Unga Ísland - 01.03.1944, Blaðsíða 40
SAGA ABRAHAMS
En öll þau ár, sem Sara hafði verið kona Abrahams, og til þess tíma, er Faraó rak hana
burt úr Egiptalandi, vegna þess að Abraham hafði kallað hana systur sína, hafði hún ekkert
barn eignazt. En hún átti egipska ambátt, sem Hagar hét, og var hún mjög fögur. Sara kom
nú að máli við Abraham og bað hann taka til sín ambáttina svo að hún gæti orðið móðir barna
hans. Og Abraham hlýddi orðum Söru.
Og Sara gaf Hagar’ ambátt sína, manni sínum
fyrir konu, en er Hagar varð þess vör, að hún
myndi brátt verða móðir, fyrirleit hún húsmóð-
ur sína, vegna þess, að hún hafði aldrei getað
eignazt barn.
Þá varð Sara hrygg og sagði Abraham, að
Hagar fyrirliti sig, og Sara mælti: Drottinn
dæmi milli mín og þín. En Abraham svaraði:
Sjá, ambátt þín er á þínu valdi, gjör þú við
hana, sem þér gott þykir.
62
UNGA ISLAND