Hugur - 01.06.2011, Side 33

Hugur - 01.06.2011, Side 33
Natura docet 3i siðferðilega góðar eða réttar. Til þess að bregðast við þessari mótbáru er líklega best að skoða nánar hvað felst í hugmyndinni um ástæður að baki breytni.25 Við skulum ekki gleyma tveimur atriðum sem eru sérlega mikilvæg í þeirri útgáfu siðferðilegrar náttúruhyggju sem ég hef verið að reyna að draga fram. Fyrra atrið- ið er að þar er vísað í ástæður sem binda okkur í samviskunni. Seinna atriðið er að þær binda okkur vegna þess hversu sannfærandi og endanlegar þær eru. Það sem er svo einkennandi fyrir ástæður til illrar breytni er hversu léttvægar þær sýnast strax við fyrstu sýn; hvað þá við nákvæma rannsókn. Hlutlægni þeirra ástæðna sem við teljum binda okkur ræðst af því að þær snúast um möguleikann á því að við uppjyllum líf okkar í einhverjum skilningi - olckur standa til boða náttúruleg gæði.26 Skortur á og frávik frá slíkum tilvikum dæma oft betur en nokkuð annað um hversu sterkt náttúran talar til okkar.27 Astæður snúast vissulega um röklegan veruleika. Það er þó ekki hrein rökhyggja eða skynsemishyggja sem ég sé koma fram á nýöld. Auðvitað getur verið að ein- hverjir hafa talað um „hið rétta val“ sem „dregur okkur til sín“ á þann hátt að um hreina röksemdafærslu sé að ræða. Mig rámar í að einhverjir hafi sett fram rök- hendur um slíkt. En á hverju byggist þá þessi samviska sem við eigum að hlýða? Eg myndi halda að við þurfum að vera opin fyrir gildishlöðnum skilaboðum úr náttúrunni. Við þurfum að nálgast hana; ekki á bókstaflegan hátt heldur opna okkur fyrir einhvers konar umbreytingu á olckur sjálfum. Við þurfum flest að temja okkur að nálgast veruleikann á annan og merkingarbærari hátt. Hvað þetta atriði varðar er ekki óalgengt að fólk telji sig þurfa að feta veg trúar til þess að geta tekið við slíkri umbreytingu. Flest trúarbrögð bjóða þannig upp á einhverjar venjur og túlkunarfræðilegar hefðir sem ætlað er að gefa sambandi okkar við nátt- úruna djúpstæðari merkingu. Einföld borðbæn getur verið dæmi um slíkt.28 Eg hef skilning á þessari leið, en finnst hún þó (yfirleitt) standa í ákveðinni andstöðu við þá hugmynd úr nýöld sem ég er að velta upp hér. Samkvæmt henni er hugs- uninni ekki ætlað að taka við boðvaldi frá öðru en samspili innri og ytri náttúru. 25 Slíkar rannsóknir um „ástæður athafna" hafa gefið af sér mikla heimspeki sem ég get ekki farið út í hér. A tímabili í doktorsnámi mínu gat ég varla hugsað mér að hlusta á fleiri erindi sem byrjuðu eitthvað á þessa leið: „a. Herbert approves of action A, approves of approving of action Á, and disapproves of alternative versions of himself that do not approve of action A.“ Eg lærði þó að kunna að meta þau betur síðar. 26 Grein Róberts Jack „Leiðin að æðstu náttúru: Platon um stigskiptan þroska „ástarstigans““ leggur fram áhugaverða tilgátu um hvernig Samdrykkja Platons inniheldur vísi að stigskiptu þroska- módeli, fremur en „leiðarlýsingu að óræðri upphafningu". Sh'kur þroski er einmitt dæmi um þau náttúrulegu gæði sem ég nefndi. Mannleg náttúra og náttúruleg gæði tvinnast saman í ákveðnu ferli. 27 Heimspekingum er tamt að grípa til samh'kingar við heilsu þegar rætt er um fyrirbæri sem erfitt getur reynst að gera fúllnægjandi grein fyrir. Hvort sem viðfangsefnið er gagnrýnin hugsun eða náttúruleg gæði má grípa til þess ráðs að segja sem svo að fyrirbærinu svipi til heilbrigðis: við tökum helst eftir því þegar það er ekki til staðar. 28 Hvað þetta atriði varðar get ég fylgt John Cottingham áleiðis. Eg fæ þó ekki séð að „umbreyt- ingin" þurfi trúarlega vídd eins og hann hefúr gefið í skyn (Cottingham 2004: 23). Hann notar þó oft dæmi sem mér finnst býsna sannfærandi, þ.e. hvernig borðbæn sem athöfn getur umbylt sambandi okkar við náttúruna og opnað fyrir okkur merkingarþrunginn veruleika. Eg get þó ekki samþykkt að við þurfúm að þakka Guði fyrir okkar daglegt brauð og þannig viðurkennt gildi náttúrunnar; samvera við kvöldverðarborð þar sem viðstaddir sýna hvert öðru virðingu og við- urkenna með því hvað þarf til svo maturinn komist á borðið fyllir slíka stund nægum tilgangi.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.