Alþýðublaðið - 30.01.1924, Page 1
töiublað,
Miðvikudaginn 30. janúar.
1924
Erlend sDnskejti.
Lundúnum í fyrri nótt, FB.
Járnbraa tary erkfall i ð.
Skömmu eftir kl. 9 í gætkveldi
fór Bromley formaður framkvæmda-
nefndar verkfallsmanna ásamt þrem-
ur mönnum öðrum úr nefndinni
í mesta ílýti frá skrifstoium nefnd-
arinnar, og var förinni að þn', er
virðist, heitið á einhvern leyni-
legan stað til þess að finna þar
að máli íorstjóra járnbrautartélag-
anna. Yar þetta talinn fyrirboði
þess, að tekist hefði að ráða fram
úr vandkvæðum þeim, sem verið
hafa á samkomulagi milli aðiljanna
að nokkru leyti. Samkvæmt orð-
rómi, sem ekki heflr tekist að fá
sannanir fytir, þykir sennilegt, að
samkomulag komist á í nótt.
Lundúnum í gærmorgun.
Ðeilanni lokið.
Samkomulag hefir komist, á um
deilu þá, er olli járnbrautarverk-
fallinu enska, og er því nú lokið.
Beuter.
Khöfn, 29. jan.
Brezka stjórnin og Frakkar,
Frá París er símað: Blaðið
>Quotidien<, sem er í andstöðu-
flokki frönsku stjórnarinnar, heflr
birt mjög athyglisvert viðtal við
Ramsay MacDonald forsætisráð-
herra. Kemur hann þar fram með
margar og miklar aðfinslur við
Btefnu stjórnarinnar frönsku í ut-
anríkismálum og segir, að hún só
ensku þjóðinni svo ógeðfeld, að
Btjórn Bretlands só nú að hugleiða
í fylstu alvöru, hvort Bretar verði
ekki að neyðast til að taka upp
nýjar varrúðasrráðstafanir í her-
málum og leita sór bandalags við
aðrar þjóðir í stað Frakka.
Ummæli MacDonalds í viðtali
þessu hafa komið mjög óþægilega
við franska stjórnmálamenn og
yakið mikla eftirtekt í þeirra hóp.
öagnbyltingamenn handtekuir
Frá Stokkhólmi er símað: Ráð-
stjórnin í Rússlandi hefir látið
handtaka ýmsa heldri menn úr
flokki baptista í Rússlandi, og eru
þeir sakaðir um að styðja að
gagnbyltingu í Rússlandi.
Seðlafalsarar í Berlín.
Lögreglan f Berlín heflr tekið
fasta 170 seðlafalsara. Hafa þeir
geflð út falska dollara-seðla og
komið þeim í umferð, svo að þús-
undum skiftir.
Lundúnum 30. jan.
Samkomnlagið við járnbrant-
arverk fallsmennina.
í sáttagerðinni um verkfalls-
málið heflr það oiðið að samkomu-
lagi, að ákvæði þau um kaupgjald,
sem nýlega voru sett af gerðar-
dómi, skuli haldaát, en þó skuli
veitt undanþága frá þeim ákvæð-
um nokkrúm lestarstjórum og
kyndurum, sem hafa orðið sór-
staklega illa úti með kaup vegna
ákvæða gerðardómsins.
Búist er við, að allar járnbraut-
arlestir komist aftur af stað í dag^
og samgöngurnar komist þá í
sama lag eins og var fyrir verk-
fallið.
Uafnarverkfall í aðsigi.
Framkvæmdarstjórn flutninga-
verkamanna hefir samþykt að
lýsa yfir verkfalli hjá öllum hafn-
arverkamönnum í Bretlandi 16.
febrúar, ef kröfum þeirra um
hækkað kaup fáist ekki framgengt.
V. M. F. Dagslirnn.
. ^
Aöalfundur
félagsins verður haldinn miðvikudaginn 30. þ. m. ki. Ý\tT Iðnó.
Dagskrá samkvæmt iögum félagsins. — Félagar, fjöimennið!
Sýnið skfrteini við innganginn! Stjórnln.
Kvöldskemtun
heldur st. Skjaldbreið föstudaginn 1. febr. í G.-T.-húsmu, er hefst
kl. 9 síðd. Húsið opnað kl. 8x/a-
Skemtiskrá;
1. Gamankikur: >Happlð« eftir Pál Árdal,
2. Þýzka hljómsveitin (Kammertrio: hr. Fr. Peppermúller: fiðla,
hr. E. Schacht: piáno, hr. P. Plenge: Ceiio),
3. Sungnar nýjar gamanvísur.
4 Gamanleikur: >Piperm:(n f klfpu< (þýtt úr ensku).
Aðgöngumiðar verða seidlr f G.-T.-húsinu frá kl. 1 á föstudag
og kosta kr. 2,00. — Samkoman er einungis fyrir templára og
gesti þeirra.