Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Blaðsíða 75
Félagsmál VFÍ/TFÍ 73
Útgáfunefnd TFÍ og VFÍ
Utgáfumál Verkfræðingafélagsins, sem nefndin hefur umsjón með, hafa gengið vel og
áfallalaust á liðnu starfsári. I útgáfunefnd hafa starfað, frá VFI: Kristinn Andersen formaður,
Olafur Pétur Pálsson og Ragnar Ragnarsson, ritstjóri Arbókar; frá TFÍ: Einar H. Jónsson.
Blaðnefnd Verktækni var óbreytt frá fyrra ári, en þar störfuðu Kristinn Andersen frá VFÍ,
formaður, Einar H. Jónsson frá TFI og Arni Geir Sigurðsson frá SV auk ritstjóra. Öfluga og
reglubundna útgáfustarfsemi ber ekki síst að þakka Sigrúnu Hafstein, ritstjóra Verktækni, og
Ragnari Ragnarssyni, sem ritstýrir Árbók VFÍ/TFÍ. Þessi tvö rit hafa nú, eins og undanfarin
ár, verið þungamiðjan í útgáfumálum á vegum nefndarinnar.
Tólfta hefti Árbókar VFÍ/TFÍ, fyrir starfsárið 1999/2000, kom út í febrúar 2001 og átti
Ragnar Ragnarsson, ritstjóri bókarinnar, veg og vanda af henni. Árbókin er í einu bindi,
samtals 376 síður. Upplag bókarinnar var um 2000 eintök. Allir félagar VFÍ og TFÍ, sem
samtals eru um 1830, fá bókina senda heim og er hún innifalin í félagsgjöldum félaganna.
Kostnaður við Árbókina er að miklu leyti borinn uppi af auglýsingum og kynningargreinum
sem ritstjóri aflar.
Árbókin er að vanda efnismikil og með svipuðu sniði og undanfarin ár. Bókin hefst á
köflum um félagsmál TVÍ og VFÍ. Þá taka við kaflar um tækniannál 1999/2000 og kynn-
ingar stofnana og fyrirtækja. Ritrýndar greinar eru sex og aðrar tækni- og vísindagreinar eru
Ijórar. Þessar greinar gefa bókinni mikið gildi sem fræðirit og eins og í fyrri heftum Árbókar
gefa þær innsýn í þau verkefni sem fengist er við hverju sinni og eru til marks um það
tæknistig sem verkfræðingar og tæknifræðingar búa yfir á Islandi.
Nýlegar breytingar á blaðinu Verktækni, sem sameiginlega er gefið út af TFÍ, VFÍ og SV,
hafa mælst vel fyrir og má fúllyrða að útgáfa blaðsins sé einn meginþátta í starfsemi VFÍ.
Á liðnu starfsári var ákveðið að gefa blaðið út mánaðarlega, utan sumarmánaðanna, en áður
var blaðið gefið út á 3-4 vikna fresti. Með mánaðarlegri útgáfú er stefnt að frekari festu í
útgáfutímum og jafnframt verði unnið að eflingu efnisinnihald og stækkun blaðsins. Þá
fylgir mánaðarlegri útgáfu ýmislegt hagræði við vinnslu blaðsins. Sigrún Hafstein hefur rit-
stýrt blaðinu eins og undanfarin ár. Upplag blaðsins er 3000 eintök og því er dreift endur-
gjaldslaust til félagsmanna, en að auki er því dreift til ijölmiðla, auglýsenda og ýmissa
fyrirtækja og stofnana. Fjármál Verktækni hafa í meginatriðum gengið eftir áætlunum og eru
reikningar blaðsins fyrir árið 2000 endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda.
Útgáfunefnd TFÍ, VFÍ og SV
Kristinn Andersen formaður
Austurlandsnefnd TFÍ/VFÍ
Stofnfundur: Austurlandsdeildir TFI og VFI voru settar á stofn á fúndi á Hótel Héraði á
Egilsstöðum á vordögum 1999. Á fundinum voru menn valdir í stjórnir deildanna.
Strax í upphafí var ákveðið að stjómir deildanna myndu hafa náið samstarf og þær halda
stjórnarfundi sameiginlega.
Stjórnarfundir: Fyrsti stjórnarfundur Austurlandsdeilda TFÍ og VFÍ var haldinn í mars
2000. Byrjað var á að ljúka störfum stofnfundar og skipta störfúm með mönnum. Stjómimar
hafa fundað fímm sinnum.
Opnir fundir: í maí 2000 var staðið var fyrir fundi um samgöngumál og jarðgangagerð á
Austurlandi. Á fúndinum sagði Hreinn Haraldsson hjá Vegagerðinni frá ýmsum viðhorfúm