Verktækni - 15.08.1991, Qupperneq 29
ÚTFLUTNINGUR Á
RAFORKU UM
SÆSTRENG
Raunhæfur
möguleiki
— Orkuhópur framtíðarkönnunar
á vegum forsætisráðuneytisins spáði
bví fyrir fáum árum að verðmæti út-
flutnings á stóriðjuafurðum gætí orðið
ntjög svipað og verðmæti sjávarafurða
árið 2010. Sérðu fyrir þér að þessi spá
geti ræst?
„Ég tel ekki líklegt að hlutur stór-
iðjunnar verði alveg svo mikill. Þó fer
það að sjálfsögðu eftir markaðsað-
stæðum. Ég bendi á að sú viðbót við
stóriðjuframleiðsluna, sem felst í Atl-
antsáls'verkefninu, nernur um tutt-
ugu og fimrn milljörðum króna ef ég
tnan rétt. Við þurfum þó að fá rniklu
meiri útflutningsauka fram að alda-
mótum og fram yfir þau heldur en felst
í þessu verkefni. Ég er að vísu bjart-
sýnn á að út úr sjávarútveginum geti
komið veruleg viðbót með bættri nýt-
ingu fiskistofna, aukinni hagkvæmni í
rekstri og með hagkvæmari markaðs-
setningu á afurðunum, meðal annars
vegna hins nýja samnings um
evrópska efnahagssvæðið. Ferðaþjón-
usta mun líka skila tekjuauka.
Þá finnst mér mjög líklegt að um
aldamót verði útflutningur á raforku
um sæstreng að veruleika sem muni þá
að hluta koma í stað stóriðju. Tækn-
iþróunin á sviði orkuflutninga bendir
til þess að þetta gæti reynst raunhæfur
möguleiki. Þannig mætti vel írnynda
sér að það skiptust á hér á landi fram-
kvæmdir sem tengdust orkufrekum
iðnaði og framkvæmdir tengdar virkj-
unum sem hugsaðar væru til að flytja
út raforku um sæstreng. Það kynni að
vera hagkvæmt til langs tíma litið og
hæfilegra álag á hagkerfið að láta
þetta skiptast á.
Beinn raforkuútflutningur er þó að
sjálfsögðu háður orkuverði í heimin-
um. En miðað við það, sem menn sjá
nú fyrir, þá nálgast það mjög að þetta
fari ekki bara að verða tæknilega
framkvæmanlegt heldur líka fjárhags-
lega arðbært. En þá kemur alltaf upp
spurningin um það hvað við ætlum að
reikna með að fá mikla auðlindarentu
af vatnsorkunni."
— Nú tapast margfeldisáhrifin í
hagkerfinu að rniklu leyti ef orkan er
seld beint?
„Já, og við verðum að miða kröfuna
um afgjald fyrir orkulindirnar við það
hvaða fórnarkostnaður felst í því að
byggja á beinni sölu orkunnar, fremur
en nýtingu hennar í orkufrekum iðn-
aði. Viðmiðun samninga um slíka raf-
orkusölu verður augljóslega þessi sem
þú víkur að með spurningunni."
LÍT Á FRAMLEIÐSLU
VETNIS SEM
FRAMTÍÐARMÁL EN
EKKI AÐKALLANDI
ÚRLAU SN AREFNI
— I starfsáætlun ríkisstjórnarinnar
er talað um að halda áfram athugun-
um á framleiðslu vetnis sem orkubera.
VERKTÆKNI 29