Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1937, Side 30

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1937, Side 30
12 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA in kostnað. En gildi nútímamálsins fyrir lifandi skilning fornbókment- anna hefi eg oft haft tækifæri til bess að athuga, þegar hálærðir nor- rænufræðingar hafa sótt ísland heim í fyrsta sinn. Eftir nokkurra vikna dvöl í hinu íslenzku-mælandi um- hverfi hafa þeir játað, að andi og eðli forntungunnar hefði opnast fyr- ir þeim á alveg nýjan hátt. Einni spurningu, sem margir les- endur munu vilja spyrja, vil eg svara hér að lokum: Er ekki íslenzka ákaf- lega erfitt mál ? Það er hún að vissu leyti. Annars væri líka minni tamn- ing í að læra hana. Samt þekki eg þess mörg dæmi, að erlendir stúdent- ar, sem komið hafa hingað að vori til með ofurlitla málfræðilega undir- stöðu, hafa verið orðnir ágætlega mælandi á íslenzku að haustinu, eftir 2—3 mánaða dvöl í sveit, og það meira að segja Danir, sem hafa orð fyrir að vera tornæmir á tungu vora. Ekkert erlent mál kemur fljúgandi upp í menn að fyrirhafn- arlausu. Ef íslendingum í Vestur heimi er alvara með að halda í þekk- ingu tungunnar, þurfa þeir að koma sér upp góðum námsbókum (mál- fræði, lestrarbók, orðabók), sem miðaðar eru við þarfir hinna yngri kynslóða. Þeir þurfa að efla til námsskeiða sem víðast þar sem hópar íslendinga eiga heima. En ef unglingarnir eru dálítið vanir við að heyra íslenzku og málið er talað við þá samhliða náminu, er það svo gífurlegur léttir, að ekki verður annað sagt en íslenzkan sé þeim “auðsótt mál”, ef ekki skortir góðan vilja og ofurlítinn kjark til áreynslu. IV. f einu handriti Landnámu stendur þessi klausa sem niðurlagsorð: “Það er margra manna mál, að það sé óskyldur fróðleikur að rita landnám. En vér þykjumst heldur svara kunna útlendum mönnum, þá er þeir bregða oss því að vér séum komnir af þrælum eða illmennum, ef vér vitum víst vorar kynferðir sannar. Svo og þeim mönnum, er vita vilja forn fræði eða rekja ætt- artölur, að taka heldur að upphafi til en höggvast í mitt mál, enda eru svo allar vitrar þjóðir, að vita vilja upphaf sinna landsbygða.” Sá andi, sem kemur fram í þess- um fornu orðum, hefir legið í landi frá upphafi íslands byggðar til vorra daga. Og vesturfararnir hafa ekki farið varhluta af þessum þjóð- ararfi. Almanak Ólafs S. Thorgeirs- sonar og ýmis önnur rit og ritgerðir sýna það berlega. Sjálfsagt vita engir innflytjendur í Vesturheimi jafngóð deili á ættum sínum og upp- runa og íslendingar. Sumum kann að virðast þetta hégómi. Og víst getur blandast inn í það barnalegur metnaður, ef menn halda, að þeir séu af því einu meiri menn eða betri en annað fólk, að þeir geta rakið ættir sínar til Brunda-Bjálfa eða til Bjarnar bunu, Grímssonar hersis úr Sogni. Varla er til mikils að hampa slíkum aðalsbréfum framan í enska. Samt er metnaðurinn, “that last infirmity of noble minds” (Milton) , í sjálfu sér ekki lítils virði, og þá heldur ekki ættarmetnaður. Á hon- um ber ekki minna í Ameríku en í öðrum löndum, þó að þar sé ekki arfgengur aðall, og hvergi hefi eg fundið meiri rækt lagða við hann en
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.