Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1937, Page 24

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1937, Page 24
6 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA framtíð íslenzks þjóðernis í Vestur- heimi er ekki aðeins óviss, heldur er það líka hið mesta vandamál, að taka afstöðu til hennar. Það mál á marg- ar hliðar, sem eg ekki get minnzt nema lauslega á. Ein snýr að fs- lendingum á íslandi. Um hana er það í styztu máli að segja, að vér höfum engan rétt til þess að heimta neina þjóðrækni aí komandi kyn- slóðum landa vestra, þó að vér á hinn bóginn ættum að gera það vegna sjálfra vor, að hlynna að henni eftir föngum. önnur snýr að eldri kyn- slóðum landa í Vesturheimi. Um þá af þeim, sem fluttust vestur full- tíða eða eru aldir þar upp í umhverfi íslenzkra bygða, má segja, að þjóð- ræknin sé þeim að nokkuru leyti ó- sjálfráð. Þeir hafa þurft að berjast á móti henni af ráðnum huga, ef þeir áttu að losna við hana, en fáir þeirra hafa viljað það og líklega enn færri hefir tekist það. Margir þeirra hafa alla tíð borið ríka heimþrá ti' fslands, og þó að hún hafi verið blandin sársauka, hefir hún verið eitt hið dýrmætasta í eigu þeirra. Eg efast ekki um, að yngri kynslóð- irnar skilji og virði þessar tilfinn- ingar hinna eldri og hafi orðið fyrir áhrifum af þeim. En afstaða þeirra til íslands hlýtur samt að vera önn- ur. Unga fólkið hefir fengið ment- un sína í amerískum skólum, það er alveg heima hjá sér í þarlendu um- hverfi. Þó að það skilji og tali ís- lenzku, er enskan því samt tamari. Þó að það beri ræktarhug til íslands og dreymi jafnvel um að sækja frændur sína austan hafsins heim, eru kynni þess af gamla landinu reist á sögu, en ekki sjón, og heim- þrá þess sársaukalaus, ekki nema skuggi af heimþrá eldra fólksins. Það eru þessar nýju kynslóðir, sem standa á hinum miklu vegamótum í íslenzkri þjóðrækni vestan hafs. — Þær eiga um kostina að velja fyrir sjálfar sig og niðja sína, og þær hljóta að kjósa og hafna eftir því, sem þær halda, að þeim sé fyrir beztu. Ef þeim virðist íslenzk þjóð- rækni munu standa þeim og afkom- endum þeirra fyrir þrifum, er ekkert auðveldara en þurka hana út með öllu. Áhrif umhverfisins og straum- ur tímans bera þær af sjálfu sér í þá áttina, ef ekki er sjálfráð viðspyrna veitt. Fyrir hverja nýja kynslóð, sem fæðist, verður hægara og hæg- ara að gleyma. En ef unga fólkið kemst að þeirri niðurstöðu, að það og niðjar þess fari á mis við eitt- hvað verðmætt og dýrmætt með því að slitna úr öllum tengslum við ís- lenzka menningu, þá mun það veita gleymskunni viðnám og getur gert það. Og þó að þessari völ fylgi eng- in kvöl, þá fylgir henni talsverð á- byrgð. Því að ef íslenzk þjóðræknis baráttu vestan hafs fellur niður um einn mannsaldur, þá er of seint að taka hana upp aftur, þó að einhverj- ir hinna óbornu fegnir vildu. Þá er samhengið rofið, hinar lifandi taug- ar slitnar. Það er hægra að styðja en reisa, segir gamall málsháttur. Þegar eg var í Winnipeg vorið 1932, var mér boðið að vera við- staddur á málfundi, sem ýmsir af hinum leiðandi mönnum “yngri kyn- slóðanna” héldu á heimili Mr. og Mrs. Walter J. Lindal. Umræðuefnið var framtíð íslenzkrar menningar vestan hafs, eins og hún horfði við frá sjónarmiði þessara manna. Mér er þetta kvöld mjög minnisstætt. f
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.