Morgunblaðið - 20.12.1977, Side 24
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐ.JUDAGUR 20. DESEMBER 1977
— Tveir í f angelsi
ævilangt
Framhald af bls. 48
in svipbrigði að sjá á sakborning-
unum þegar Gunnlaugur las
dómsorðin.
Samkvæmt lögum skal dómun-
um yfir Kristjáni Viðari, Sævari,
Tryggva Rúnari og Guðjóni áfrýj-
að til Hæstaréttar, þar sem um
manndráp er að ræða en verjend-
ur Erlu Bolladóttur og Alberts
Klahn Skaftasonar tóku sér frest
til þess að ákveða hvort þeir
áfrýja eða ekki. Saksóknari hefur
einnig áfryðjunarrétt hvað varðar
mál Erlu og Alberts.
Gæzluvarðhald
framlengt um eitt ár
Bragi Steinarsson vararíkisrak-
sóknari gerði þvínæst kröfu um
framlengingu gæzluvarðhalds yf-
ir þeim fjórum mönnum, sem set-
ið hafa í gæzluvarðhaldi vegna
rannsóknar þessara mála, þeim
Kristjáni Viðari, Sævari, Tryggva
Rúnari og Guðjóni. Var gert ör-
stutt réttarhlé en síðan tilkynnti
Gunnlaugur Briem þá ákvörðun
dómsins að framlengja gæzlu-
varðhald þessara fjögurra manna
þar til dómur hefði fallið í Hæsta-
rétti í málunum ella gilti gæzlu-
varðhaldið lengst í eitt ár eða til
19. desember 1978. Akærðu hafa
rétt til þess að kæra úrskurð
þennan til hæstaréttar en verj-
endur tóku sér frest til þess að
íhuga hvort úrskurðurinn verður
kærður eða ekki.
Einangrun aflétt
Ákærðu Kristján Viðar, Sævar,
Guðjón og Tryggvi Rúnar hafa að
mestu verið í einangrun frá því að
þeir voru hnepptir í gæzluvarð-
hald vegna rannsóknar þessara
mála og hafa þrír þeir fyrst-
nefndu verið í einangrun um
tveggja ára skeið. Verður nú
breyting á þegar dómur er fallinn
í málinu og verður einangrun af-
létt.
Það kemur fram í dómi saka-
dóms að hinn breytti framburður
þeirra Tryggva Rúnars, Sævars
og Kristjáns Viðars í Guðmundar-
málinu og breyttur framburður
Kristjáns Viðars og Sævars i
seinna málinu er ekki tekinn til
greina og þeir eru dæmdir sam-
kvæmt þeirra fyrri framburði,
þar sem þeir játuðu þau brot, ífem
á þá voru borin.
Um Kristján Viðar og Sævar,
sem hlutu langþyngsta dóminn,
segir svo orðrétt í dóminum:
„Ákærðu Kristján Viðar og
Sævar Marinó eru eins og áður er
rakið taldir sannir að sök um að
hafa svipt tvo menn lífi í bæði
skiptin með þriðja manni og borið
rangar sakir á fjóra menn, sem
voru til þess fallnar að hafa vel-
ferðarmissi i för með sér og
leiddu til þess að mönnum þess-
um var haldið í gæsluvarðhaldi
svo mánuðum skipti. Auk þess
hafa þeir verið fundnir sekir um
nokkur auðgunarbrot og ákærði
Sævar Marinó um skjalafals og
smygl á fíkniefnum.
Ákæröi Kristján Viðar, hefur
hlotið dóma fyrir auðgunarbrot
og lfkamsárás, svo sem áður er
rakið, og ákæröi Sævar Marinó
hefur hlotið skilorðsbundinn dóm
fyrir þjófnað.
Við ákvörðun refsingar er höfð
hliðsjón af þessu svo og framferði
ákærðu eftir að þeir frömdu brot-
in sem og þeirri staðreynd, að
líkin hafa ekki fundist og fengið
greftrun lögum samkvæmt.
Þykir því ekki með vísan til 70.
og 77. gr. almennra hegningar-
laga verða hjá því komist að
dæma ákærðu í ævilangt fang-
elsi."
Loks er þess að geta, aö Asgeir
Ebenezer Þórðarson var dæmdur
í sambandi við þessi mál, en hann
hafði átt hluta af 2'A kg af hassi
ásamt Sævari, sem fundust i bíl
Guðjóns Skarphéðinssonar við
komu til Iandsins haustið 1975.
Ásgeir hlaut fjögurra mánaða
skilorðsbundinn dóm.
Vedur tvísýn,
færd ótrygg
FROSTHARKA var viða um land
í gær og sérstaklega vestan og
suðvestanlands var skafrenning-
ur, hvassviðri og bylkóf svo að
umferð gekk víða stirðlega. Vest-
anlands og sunnan allt að
Mýrdalssandi var veður ótryggt
og hætta talin á að færð gæti
spillzt þegar minnst varði, en að
öðru leyti var þokkalegt ástand á
helztu þjóðvegum, t.d. um Norð-
urland og austanlands einnig.
Sakir veðurs varð að hætta við
áætlunarflug til Þingeyrar, Isa-
fjarðar og Patreksfjarðar í gær.
Á nokkrum stöðum á Suður-
landsundirlendi varð að aflýsa
kennslu vegna veðurs.
— Arabar
neikvæðir
Framhald af bls. 1
hann hefur verið á ferðalagi i smáríkj-
um við Persaflóa til að vinna að stuðrv
ingi við friðarhugmyndir Sadats forseta
Egyptalands. Pólitiskar heimildir
herma að konungurinn hafi vonast eftir
umtalsverðum tilslökunum frá hendi
ísraela
Khalid konungur Saudi Arabiu sem
hefur hvorki stutt né afneitað friðarum-
leitunum Anwar Sadats forseta Egypta-
lands, sendi i dag skilaboð til Araba-
sambandsins þar sem segir að Saudi
Arabar muni beita sér af öllum mætti
fyrir samábyrgð Araba. Voru skilaboð
hans til sambandsins svar við beiðni
þess um sameinað átak til að „takast á
við hættur þær" sem steðjuðu að
ástandinu i M iðausturlöndum.
— Jólafundur
ákveðinn
Framhald af bls. 1
kynnu að stefna friði og tilveru israels-
rikis i hættu. Þvi alvarlegra væri þetta
þar sem þær væru ónauðsynlegar
Sjálfur hefur Begin ekki látið þessa
gagnrýni á sig fá, en heldur þeim
tvimælalaust til streitu að sögn tals-
manna hans Hann fer til London i
kvöld eftir að hann hefur átt fund með
Kurt Waldheim, framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, að beiðni þess
siðarnefnda
þó talinn fyrsti af mörgum fundum
sem þeir leiðtogar muni eiga með sér á
næstunni unz marki þeirra er náð.
Talið er vist að Egyptar muni ondur-
nýja boð sin til annarra aðila að Gen-
farráðstefnunni, ef fundurinn milli
Sadats og Begin á jóladag þykir boða
einhverjar meiri háttar breytingar.
Myndi þá slikur fundur verða haldinn
með þátttöku utanrikisráðherra
Menachem Begin sagði við blaða-
menn áður en hann hélt frá Banda-
ríkjunum i dag að það væri ætlunin'að
gefa íbúunum á Vesturbakkanum
frjálst val um borgarrétt; gætu þeir
valið hvort þeir vildu verða jórdanskir
eða israelskir rikisborgarar og sæktu
þeir um rikisborgararétt i ísrael yrði
slikt veitt og þeir myndu fá israelsk
vegabréf Begin var spurður hvað isra-
elar myndu leggja til að gert yrði fyrir
Palestinuflóttamennina sem eru dreifð-
ir um Miðausturlönd Hann sagði að
400 þúsund þeirra sem væru nú á
israelsku landi, flestir i Gaza, myndu fá
„varanleg. mannsæmandi hýbýli og
vinnu, svo að þeir þyrftu ekki að vera
upp á náð og miskunn alþjóðlegra
góðgerðastofnana komnir Sömuleiðis
yrðu Arabariki að leggja fram sinn
skerf
Hvað snerti Palestinuflóttamennina i
Libanon, sem hafa orðið fyrir miklum
raunum vegna átaka ísraela og Pale
stinuskæruliða. sagði hann:.. Þar mun
um við einnig gera skyldu okkar."
Kairóráðstefnan hófst að nýju i dag
Hlé hefur verið i þrjá daga á ráð-
stefnunni i Kairó, að sögn vegna hinna
þriggja helgidaga kristinna,
múhammeðstrúarmanna og Gyðinga,
en hún hóf aftur störf í dag Það er Ijóst
að sögn fréttamanna að hún mun ekki
starfa að neinu gagni fyrr pn að fundi
þeirra Sadats og Begins loknum um
helgina En talsmenn sendinefndanna
létu allir i Ijós ánægju sina með
andrúmsloftið á ráðstefnunni og kváðu
ástæðu til að vænta verulegs árangurs
TASS. Tillögur Begins ganga
ekki nógu langt
Litla Ijósritunarvélin
meðstóru
kostina
Nýjasta gerðin af Apeco ljósritunarvélum
heitir M 420. Þessi vél hefur ýmsa kosti, sem
gera hana aðgengilegri en aðrar
ljósritunarvélar.
APECO M420 er:
Lítil og nett rúlluvél.
6 ig
Tekur varla meira pláss en ritvél.
Lengd ljósritsins má stilla frá 20—36 cm.
Ódýrari en flestar sambærilegar vélar.
Auðveld í notkun.
Með pappírsstilli.
\ \
fO3
Hafið samband við
sölumenn okkar strax í dag.
Sýningarvél í söludeild,
Hverfisgötu 33.
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
%
+ =
% : x ^ Hverfisgötu 33
Sími 20560 - Pósthólf 377
Sovétmenn sögðu í dag að friðartil-
lögur Begins gengju ekki nægilega
langt. Sagði i tilkynningu Tass-
fréttastofunnar að þær þýddu í reynd
að hernám ísraela héldi áfram í dálítið
breyttu formi. Tillögurnar fælu ekki í
sér viðurkenningu á tilverurétti
Palestinumanna eða rétti þeirra til
sjálfsákvörðunar né heldur til að koma
á fót sinu eigin riki.
Tass fór frjálslega með innihald til-
lagnanna og sagði að þar hefði ekki
verið minnzt á Gazasvæðið né Golan-
hæðirnar.
— Höfðum aðeins
nokkrar sekúndur
til að bjarga
okkur
Framhald af bls. 1
hræddur um að hann sé dáinn lika.
Ég veit ekki hvernig það bar að, en
ég fann björgunarbelti i sjónum og
synti i tvær stundir. Nokkrir fleiri
syntu skammt frá mér. Við vorum að
gefast upp, þegar bátur kom og tók
okkur um borð "
Marcia Oliveira, portúgölsk stúlka
sem var á leið til Madeira i brúð-
kaupsferð með svissneskum eigin-
manni sinum, sagði fréttamönnum á
sjúkrahúsi i Funchal i dag, að ólýs-
anleg skelfing hefði gripið um sig
meðal farþega, þegar Caravellevélin
hefði skyndilega „misst hæð" og
skollið siðan i sjóinn fáeinum andar-
tökum siðar. Aðflug hafði verið talið
eðlilegt og sagði Marcia að farþeg-
um hefði orðið mjög hverft við og
margir hljóðað upp yfir sig. „Einhver
rétti mér björgunarbelti og siðan
manninum mínum annað og áður
en við vissum af vorum við i sjón-
um. Við reyndum að synda til lands,
og eftir það sem okkur fannst eilifð-
artimi kom lítill bátur að okkur og
tók okkur um borð Það bjargaði
okkur Við hefðum ekki þraukað öllu
lengur," sagði hún. Annar farþegi,
svissneskur hóteleigandi Thierrin
Raymond, sagði: „Mér fannst ég
sogast niður í hafið. Flugvélin þeytt-
ist i sundur eins og hún væri skorin i
tvennt með risastórum hníf Sem
betur fer hafði ég ekki spennt sætis-
ólina og losnaði þvi strax. Þar sem
ég er ósyndur greip ég ferðatösku
sem flaut hjá og tókst að halda mér
á floti Konan min sem er synd hélt
tveimur börnum okkar uppi unz okk-
ur var bjargað um borð í litinn
fiskibát um hálftima siðar," sagði
hann.
Annar flugmannanna sem komst
lifs af sagði fréttamönnum að vélin
hefði sokkið á þrjátiu sekúndum, en
sjónarvottum bar ekki saman um
það og nokkrir hlutar vélarinnar
héldust á floti i allt að klukkustund.
í kvöld, mánudag, var Ijóst að
tuttugu og þriggja var enn saknað,
tuttugu og einn farþegi komst af og
þrettán lik höfðu fundist. Langflestir
farþeganna voru Svisslendingar sem
ætluðu að dvelja á Madeira yfir
jólin Vélin var af gerðinni Caravelle
og i eigu svissnesks leiguflugfélags,
SATA
Litil von er talin að fleiri finnist á
lifi að sögn fréttastofnana, en leit er
haldið áfram og björgunarflokkar
vinna á slysstaðnum.
Strax eftir að kunnugt var um
slysið fór fjöldi smábáta á slysstað
inn og bjargaði þeim 21 farþega
sem virðist hafa komist af. Fæstir
þeirra voru slasaðir
Um orsök slyssins er ekki vitað
Flugmönnum og sérfræðingum ber
saman um að flugvöllurinn við
Funchal sé með þeim hættulegri i
Evrópu „likast þvi að lenda á flug-
móðurskipi" er haft eftir einum sér-
fræðingi. Flugvélin kom óvenju lágt
inn til lendingar, en tveimur minút-
um áður en vélin skall i sjóinn hafði
flugstjórinn samband við flugturn-
inn á Funchal og var þá allt með
felldu
Flugmaður frá portúgalska flugfé-
laginu TAP sem kom með vél sína
inn til lendingar stundu á eftir Cara-
vellevélinni sagði að vél hans hefði
lent i mjög slæmu loftgati og hrapað
skyndilega i átt til sjávar, en tekizt
hefði að ná hæð aftur
Þetta er annað flugslysið við Ma-
deira á einum mánuði. Hinn 20
nóvember fórst þar TAP-vél af gerð-
inni Boeing 727 og 129 af 164
sem með þeirri vél voru, létu lífið
Rannsókn á þvi slysi stendur enn
yfir. Er búizt við að nú verði gerðar
mjög róttækar ráðstafanir til að
bæta aðstöðuna við flugvöllinn,
enda myndu Portúgalir ella sjá fram
á hrun ferðamannastraums til þess-
arar vinsælu eyju.