Morgunblaðið - 20.12.1977, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.12.1977, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1977 blAA AK 28810 car rental 24460 biialeigan GEYSIR BORGaptijni 24 i LOFTLEIDIR H 2 11 90 2 11 38 Hópferðabílar 8—50 farþega Kjartan Ingimarsson Slmí 861 Ö5, 32716 ® 22*0*22- RAUOARÁRSTÍG 31 V_____ —-------/ Innilegar þakkir til allra þeirra sem glöddu mig á 90 ára afmæli mínu 29 nóvember s.l. Ég bið guð aö blessa ykkur öll um jólin og á komandi árum. Elín Jóhannsdótt/r, Baugstöðum. Silfur og gull skartgripir LAPPONIA C3 Kjartan Ásmundsson Aðalstræti 8 Útvarp Reykjavík ÞRIÐJUDKGUR 20. desember MORGUNNINN 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50. Morgunstund harnanna kl. 8.00: Arnhildur Jónsdóttir les ævintýrið um „Aladdín og töfralampann" í þýðingu Tómasar Guðmundssonar (8). Tilkynningar kl. 9.15. Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög miili atriða. Aður fyrr á árunum kl. 10.25: Ágústa Björnsdóttir sér um þáttinn. Morguntónleikar kl. 11.00: Maurice André og Kammer- sveitin í Múnchen leika Trompetkonsert í D-dúr eftir Franz Xaver Richter; Hans Stadlmair stj. / Jost Michaels leikur með sömu hljómsveit Klarínettukon- sert nr. 3 í G-dúr eftir Johann Melchior Moltar / Kammer- sveitin í Zúrieh leikur Concerto grosso í a-moll nr. 4 op. 6 eftir llándel; Edmond de Stout/. stjórnar. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. SÍÐDEGIÐ 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 14.40 Hvers vegna próf? Gunnar Kristján'sson tekur saman þáttinn. 15.00 Miðdegistónleikar. Suisse Romande hljómsveit- in leikur „Veiðimanninn út- skúfaða“, sinfónískt Ijóð eft- ir César Franck; Ernest Ansermet stj. NBC- sinfóntu- hljómsveitin leikur „Siegfried Idy 11“ eftir Rich- ard Wagner; Arturo Tosc- anini stj. Isaac Stern og Sin- fóníuhljómsveitin í Fíladelf- fu leika. Fiðiukonsert nr. 1 í g-moll op. 26 eftir Max Bruch; Eugenc Ormandy stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.35 Popp 17.30 Litli barnatfminn. Finn- borg Scheving sér um tím- ann. 17.00 Að tafli. Jón Þ. Þór flyt- ur skákþátt og efnir til jóla- getraunar. Tónleikar. Til- kynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. ÞRIÐJUDAGUR 20. desember 1977. 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsíngar og dagskrá 20.40 Landkönnuðir. Leikinn, breskur heimildamynda- flokkur. I.okaþáttur. Kristó- fer Kólumbus (1451—1506). Þegar líða tók nær lokum fimmtándu aldar, vissi hver sjómaður, að jörðin er hnött- ur. Evrópumcnn hugðu gotl til glóðarinnar að geta kom- ist til Asíu úr vesturátt. Með þvf móti þyrftu þeir ekki að óttast hina herskáu múham- eðstrúarnienn i Austurlönd- um nær. Árið 1492 tókst sa*- faranum Kólumbusi, sem fa>ddur var á ltalíu, að telja spænsku konungshjónin á að gera út leiðangur til þess að finna vesturleiðina. Þýð- andi og þulur Ingi Karl Jóhan nesson. Þulur ineð honum Ingi Karl Ingason. 21.35 Sjónhending. Erlendar myndir og málefni. Umsjón- armaður Sonja Diego. 22.00 Sautján svipmyndir að vori. SoVéskur njósna- myndaflokkur f tólf þáttum. 5. þáttur. Efni fjórða þáttar: Yfirmaður Stierlitz f lög- reglunni kemst að fyrirhug- uðu viðtali hans við Himml- er. Hann þykist sjá sér leik á borði, þegar hann fær veður af samsa*ri Stierlitz og prestsins, sr. Schlag. Prest- urinn fa*r því að fara óhindrað til Sviss. Mannin- um, sem rannsakar inál Stierlitz, þ.vkir grunsamlegt, hvernig prcstinum var sleppt úr haldi, og ákveður að hefja leit að njósnaran- um, sem Stierlitz skaut. Þýð- andi Ilallveig Thorlaeius. 23.15 Dagskrárlok. KVÓLDIÐ 19.45 Rannsóknir í verkfræði- og raunvfsindadeild Háskóla Islands. Oddur Benediktsson dósent talar um rannsóknir og kennslu í rafreiknifræði. 20.10 Fantasfa appassionata op. 35 eftir Henri Vieuxtemps. Charles Jongen leikur á fiðlu með Sinfónfu- hljómsveitinni í I.iége; Gérard Cartigny stjórnar. 20.30 Utvarpssagan: „Silas Marner“ eftir George Eliot. Þórunn Jónsdóttir þýddi. Dagný Krist jansdóttir les (13). 21.00 Kvöldvaka a. Einsöngur : Guðrún Á Símonar syngur fslenzk lög. b. Við Hrútafjörð. Guðrún Guðlaugsdóttir talar við Jón Kristjansson fyrrum bónda á Kjörseyri; — síðari viðtals- þáttur. c. Sungið og kveðið. Þáttur um þjóðlög og alþýðutónlist í umsjá Njáls Sigurðssonar. d. I gegnum öræfin. Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi flytur ferðasiigu frá 1943. e. Kórsöngur: Karlakór Reykjavfkur syngur fslenzk lög. Söngstjóri: Sigurður Þórðarson. Orð kvöldsins á jólaföstu. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Harmóníkulög. Heidi Wild og RenatoBui leika. 23.00 Á hljöðbergi: Listgreinin Iftilsvirta. Gerald Moore sjallar í léttum dúr um ánægju og raunir undir- leikarans og stráir um sig dæmum. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. % í kvöld klukkan 20.40 er í sjónvarpi lokaþáttur „Landkönnuóa“, og fjallar þátturinn um Kólumbus og landafundi hans. Kólumbus lét úr höfn árið 1492 staðráðinn í að finna vesturleiðina til Austurlanda, og opna þar með Evrópubúum nýja leið þangað. Þýðandi og þulur myndarinnar í kvöld er Ingi Karl Jóhannesson, en þulur með honum er Ingi Karl Ingason. Hvernig er að vera undirleikari? í ÞÆTTINUM „á Hljóð- bergi“ í kvöld mun Bret- inn Gerald Moore spjalla í léttum dúr um raunir og ánægju undirleikar- ans og strá um sig dæm- um. Gerald Moore er fædd- ur laust fyrir aldamót í Englandi. Hann byrjaði ungur að læra á píanó, og 16 ára gamall fór hann í sitt fyrsta tónleikaferða- lag. Hann hefur spilað undir hjá flestum þekkt- ustu söngvurum heims, og leikið á listahátíðum í Edinborg, Salzborg, Hol- landi og Granada, svo dæmi séu nefnd. Moore hefur einnig komið fram í sjónvarpi og útvarpi, og haldið fyrirlestra um tón- list Moore fékk árið 1951 verðlaun fyrir framlag sitt til kammertónlistar, en hann hefur einnig fengið hljómplötuverð- laun. Hann hefur skrifað fjórar bækur, þar af þrjár um starf sitt og eina um sönglög Schu- berts. Þátturinn í kvöld hefst klukkan 23.00 og umsjón- armaður hans er Björn Th. Björnsson. Ferðasaga frá 1943 í kvöldvöku í kvöld KLUKKAN 21.00 í kvöld er að venju kvöldvaka i útvarpi. Hún hefst á þvi að Guðrún Á. Símonar syngur íslenzk lög við undirleik Guðrúnar Kristinsdóttur, sem spil- ar á píanó. Þá ræðir Guðrún Guð- laugsdóttir við Jón Kristjánsson, fyrrum bónda á Kjörseyri viö Hrútafjörð. í kvöld verð- ur fluttur síðari viðtals- þátturinn. Næst er þáttur um þjóðlög og alþýðutónlist í umsjá Njáls Sigurðsson- ar, og nefnist hann sung- ið og kveðið. Guðmundur Þorsteins- son frá Lundi flytur svo ferðasögu frá 1943 sem hann kallar „í gegnum Öræfin“. Síðast á kvöldvöku í kvöld er kórsöngur. Karlakór Reykjavíkur syngur íslenzk lög, en söngstjóri er Sigurður Þórðarson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.