Alþýðublaðið - 31.01.1924, Síða 1

Alþýðublaðið - 31.01.1924, Síða 1
Kappglíma nm Ármannsskj Oldinn verður háð í Iðnó annað kvöld kl. 81/*. Aðgöngumiðar eru seldir í Auaturstrœti 12 (tóbaksbúðinni) & morgun til kl. 7, en eftir þann tima í Iðnó. Glímnfélagtð Ármann. Erlend símskejti. Um daginn og veginn. Khöfn, 30. jan. VerkfölIIn í Englandi. Frá Lundúnum er símað: Járn- brautarverkfaliinu Iauk í morgun að afstöðnum samningum milii forstjóra járnbrautarfélaganna og samninganefndar, sem skipuð var af verkmannasambandsþing- ínu. Lauk verkfallinu án þess, að verulegar Iaunabreytingar yrðu gerðar, með því að járn- brautarfélögunum hafði tekist að halda nokkurn veginn uppi sam- göngum þrátt fyrir verkfaillð. Boðað hefir verið verkfall 120000 hafnarverkamanna 16. febráar, ef þeim verði ekki veitt kauphækkun fyrir þann tíma. Landrekstrar. Frá Beríín er símað: í hefnd- arskyni fyrir það, að ýmsum Pólverjum hefir verlð vísað úr landi í Bayern og Mecklenburg, hafa Pólverjar gert landrækar frá sér 190 þýzkar fjölskyldur. Cfrænlandsmálið. Samningum Dana og Norð- mfinua um Grænlandsmálið er nú lokið. Halda báðir aðiiar tast við stefnu sína f ölium meginat- riðum. Samningurinn hefir ekki verið birtur enn þá. Eaupdeila. Fiskverkunarkon- ur í >Iðunni< lögðu í gær niður vinnu vegna þess, að fram- kvæmdarstjórinn (Þorgeir Páls- son) gerði tilraun til að iækka kaup þeirra úr 80 aurum um tfmann niður í 65 aura. Fyrir milligöngu stjórnar verkakvenna- félagsins >Framsóknar< tókst að jafna deilnna, svo að greitt verð- ur sama kaup sem áður, unz um annað semst við félagið, og hófst vinna aftur 1 morgun. Dr. Kort Kortsen heldnr í kvöld kl. 6 áfram fyrirtestrum sinum um Georg Brandes f há- skólanum. Aðgangur öllum heim- ill og ókeypis. Allar stúlknr, sem vinna á fiskvinnustöðvunum, eru aivarlega ámintar að mæta á fundi hjá »Framsókn< í kvöid. Aðalfund heldur verkakvenna- félagið >Framsókn< í kvöld kt. 8^/2 i Iðnó uppi. Verður þar rætt um kaupmálið auk aðai- fundarmála og tekið við nýjum félöguro. Félagskonur eru beðnar að fjölmenna. Sálarrannsúknafélag íslands heldur fund í kvöld kl. 8x/2 i Bárunni. Indriði Einarsson skáld „■ H. F. P EIMSKIPAFJELAlG j ’ ÍSLANDS f I REYKJAVÍK j Vér viljum hér með vekja at- hygli á því, að í næstu ferð e.s. Gullfoss hingað til iands kemur skipið samkv. áatluninni við í Bergen. Bnrtfarardagnr þaðan er 26. febrúar, og verður skipið í Beykjavik B. marz. Hallnr Hallsson tannlæknir hefir opnað tanniækningastofu í Kirkjustræti 10 niðri. Síml 1503. Vlðtalstími kl. 10-4. Síml heima Thorvaldsensstræti 4, nr. 866. og frú María Þorvarðsdöttir fiytja erindi. Fermingarbörn séra Árna Sigurðssonar komi í frikirkjuna á töstudaginu, drengir kl. 4, stúikurnar kl. 5. Lögregluþjónarnir Kari, Mar- grímur og Kjartan hafa legið i kvefsótt undan farna daga, Páil Jónsson liggur veikur í iungna- bólgu að aögn, en vægri.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.