Uppeldi og menntun - 01.01.2012, Síða 5
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(1) 2012 5
frá ritstjóra
Í þessu hefti Uppeldis og menntunar eru fjórar ritrýndar greinar, fjórar styttri viðhorfs-
greinar og þrír ritdómar. Ritrýndu greinarnar eru um ólík efni á sviði menntunar-
fræða.
Viðhorfsgreinarnar eru um stöðu þroskaþjálfunar, bæði starfsins og náms í grein-
inni. Ritstjóri þeirra og jafnframt höfundur fyrstu greinarinnar í bálkinum er Guðrún
V. Stefánsdóttir, dósent í fötlunarfræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Í næsta hefti er ætlunin að birta sambærilegan bálk greina um stöðu íþróttafræða í
ritstjórn Kristjáns Þórs Magnússonar, aðjunkts við Menntavísindasvið.
Tímaritið birtir nú í fyrsta skipti svokallaðan ítardóm um bók, eða það sem á ensku
er gjarna nefnt essay review. Fyrirkomulagið er þannig að ýmist geta höfundar haft
frumkvæði að því að senda inn ítardóm eða tímaritið óskar eftir því við einhvern að
rita slíkan dóm. Í báðum tilvikum er dómurinn sendur til eins aðila utan ritnefndar
sem er beðinn að gefa álit og uppbyggjandi athugasemdir. Að þessu sinni er ítar-
dómurinn um eitt rit: Skýrslu Anne Bamford um list- og menningarfræðslu á Íslandi.
Jafnalgengt form ítardóma er að skrifað er um tvær til þrjár bækur, innlendar sem
erlendar, sem fjalla um líkt efni. Ritnefndin vonast til þess að í framtíðinni verði unnt
að birta fleiri slíka dóma. Einn ritdómanna er um erlent rit og mun það vera í annað
skipti sem tímaritið birtir slíka umfjöllun um bók á erlendu máli. Loks er ritdómur um
íslenska bók sem kom út í fyrra.
Tímaritið Uppeldi og menntun hlaut árið 2011 þá viðurkenningu að vera metið sem
svokallað 15 stiga tímarit í stigamatskerfi háskólafólks, því það uppfyllir nú 17 skil-
yrði af 18 sem tímarit eru metin eftir. Þetta er tímaritinu og okkur sem að því stöndum
hvatning til að halda áfram því góða starfi sem fyrri ritnefndir og ritstjórar byggðu
upp. Uppeldi og menntun er nú aðgengilegt á Tímarit.is og verður hvert hefti birt þar
ári eftir að það er gefið út á pappír.
Tímaritið hefur smám saman verið að færa sig yfir í það kerfi að höfundar skili
greinum þegar þeim hentar en miða síður við sérstakan skilafrest fyrir einstök hefti.
Enn er þó tilgreindur skilafrestur tvisvar á ári, þ.e. 1. mars og 1. september, en reynslan
sýnir að heppilegast er að höfundar skili greinum um leið og þær eru tilbúnar. Leið-
beiningar til höfunda og ritrýna og upplýsingar um frágang handrita eru á vef tíma-
ritsins, vefsetur.hi.is/uppeldi_og_menntun.
Ritnefnd og ritstjóri þakka öllum sem hafa lagt hönd á plóg við útgáfu þessa heftis:
höfundum, ónefndum ritrýnum, þeim sem sjá um útgáfuna, prenta tímaritið og dreifa
því til áskrifenda.
Þótt í erlendum tímaritum séu nöfn ritrýna iðulega birt í hverjum árgangi væri það
í mesta lagi hægt á margra ára fresti í tímariti sem kemur út tvisvar ári ef ekki ætti að
vera hægt að lesa út úr því hver ritrýnir hvað. Uppeldi og menntun á því láni að fagna
að fjöldi fólks er reiðubúinn að rýna greinar fyrir tímaritið og skilar því verki fljótt og
vel. Menntunarfræðin búa líka við það að margir stunda fræðastörf á þessu sviði og
að þau eru þverfræðilegs eðlis og því er oft hægt að leita til fólks sem formlega starfar