Verktækni - 15.08.1991, Síða 31

Verktækni - 15.08.1991, Síða 31
iámmS Ekki hafa verið gerðir sanmingar við erlenda aðila um stóriðju síðan Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga tók til starfa. dreifingarkerfi á landsvísu, standi í r:>un og veru jafnt að vígi. Það skipu- ^ag höfum við ekki ennþá fundið. En það er verðugt verkefni að leita að því dl þess að framtak manna til þess að virkja geti notið sín. Þetta snertir grundvallarspurningar um það hver réttur til náttúruauðlinda skuli fylgja bújörðum og öðrum land- areignum og hver skuli talinn aÞ luannaeign. Ég er þeirrar skoðunar að háhitinn og djúphitinn eigi ekki sjálf- hrafa að tilheyra þeim sem á yfirborð Jarðarkringlunnar á þeim bletti sem hann er að finna. Svipuðu máli gegnir u>t> vatnsföllin og orkuna sem í þeim hýr — sem eiga upptök sín á afréttum °g almenningum. Hér skortir löggjöf. En það er einmitt eitt af því sem ríkis- st]órnin hefur sett sér að gera, að setja 'ög um eignarhald á afréttum, orkuh indum og verðmætum jarðefnum til þess að skilgreina þessi mörk. Þetta löggjafarefni, sem varðar að sjálfsögðu þær tilfinningar sem menn hafa um það hvað sé sameign þjóðarinnar og hvað ekki, hefur líka mjög praktískar afleiðingar fyrir nýtingu orkulind- anna. Til þess að geta gert skipulega áætlun um virkjun þeirra þarf sá aðili, sem leggur fram fé til rannsókna og undirbúnings, að vera nokkurn veg- inn viss um að hann geti hirt arðinn af virkjununum þegar þar að kemur og þurfi ekki að eyða mjög miklu fé í að kaupa upp réttindin af landeigendum — rétt sem þeir gætu aldrei nýtt sér vegna þess að þeir hafa hvorki boÞ magn né aðstöðu til þess að leggja í þær rannsóknir og þann kostnað sem þeim fylgir. Þetta er mjög mikilvægt mál því nú þurfum við einmitt að semja áætlanir um virkjun helstu orkulinda fram á næstu öld; skilgreina hvar og hvernig hagkvæmast sé að virkja og leita lausna sem gætu lækkað virkjana- kostnaðinn og hlíft náttúrulegu um- hverfi landsins. Sannleikurinn er sá að það er hægt að finna lausnir sem gera hvort tveggja í senn. í því sam- bandi má benda á það virkjunarfyrir- komulag sem nú hefur verið valið fyrir Fljótsdalsvirkjun. Það byggist á jarð- göngum f stað skurða sem í senn er ódýrara, styttir virkjunartímann og hlífir landinu miðað við þau áform sem áður voru uppi. Þetta eru verkefni fyrir okkar tæknimenntaða fólk, verk- efni sem skila raunverulegum ávinn- ingi.“ VERKTÆKNl 31

x

Verktækni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.