Unga Ísland - 01.03.1944, Qupperneq 36

Unga Ísland - 01.03.1944, Qupperneq 36
lielzt var von grasa. Uppi á heiðiimi, inn með Gilsárjökli, sagði Steini gamli, að hefðu verið hinar mestu grasabreiður. Þangað var oft farið til grasa heiman úr dalnum. Þang- að var einnig lialdið núna. Við jökulræt- urnar settumst við niður, tókum upp mal- poka okkar og borðuðum. Sólin stafaði sín- um gullnu geislu'm niður á bláar jökul- bungurnar, sem glóðu eins og spegill í kyrr- um morgunblænum. Dagurinn leið. Það var lítill grasafcngur hjá okkur félögum. Þessir gömlu grasamenn sögðu, að- ^ílin gerði okkur illt, það væri ómögulegt að finna grös í þessum steikj- andi hita. Kvöldið var kyrrt og bjart eins og dag- urinn. Sólin var gengin til viðar, þegar við lögðum heim.af heiðinni. 1 tjaldinu neytt- um \ ið kvöldverðar. Að því búnu lögðumst við til svefns. Nóttin færðist yfir dalinn. Heiðarfuglarnir sungu sín dýrðlegu sumar- ljóð. Ain niðaði í þröngu gilinu, lækirnir hjöluðu, lindirnar brostu, og nóttin leið hægt og liægt, og hvarf svo loks í skaut sumarsins. Eftir langan, væran blund vaknaði ég. Ég hélt niðri í mér andanum og hlustaði. Hljóð var nóttin, sem ríkti fyrir utan dyrn- ar. Ég reis upp á olnboga og gægðist út. Það var kominn morgun, sólin gyllti vest- urhlíðar fjallanna niður í giljabotna. Jónsi. hafði vaknað við bröltið í mér. Hann kom nú lika út í gættina. — Það verður sólskin í dag, sagði hann. — Lítið grasaveður, anzaði ég, um leið og ég skreið aftur í flet mitt. — Hvernig er veðrið, strákar? spurði Steini gamli, sem nú var risinn upp við olnboga. — Alveg eins og í gær, svaraði ég glað- ur í bragði. — Það var svo sem auðvitað, af því að maður óskaði eftir vætu, sagði hann eins og hálf önugur yfir sólskininu. Snævi þakinn jökulskallinn glóði eins og silfur í.gullnuðu geislaflóði sólarinnar. End- urnar sungu á lygnu heiðarvatninu. Þær syntu aftur og fram, blökuðu vængjunum, buðu góðan dag, flugu síðan með kveðju frá heiðinni út i himingeiminn, yfir fjöllin blá. Við grasamennirnir sátum kringum litla mosaþúfu, í gróinni laut utarlega í heið- inni. — Við skulum reyna að herða okkur við grösin í dag, þó hcitt sé. Sagði Bjarni á llrauni. — Ætli við förum ekki lieim í kvöld, bætti pabbi við. — Heim í kvöld, hugsaði ég. Þetta var þá seinasti dagurinn, sem við vorum í þess- um nýja heimi. Við risum upp úr mjúk- um mosanum og löbbuðum inn heiðina, hver með sinn poka undir hendinni. Dagurinn leið fljótt til enda, eins og allir hinir sólskinsríku sumardagar. Við löbbuðum glaðir í bragði heim að tjaldinu. í kvöld ætluðum við heim. Heim frá lieið- inni. heim frá læknum svala og bláa heiðar- vatninu. Við lögðum reiðtýgin á hestana, lagfærðum allan okkar farangur í sem best- an búning fyrir burtförina, síðan felldum við tjaldið og þá var allt búið til heim- ferðar. Þegar við lögðum af stað, lék þýður aft- anblærinn um dalinn. Sólin var liætt að skína, hún var gengin til viðar, bak við fjöllin blá. Þannig liðu allir hinir dýrðlegu sumar- dagar, sem voru svo ríkir af sólskini og blíðu. Það var eins og hver þeirra hefði eitthvað nýtt að boða, en þeir hurfu jafn skyndilega og þeir komu, þeir lieilsuðu og kvöddu, flugu svo hljóðir á burt eins og draumur í skaut næturinnar. Júlíus D. Friðriksson. 58 UNGA ÍSLAND

x

Unga Ísland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.