Verktækni - 15.08.1991, Qupperneq 25
nieiri orku, sem mun líklega fást með
næstu kynslóð af rafgeymum."
Gísli heldur því fram að rafmagnið
verði ofan á, sem orkugjafi fyrir bíla,
vegna þess að dreifikerfið sé fyrir
hendi. Hann sér fyrir sér að fólk hlaði
bíla sína um leið og það leggi þeim við
stöðumæla. „Þá setur fólk bílinn sinn í
sarnband við tengil í stöðumælinum
°g borgar fyrir rafmagn og stöðu.“
Hann segir að hvorki íslensk stjórn-
völd né rafmagnsveitur hér á landi
virðist hafa mikinn áhuga á að örva
notkun rafmagnsbíla. Hér sé lagður
þungaskattur á rafmagnsbíla og raf-
ntagnsveitur selji svokallað næturraf-
'nagn á allt of háu verði til þess að
notkun rafmagnsbíla borgi sig, borið
saman við verð á hefðbundnu elds-
neyti.
Gísli segist ennfremur hafa haft
áhuga á því að gera áframhaldandi
tannsóknir á notkun rafmagnsbíla á
íslandi eftir að hafa gert athuganir á
fyrsta bílnum. „Ég hafði áhuga á að fá
annan bfl, breyta venjulegum bíl hér
Éeinia þannig að hann hentaði full-
komlega íslenskum aðstæðum. En það
var útilokað að fá peninga til þess. Það
var alveg sama hvar ég drap niður
fæti. Samt bað ég ekki um meiri pen-
inga en samsvarar einum ráðherrabíl.
Þetta áhugaleysi varð til þess að ég lét
þetta niður falla og snéri mér að öðr-
um verkefnum," segir hann.
VETNI SEM ELDSNEYTI
FYRIR BÍLA
Vetni er einnig raunhæfur mögu-
leiki sem eldsneyti fyrir bifreiðar.
Daimler-Benz hefur gert miklar til-
raunir með vetni til að knýja áfram
bíla og rekur bílaflota í Berlín er geng-
ur fyrir vetni. Notað er vetnisgas sem
er bundið í svokallaða „málmsvampa“
eða „hydríð". BMW hefur einnig
hannað bíl, sem gengur fyrir fljótandi
vetni.
Þjóðverjar og Kanadamenn hafa
gert miklar rannsóknir á vetnisfram-
leiðslu og allt bendir til þess að vetni
verði notað sem eldsneyti fyrir vélar í
framtíðinni, t.d. flugvélar og þotur.
Vetni sem eldsneyti hefur ýmsa kosti.
Brennsla á vetni veldur sáralítilli
mengun, sem auðvelt er að koma í veg
fyrir. Þar að auki er vetni mjög kraft-
mikið eldsneyti. Ókosturinn er sá að
vetni er ennþá frekar dýrt í framleiðslu
miðað við annað eldsneyti.
ÍSLENSKAR TILRAUNIR
MEÐ LÝSI
Til gamans má geta að hér á íslandi
hefur Lýsi hf. gert tilraunir með lýsi
sem eldsneyti í stað gasolíu. Lýsi er
ágætt eldsneyti og var notað sem ljós-
gjafi öldum saman. 1 tilraun Lýsis h.f.
var notast við úrgangsþorskalýsi. Það
var látið á eldsneytistank Scania Vab-
is vörubifreiðar árgerð 1955. Vörubif-
reiðin gekk ágætlega fyrir lýsinu og
eldsneytiseyðslan var svipuð og um
gasolíu væri að ræða. Kraftur vélar-
innar var þó minni. Lýsið reyndist
einnig vera of þykkt í kulda og var
útbúinn spírall í eldsneytistank bílsins
og kælivatn hans notað til að hita
lýsið upp. í ljósi fenginnar reynslu var
látið lýsi á Scania Vabis vörubifreið
Lýsis hf. frá árinu 1980. Bifreiðin gekk
ágætlega en krafturinn var mun minni
en í gamla bílnum.
Tilraunir Lýsis hf. sýna að vel er
hægt að notast við lýsi sem eldsneyti
fyrir vélar, þ.á.m. bílvélar sem brenna
gasolíu. Vert er að gera áframhaldandi
tilraunir með notkun lýsis í þessum
tilgangi þó að innlent framboð á úr-
gangslýsi sé frekar lítið.
VERKTÆKNI 25