Vikan - 14.11.1991, Síða 34
BLS.
34
MARSIPANKAKA MEÐ
SÚKKULAÐI
250 g smjör eða smjörlíki
250 g sykur
4 egg
250 g hveiti
1/2 tsk. lyftiduft
50 g hnetukjarnar
50 g dökkt súkkulaði
80 g hreint marsipan
Skraut:
Dökkt súkkulaði
hnetukjarnar í flögum
Smjör og sykur hrært saman
þar til þaö er Ijóst og létt. Eggj-
unum bætt saman við, einu (
senn. Hverju eggi hrært vel
saman við. Marsipanið hakkað
gróft. Súkkulaðið er einnig
hakkað, svo og hnetukjarnarn-
ir. Svolítið hveiti sett saman
við marsipan, súkkulaði og
hnetukjarna. Afganginum af
hveitinu er blandað saman við
lyftiduftið og sú blanda siðan
sett saman við eggjahræruna.
Loks er marsipani, hnetukjörn-
um og súkkulaði blandað var-
lega saman við. Sett í smurt
sandkökuform og komið fyrir í
köldum ofni. Hitinn er stilltur á
160 gráður og kakan látin bak-
ast í eina og hálfa klukkustund
eða þar til hún er bökuð í
gegn. Látin standa 110 mínút-
ur í forminu. Þegar kakan er
orðin köld er hún skreytt með
bráðnu súkkulaði og hnetu-
kjarnaflögum.
KLEINUR
0,75 lolía
1 kg hveiti
1 tsk hjartarsalt
8 tsk lyftiduft
2 tsk sítrónudropar og
kardimommur (duft)
100 g smjörlíki
250 g sykur
3 egg
1/2 I mjólk (gott að nota súr-
mjólk en af henni þarf svolítið
meira)
Hrærið saman smjörlíki og
sykur, bætið síðan eggjunum
út í og hrærið vel. Setjið hveiti,
lyftiduft, hjartarsalt, dropa og
mjólk saman við og hnoðið
annaðhvort í vél eða höndum.
Skiptið deiginu í fjóra hluta og
fletjið með kökukefli. Búið til
kleinur og snúið þeim. Steikið
þær í heitri feitinni þar til þær
verða gulbrúnar - gott er að
hafa helluna stillta á 2,5.