Unga Ísland - 01.07.1944, Blaðsíða 66
SAGAJAKOBS
Svo bar til, er ísak var gamall orðinn og augu hans döpur, svo að hann gat ekki séð, að hann kall-
aði fyrir sig eldri son sinn Esaú og mælti til hans: Sonur minn. Esaú svaraði: Sjá, hér er ég, og ísak
sagði: — Tak þú örvamæli þinn og boga og far þú á heiðar, veið mér villidýr og tilreið mér ljúffeng-
an rétt og fær mér hann, að ég megi éta, svo að ég veiti þér blessun mína áður en ég dey.
En Rebekka, móðir þeirra, sem unni Jakob um-
fram bróður hans, hafði heyrt hvað þeim fór á
milli og hún hélt njósnum um för Esaú, því að
hún bar umhyggju fyrir framtíð Jakobs og ósk-
aði, að hann næði blessun föður síns.
Þegar Esaú var á brott farinn kallaði Rebekka
á Jakob og sagði honum, hvað ísak hefði mælt,
og hún bað hann fara og færa sér tvö hafurkið,
svo að hún mætti framreiða Ijúffengan kjötrétt,
er Jakob síðan færði föður sínum.
152
UNGA ISLAND