Morgunblaðið - 20.12.1977, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.12.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1977 5 Tónlistarfélagið: Einleikstón- leikar Unnar Sveinbjarn- ardóttur UNNUR Sveinbjarnardóttir, lág- fióluleikari, heldur sína fyrstu einleikstónieika á vegum Tónlist- arfélags Reykjavíkur nk. þrióju- dagskvöld og hefjast þeir kl. 9 í Austurbæjarbíói. Með Unni leik- ur Halldór Haraldsson, píanóleik- ari. Unnur Sveinbjarnardóttir lauk prófi í fiðluleik frá Tónlistarskól- anum í Reykjavík árið 1969 og var kennari hennar Björn Ölafsson. Síóan stundaói Unnur nám við Royal College of London og lauk þaðan prófi í lágfiðluleik 1972. Hún var auk þess eitt sumar nem- andi Bruno Giuranna við L'Aka- demie musivale í Sienna á ítalíu en þaðan fór hún til framhalds- náms vió West Deutehe Musik- akademie í Detmold. Unnur Iauk þaðan einleikaraprófi voriö 1977 með frábærum vitnisburði. Kenn- ari hennar þar var prófessor Ti- bor Varga. Unnur hefur með námi verið 1. lágfiðluleikari í kammersveit Tib- or Varga og tekið þátt í tónleika- ferðum víða um Evrópu og haldið sjálfstæða tónleika á listahátíð í Sion í Sviss. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir M Marais, P. Hinde- smith, Schumann og Brahms. Kirkjan heitir Fossvogskirkja ÞAÐ VIRÐIST vera nokkuð á reiki nafn kirkjunnar i Fossvogi. en i Mbl. á laugardag var greint frá hljómleik- um kirkjukórs Akraness er fram fóru i Fossvogskirkju. Spurt hefur verið hvort hér sé um að ræða nýja kirkju i Reykjavik, en svo mun ekki vera, þar sem þetta er kirkja sú i Fossvogi er gengið hefur undir nafninu Foss- vogskapella og er i umsjá Kirkju- garða Reykjavíkur. Friðrik Vigfússon forstjóri Kirkjugarða Reykjavikur, sagði i samtali við Mbl. að kirkjan héti Fossvogskirkja og svo hefði allt- af verið, enda þótt kapellunafnið væri e.t.v. útbreiddara. Hins vegar væri um að ræða tvær kapellur er notaðar væru til kistulagninga svo og jarðarfara er fram færu i kyrrþey. Athugasemd I Mogunblaðinu í dag er skýrt frá þvi, að ég hafi sagt starfi mínu lausu hjá Ríkisútgáfu námsbóka. Tæpast er hægt að skilja frásögn blaðsins öðru vísi en þannig, að ástæðan til uppsagnar minnar sé sú, að ég hafi náð cftirlaunaaldri. Ég leyfi mér því að biðja Morgunblaðið að geta þess, að ástæðan er ckki þessi, hcldur óánægja mín með mat vissra aðila í Fjármálaráðuneytinu á því starfi sem ég hef gegnt hjá hinu opinbera s.l. 21 og 'á ár. Ekki var það ætlan min að víkja að þessu opinberlega, en vegna ofangreinds misskilnings tel ég rétt að gera það. Með þökk fyrir birtinguna. 18.12.1977. Jón Emil Guðjónsson. Bogmaður: 22. nóv. — 21. des. Litur: Fjólublátt, kóngablátt Steinn: Tópas. Lykilorð: Frelsi, námfýsi. Hvenær ert þú fædd ? Reynið ekki að hefta bogakonuna á nokkurn hátt, hún þarf að vera frjáls sem fuglinn, en gefi hún þér einu sinni traust sitt, mun hún standa við hlið þér, staðföst og trú. Hindrið ekki óþrjótandi áhuga hennar fyrir ferðalögum, en hún á það til að fá furðulegustu hugmyndir varðandi ferðalög á óheppilegustu tímum. Hún er stundum tillitslaus og óróleg, en hún hefur ákveðið takmark, sem hún er staðráðin í að ná. Það á vel við hana að berjast við vandamál. í ástarlifi er hún hugmyndarík og ævintýragjörn og leggur sömu rækt við andlegt og líkamlegt samband. Bogakona kann illa við sig í þröngum fötum, hún vill geta hreyft sig frjálslega og óhindruð. Gallabuxur og bolir eru hennar uppáhald. Þegar mikið stendur til, royndir hún að klæðast öðruvisi en allar hinar. Stjömumar ráða klænaði yWw»m ' geymir leyndarmálið Austurstræti 22, 2. hæð, sími 281 55.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.