að lengja vinnutímann á
Btjórnarskrifstofunum, afnema þar
frítíma síðdegis á laugardögum og
því um likt.
í gær birtist í blaðinu >Sunday
Expresse, sem er málgagn Bea-
veibrooks lávarðar, heiftúðleg árás
á Ramsay MacDonald og ráðuneyti
hans. Er því haldið fram í grein-
inni, að MacDonald gleymi innan-
landsmáfum þeim, sem bráðastrar
úriausnar þurfi við, svo sem járn-
brautarverkfallinu, en só með all-
an hugann víð ráðstjórnar-Rúss-
Dnd og alþjóðasambandið. Segir
þar, að hann hafl sent Miss
Margrete Bondfield, sem er undir-
ráðherra í Btjórninni og viðurkend
sem einhver mikilhæfást.i sérfræð-
ÍDgur Breta í atvinnudeilumálum,
til Genf til þess að rökræða þar
heimsfriðar-skýjaborgir í alþjóða-
verkamálaskrifstofunni i stað þess
að hafa hana heima til þess ab
ráða fram úr vei kfallsmálunum.
Innlend tíBiaúi.
(Frá fréttastofanni).
Vestmannaeyjum 28. jan.
Ásigling var hér á höfninal f
nótt sem íeið og skemdist ©inn
b&tur tálsvert.
Tveir listar hafa komið íram
tli bæjarstjórnarkosningarinnar,
sem fram á að fára hér á fimtu-
daginn kemur, og aðrir tvelr tll
aukakosningar á einum fulltrúa,
sem kosinn verður til eics árs.
Fulltrúaefni við aðalkosninguna
eru frá >borgara<-flokki Jes Gísla-
son verziunarstjóri, Viggó Björns-
son bankástjóri og Sigfús Schev-
ing fátækrafulltrúi, en af hálfu
aiþýðuflokksins Halldór Jónsson
kennari, Þorbjörn Guðjónsson
útgerðarmaður og Guðmundur
Magnússon bátasmiður. Fulltrúa
efni við aukakosninguna til eins
árs eru Jón Hinriksson fram-
kvæmdastjóri af hálfu >borgara<-
flokksins, en Árni Gíslason fraro*
kvæmdastjóri frá Alþýðuflokkn-
um.
Siglufjarðarkaupstaður hefir af-
hent Byggingarsjóði Stúdenta-
garðsins fimm þúsund krónur að
gjöf gegn því, að eitt herbergi á
Stúdentagarðinum megi ávalt
vera heimkynni stúdents frá
Sigtufirði öðrum fremur. Er þetta
tyrsta gjöfin, Sem Stúdentagarð-
inum berst frá kaupstöðunum, og
hefir yngsti kaupstaður iandsins
orðið til þess að ríða myndar-
lega á vaðið hinum til eftir-
breytni.
Næturlæknir er t nótt Halldór
Hansen, Miðstr. 10. Sfmi 256.
Reyfejavíknrapótek hefir vörð
þessa viku,