Morgunblaðið - 20.12.1977, Side 13

Morgunblaðið - 20.12.1977, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1977 13 Nýja heilsugæzlustöðin. júní sama ár af Jóni Þorgilssyni. Húsiö var teiknað af Hauki Viktorssyni og Ulrik Arthurssyni hjá Arkiv h.f. en aöra sérfræðiað- stoð veitti Tækniþjónustan Ar- múla 1. Samkvæmt teikningunni eru meginálmur hússins tvær, íbúðarálma og þjónustuálma, og var ráðizt í að byggja íbúðarálm- una fyrst og er það hún, sem nú er tekin í notkun. Samið var við Jón Má Adolfsson byggingarmeistara um að byggja þennan fyrsta áfanga hússins en ýmsir undir- verktakar hafa tekið að sér ein- staka þætti verksins. Aðalhæð hússins er 625 fermetrar og kjall- ari er 115 fermetrar. Þar er kyndiklefi, þvottahús og aðstaða fyrir föndurvinnu. A aðalhæð eru 4 íbúðir og 9 einstaklingsherbergi og eru 9 vistmenn þegar fluttir inn í heimilið, en fyrstu vistmað- urjnn flutti inn 25. nóvember s.l. íbúðir og herbergi eru með eld- húskrók ef vistmenn kjósa sjálfir að elda mat einstaka sinnum en matur er framreiddur úr eldhúsi hússins fyrir þá sem það kjósa. Mikil aðsókn er að dvalarheimil- inu og hefur ekki verið hægt að sinna öllum óskum um pláss. Það kom frá hjá Steinþóri að kostnaður við húsið er.nú um 80 milljónir króna. Sveitarfélögin í Hellulæknishéraði hafa lagt fram drjúgan skerf til byggingarinnar og fjölmargar gjafir hafa borizt en að öðru leyti hefur byggingin verið fjármögnuð með lánsfé frá Húsnæðismálastjórn ríkisins, Líf- eyrissjóði Rangæinga og Búnaðar- banka íslands á Hellu. Að lokum þakkaði Steinþór öllum þeim aðil- um, sem með gjöfum og á annan hátt hafa stuðlað að því að dvalar- heimilið varð að veruleika. Páll Björnssonoddviti tók næst- ur til máls og skýrði frá tilurð heilsugæzlustöðvarinnar. Það var á miðju ári 1975 og menn fóru að huga að þeim möguleika a<\ inn- rétta húsnæði fyrir heilsugæzlu- stöð í húsi, sem Verkalýðsfélag Rangæinga og Lífeyrissjóður Rangæinga voru að reisa á Hellu. Eftir viðræður við heilbrigðisyfir- völd var ákveðið á leita samninga við eigendur hússins um leigu- kjör og náðust samningar. Var þá hafizt handa við innréttingu hús- næðisins samkvæmt tillögu heil- brigðisráðuneytisins. Er því verki nú lokið en ýmislegt vantar enn svo telja megi heilsugæzlustöðina fulbúna, t.d. vantar enn mikið af tækjum, en það stendur til bóta samvkæmt því, sem fram kom í ræðum ráðamanna á laugardag- inn. Starfsfólk heilsugæzlu- stöðvarinnar er nú Jónína Jónsdóttir ljósmóðir, Erla Ölafsdóttir hjúkrunarfræðingur og Jón Snædal héraóslæknir. Unnið er að þvi að fá tannlækni og tannsmið til starfa á Hellu en aðstaða er fyrir þá í nýju heilsu- gæslustöðinni. í Hellulæknishér- aði eru nú fimm hreppar, Djúpár- hreppur, Holtahreppur, Asa- hreppur, Landmannahreppur og Rangárhreppur. Næstur tók til máls Matthias Bjarnason heilbrigðisráðherra. Hann sagði i upphafi máls síns að ur. Ráöherrann rakti þvínæst sögu Hellulæknishéraðs og minnt- ist sérstaklega brautryðjenda- starfs Ölafs Björnssonar læknis. Matthias Bjarnason kvaðst mundu beita sér fyrir því á Al- þingi að samþykkt yrði fjárveiting til kaupa á húsnæði því, sem heilsugæzlustöðin er í en eigend- ur hússins hafa boðið ríkinu húsnæðið til sölu á hagstæðu verði. Að lokum sagði ráðherrann að íbúar Hellu og nágrannasveit- anna gætu verið stoltir af upp- byggingu liyggðarlagsins og ósk- aði þeim til hamingju með hinar nýju og glæsilegu stofnanir, sem nú væri verið að taka i notkun. Þakkaði bann öllum þeim, sem unnið hefðu að því að heilsugæzlu- stöðin og dvalarheimilið væru til- búin til notkunar og sérstakar Sr. Stefán Lárusson í Odda annaðist helgistund í Lundi. síðan lög um heilbrigðisþjónustu tóku gildi árið 1974 hefði mark- visst verið unnið að því aö byggja upp heilbirgðisþjónustu úti á landsbyggðinni og stæðu vonir til að árið 1979 hefðu öll héruð feng- ið heilsugæzlustöðvar. Sagði ráð- herrann að það væri trú þeirra, sem að heilbrigðismálum störf- uðu, að stefnt væri i rétta átt meö þeirri nýbreytni, sem nú væri tek- in upp með hópvinnu heilbrigðis- stétta í fáum en vel búnum heilsu- gæzlustöðvum, i stað þess að einn læknir hefði unniö þessi störf áð- þakkir færöi hann Ingólfi Jóns- syni alþingismanni fyrir hans mikla starf í þágu byggðarlagsins, en Ingólfur lætur sem kunnugt er af þingmennsku næsta vor. Að lokum ávarpaði Ingólfur Jónsson viðstadda og þau Sigurð- ur Óskarsson, framkvæmdastjóri Verkalýðsfélagsins, frú Hanna Bjarnason, formaður Kvenfélags Oddakirkju, og Jón Þorgilsson, varaformaður Lionsklúbbsins á Hellu, fluttu stutt ávörp og færðu dvalarheimili aldraðra gjafir. — SS. Hér birtist síðari hluti hins mikla ritverks um sævíkinga fyrri tíma við Breiðafjörð, sannar frásagnir mikillar sóknar á opnum bátum við erfiðar aðstæður, sem stund- um snerist upp í vörn eða jafnvei fullan ósigur. Nær hvert ár var vígt skiptöpum og hrakningum, þar sem hin- ar horfnu hetjur buðu óblíð- um örlögum byrginn, æðru- og óttalaust. Aflraunin við Ægi stóð nánast óslitið árið um kring og þessir veður- glöggu, þrautseigu víkingar, snillingar við dragreipi og stýri, tóku illviðrum og sjávarháska með karl- mennsku, þeir stækkuðu í ’stormi og stórsjó og sýndu djörfung í dauðanum, enda var iíf þeirra helgað hættum. — Um það bil 3000 manna er getið í þessu mikla safni. Er andinn mikilvægari en efnið? Hefur góður hugur og fyrirbænir eitthvert gildi? Skiptir það máli hvernig þú verð lífi þínu? Þessar áleitnu spurningar vilja vefjast fyrir mönnum og víst á þessi bók ekki skýlaus svör við þeim öllum, en hún undirstrikar mikilvægi fagurra hugsana, vammiauss lífs og gildi hins góða. Hún segir einnig frá dulrænni reynslu níu kunnra manna, hugboðum þeirra, sál- förum, merkum draumum og fleiri dularfullum fyrirbær- um, jafnvel samtali látins manns og lifandi, sem sam- leið áttu í bíl. Og hérerlangt viðtal við völvuna Þorbjörgu Þórðardóttur, sem gædd er óvenjulegum og fjölbreyttum dulargáfum. — Vissulega á þessi bók erindi við marga, en á hún erindi við þig? Ert þú einn þeirra, sem tekur and- ann fram yfir efnið? Oétvfpq <•>( trt yóten liltMkcw hti) >thK ndlt- útOR ikhi ttfitl ,<xjhi ikaWjolvrinp f"Vi' •rrwd'lituon. t#»ii iiok undiuKilittf tif kom Ofl hin oi li&fltikkhrvnnvr hvottvm hotlnmonni. htfillnnrti óðwi lií ftlumit ofl iiloniVn Htrnini „Ef ég hefði ekki vitað það, að Guð er til, mundi ég hafa trúað á hestana mína“, sagði eyfirzki bóndinn Friðrik í Kálfagerði, og skáldjöfurinn Einar Benediktsson sagði: „Göfugra dýr en góðan ís- lenzkan hest getur náttúran ekki leitt fram“. — Þannig hafa tilfinningar íslendinga til hestsins ávallt verið og eru enn og sér þess víða merki. I ríki hestsins undirstrikar sterklega orð þessara manna. Þar eru leiddir fram fræði- menn og skáld, sem vitna um samskipti hestsins, mannsins og landsins, og víða er vitnað til ummæla erlendra ferða- manna. Bókin rtiun halda at- hygli hestamannsins óskiptri, eins og hófatakið eða jó- reykurinn, hún mun ylja og vekja minningar, hún er óþrjótandi fróðleiksbrunnur hverjum hestamanni, heill- andi óður til Islands og ís- lenzka hestsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.