Vikan - 14.11.1991, Blaðsíða 4
BLS.
4
LITLAR KRANSA-
SMÁKÖKUR
800 g möndlumassi (marsípan)
3 eggjahvítur
1 dl flórsykur
100 g suöusúkkulaði
Skraut: Kokkteilber
Hakkið möndlumassann eða
rífið hann í grænmetisjárni.
Stífþeytið eggjahvíturnar og
blandið þeim saman við
möndludeigið ásamt flórsykr-
inum. Sprautið deiginu með
rjómasprautu á bökunar-
pappír. Skreytið kökurnar með
kokkteilberjum og bakið þær
við 175° C í 10 mín.
Losið kökurnar varlega frá
pappírnum meðan þær eru
heitar. Látið þær kólna og dýf-
ið þeim þá ofan í bráðið
súkkulaði.
Heillaráð: Til þess að auðveld-
ara verði að sprauta deiginu,
er gott að velgja það í potti
eða stinga rjómasprautunni í
nokkrar sekúndur inn í ör-
bylgjuofn, sem stilltur er á full-
an straum.
ÖMMUKÖKUR
500 g hveiti
250 g smjör (eða smjörlíki)
75 g strásykur
1 tsk hjartarsalt
rifinn börkur af einni sítrónu
1/2 tsk hvítur pipar
1 tsk kardimommur
1 dl vatn
Myljið smjörið saman við
hveitið. Blandið sykri, hjartar-
salti, rifnum berki og kryddi
saman við. Smábætið vatninu
út (og hnoðið deigið vel. Rúllið
deiginu í mjóar lengjur og
skerið í litlar kökur. Mótið kúlur
og bakið við 190° C, þar til þær
eru orðnar Ijósbrúnar.
Dýfa má kökunum út í bráðið
suðusúkkulaði þegar þær eru
farnar að kólna. 90 stk.
HNETUKÖKUR
300 g hveiti
200 g smjör (eða smjörlíki)
75 g flórsykur
1 tsk lyftiduft
fínsaxaðar heslihnetur
Myljið smjörið saman við
hveitið og sigtiö fiórsykur og
lyftiduft saman við. Hnoðið
deigið vel og rúllið því í tvær
lengjur. Veltið þeim því næst
upp úr söxuðum hnetum. Látið
deigið bíða um stund í kæli-
skáp. Skerið lengjurnar í kökur
og bakið í 8-10 mínútur við
200 ° C hita. 60 stk.
KORNFLÖGU-
KÓKOSKÖKUR
200 g hveiti
120 g smjörlíki
100 g sykur
100 g púðursykur
50 g kornflögur (cornflakes)
100 g kókosmjöl
100 g haframjöl
1/2 tsk natron
1/4 tsk salt
1 tsk vanillusykur
1 egg
súkkulaðidropar
Smjörlíki og sykur hrært sam-
an í hrærivél og egginu síðan
bætt út í. Að því búnu er öllum
þurrefnum blandað saman við.
Búnar eru til litlar kúlur og
þeim þrýst létt á plötu. Bakað
viö 190° C (170° C í blásturs-
ofni) þar til kökurnar eru orðn-
ar fallega brúnar. Súkkulaði-
dropi er settur ofan á kökurnar
þegar þær eru teknar út úr ofn-
inum. 65 stk.