Vikan - 14.11.1991, Side 32
GRUNNDEIG í
GERBAKSTUR
50 g ger
150 g smjör (eða smjörlíki)
5 dl mjólk
1/2 tsk salt
1 1/2 dl strásykur
1 tsk kardemommur
1 1/21 hveiti
Myljið gerið saman við ögn af
kaldri mjólkinni og hrærið vel.
Bræðið smjörið og hellið sam-
an við afganginn af mjólkinni.
Hellið volgum vökvanum yfir
gerblönduna og hrærið vel
saman. Blandið salti, sykri,
kardemommum og mestum
hluta hveitisins saman við og
hnoðið deigið kröftuglega.
Hnoðið afganginum af hveitinu
smátt og smátt saman við.
Leggið rakan klút yfir deigið og
látið það lyfta sér. Hnoðið
deigið varlega, skiptið því í tvo
hluta og látið það bíða um
stund, áður en frekar er unnið
með það.
MÖMMUSNÚÐAR
1 skammtur af grurmdeigi.
Fylling:
50 g mjúkt smjör
1/2 dl strásykur
2-3 tsk kanill eða
kardemmommur
þeytt egg til penslunar,
perlusykur og saxaðar
möndlur til skrauts.
Skiptið deiginu í tvennt og
fletjið báða deighlutana út í af-
langar kökur. Smyrjið smjörinu
jafnt yfir kökurnar. Blandið
saman sykri og kanil og stráið
yfir smjörið. Brjótið kökuna
saman þrefalt, skerið í strimla,
vindið strimlana upp í snúða.
Einnig má rúlla deiginu í þétta
lengju, skera síðan lengjuna í
um 2 sm þykka bita og ýta
ofan á miðju þeirra með hnífs-
skafti. Látið lyfta sér um helm-
ing undir rökum klút, en það
tekur um 30 mínútur. Penslið
með þeyttu eggi og stráið
perlusykri yfir og söxuðum
möndlum. Bakið í miðjum ofni
við 250 gráður i 5 mínútur.