Unga Ísland - 01.03.1944, Blaðsíða 38
SAGA ABRAHAMS Myndir eftir Dan Smith
Svo bar við, er Abraham og Tara faðir hans höfðu ásamt fólki sínu yfirgefið ættland sitt,
Úr í Kaideu, og dvöidu í Hasan, að Drottinn s'agði við Abraham: •— Far þú burt úr landi þínu og
frá ættfólki þínu og úr húsi föður þíns til landsins, sem ég mun vísa þér. Og ég mun gera þig
að mikilli þjóð. Þá lagði Abraham af stað með með Söru, konu sína, sem var óbyrja, og bróður-
son sinn Lot og alla fjárhluti, sem þeir höfðu eignazt. Og þeir héldu til Kanaanslands.
Og Drottinn sagði við Abraham: — Niðjum
þínum vil ég gefa þetta land. Og Abraham reisti
þar altari til dýrðar Drottni. Þaðan hélt hann
til fjallanna austur af Betel og enn reisti hann
altari og ákallaði drottinn. Síðan hélt hann
áfram suður eftir.
En sökum þess, að hallséri varð í landinu, fór
Abraham til Egiptalands með Söru konu sína.
En hann bað hana að látast vera systir hans,
því að hann óttaðist, að Egiptum þætti hún frið
sýnum og myndu þeir drepa hann, en færa
Faráó konungi Söru.
60
UNGA ISLAND