Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1922, Qupperneq 156
ARSÞING.
121
framtíð félagsins meö framkomu yðar
hér gegn öllum flokkadrætti, sem er
hið eina er getur grandaö að fullu og
öllu félagslífi voru. Sundrung er oss
J>að, sem mistilteinninn var Baldri. —
Gerið, í því efni, hjörtu yðar hlutlaus
ríki friðarins. Þjónið þjóðrækninni
eins einlæglega sem óbreyttir liðsmenn.
Leyfið hinum heitu og helgu endur-
minningum um ísland, — ættjarðarást-
inni, að venma lífsstarf yðar, svo þar
gæti einkis kulda. Ef vér stjórnum
þannig sjálfum oss og samstarfi voru,
þurfum vér ekki að bera kvíðboga fyr-
ir andróðri annara manna.
Þá verður Þjóðræknisfélag fslend-
inga í Vesturheimi einhvern framtíðar-
dag svipað í augum bræðranna, er
fluttu feigðarspár viö fæðing þess, sem
Helga fagra varð síðar í föðuraugum
Þorsteins á Borg.
Varist einungis vig og deilur út af
Helgu.
p.t. Winnipeg Man., 2. febr. 1922.
Jóuas A. Sigurðsson.
Ritari gaf stutta skýrslu um fundar-
störf á árinu, sem fylgir:
Skýrsla ritara.
Ritari hefir, þvi miður, stutta og
mjög ómerkilega skýrslu að gefa á
þessu þingi. Hann hefir það eitt gjört,
sem nefndin hefir faiið honum, auk
þess að bóka fundargjörninga. En
nefndin hefir í heild sinni verið frem-
ur afkastalitil, að sumu leyti sjálfsagt
fyrir óhæga afstöðu forseta og að'
sumu leyti af því, að ritstjórn Tima-
ritsins var falin sérstökum ritstjóra,
svo verkiö hefir orðið ritara umfangs-
lítið.
Á árinu hafa alls verið haldnir 10
fundir. Stýrði forseti 5, en varafor-
set' 5) og var ritari staddur á þeim öll-
um, aö einum undanteknum, er honum
var boðaður tæpum hálftima fvrir
fundarbyrjun. Kom sá fundur félags-
málum lítið eða ekleert við og hefði eins
vel mátt vera óboðaður.
Fundirnir voru allir 'haldnir á skrif-
stofu Lögbergs nema einn, er var á
heimili ritara að 90Ó Banning St., og
annar að heimili A. P. Jóhannssonar á
Agnes stræti.
Það helzta, sem á fundunum hefir
gerst, hefir verið, að samþykkja nauð-
synlega reikninga til útborgunar, að
ráðstafa útbreiðslu útkomu og prent-
un /Timaritsins og að ráða tvo kennara
til umferðarkenslu barna og unglinga
hér í bænum, og veita fé til þess, sam-
kvæmt ráðstöfun síðasta þings.
Gísli Jónsson.
Féhirðir las upp fjárhagsskýrslu fé-
lagsins, og er hún birt á öðrum stað í
Timaritinu. Var hanni útbýtt prentaðri
meðal fundarmanna, og sömuleiðis
prentuð í heilu lagi í blöðunum. Ber
hún með sér, að fjáhagurinn er í góðu
ástandi, sem má þakka hinum ötula og
áhugasama féhirði félagsins.
Næst kom skýrsla f jármálaritara,
var hún að mestu samhljóða skýrslu fe-
hirðis í þeim liðum er að starfi þeirra
beggja laut.
Að síðustu lagði skjalavörður fram
skýrslu um sölu timaritsins. Nægir og
að visa til fjárhagsskýrslunnar í þvi
atriði.
Stuttar umræður urðu um skýrslur
þessar, og voru nefndir skipaðar til
þess að yfirfara þær og gefa þinginu
álit sin um þær. Voru þær síðan sam-
þyktar með smáveægilegum athuga-
semdum.
Þá var tekin til umræðu þriðji lið-
urí dagskrár. (a) Grundvallarlagbreyt-
ingar. \Tar hin fyrri breyt.tillaga um
niðurfærslu ársgjalds. en hin síðari um
nauðsynlegan atkvæöafjölda til þess að
lagabreytingar öðlist gildi.
Urðu strax umræður um hið fyrra