Verktækni - 15.08.1991, Qupperneq 40
Sveinn Frímannsson rafmagnstæknifræðingur:
Orkusparnaður
Sveinn Frímannson, rafmagns-
tæknifræðingur, sendi nýlega frá
sér bókina „Orkusparnaður,
handbók um skynsamlega orku-
notkun“. A hún að nýtast bæði
fyrirtækjum og heimilum í þeirri
viðleitni að draga úr orkunotkun
og kostnaði. Sveinn veitti VERK-
TÆKNI góðfúslegt leyfi til að birta
stuttan kafla úr bókinni sem fjallar
almennt um orkusparnað og fer
hann hér á eftir:
Hér á landi hefur ekki verið lögð
mikil áhersla á að spara orku. Hvatn-
ing til orkusparnaðar hefur einkum
snúist um að draga úr olíunotkun við
húshitun með því að bæta nýtni
kynditækja og bæta einangrun húsa.
Ástæða þessa er einkum sú að verð á
olíu hefur hækkað mikið á liðnum
tveimur áratugum. Verulegur árangur
náðist á þessu sviði og olíunotkun var
víða hætt og þess í stað farið að nota
rafmagn eða jarðhita. Þá eru nú í
byggingareglugerðum strangar reglur
um hitaeinangrun húsa.
Minna hefur verið gert til þess að
hvetja til sparnaðar á raforku eða
heitu vatni — ef til vill vegna þess að
þetta eru innlendir orkugjafar og
framboð þeirra oftast nægjanlegt. Af
hálfu þeirra sem framleiða og selja
þessa innlendu orkugjafa hefur auk-
inni eftirspurn eftir orku verið mætt
með því að auka framboðið og lítið
hirt um að leiðbeina notendum um að
takmarka notkunina. Hefur gjarnan
verið litið á það jákvæðum augum ef
orkunotkun hefur aukist. Orkunotk-
un hér á landi er með því mesta sem
um getur ef miðað er við íbúafjölda og
hefur það jafnvel verið talið til marks
um þá velmegun sem ríkir hér á landi.
Víða erlendis er þessu öfugt farið.
Þar er stjórnvöldum og orkuveitum
jafnt sem fyrirtækjum og heimilum
það kappsmál að draga úr orkunotkun
eins og frekast er unnt. Ástæðurnar
eru tvíþættar: orkugjafar verða sífellt
dýrari og einnig hitt að allri orku-
vinnslu og orkunotkun fylgir um-
hverfismengun sem draga verður úr
eins og kostur er.
Viðhorf orkuframleiðenda erlendis
gagnvart orkusparnaði eru nú þau að
jafngott sé að verja fé í áróður og
hvatningu til orkusparnaðar og draga
þannig úr aukinni eftirspurn eins og
að byggja ný orkuver og dreifikerfi til
þess að geta annað hinni auknu eftir-
spurn. Hingað til lands hefur þessi
nýja hugsun ekki náð enn sem komið
er. Ef að líkum lætur munu sjónarmið
umhverfisverndar varðandi orku-
vinnslu og orkunotkun vaxa hér á
landi sem annars staðar á næstu árum-
Á seinni árum hefur þó skilningur
orkunotenda og áhugi vaxið á því að
spara má orku og hugsar þá hver um
sinn hag. Þótt hér, í landi vatnsork-
unnar og jarðhitans, sé orkuverð sums
staðar lágt í samanburði við önnur
lönd fæst orkan þó ekki ókeypis. Ætla
Framhald á bls. 55
HLUTUR STORIÐJU
Við áramótin 1983-1984 samþykkti ríkisstjórn Steingríms
Hermannsonar að gerð skyldi umfangsmikil könnun á
framtíðarhorfum í landinu næsta aldarfjórðung á eftir.
Verkinu var skipt á sextán hópa eftir viðfangsefnum. Einn
hópurinn fékk það hlutverk að íjalla um orkubúskap ís-
lendinga og var skýrsla hans gefin út á bók fyrir fjórum
árum. Jakob Björnsson, orkumálastjóri, var formaður
Orkuhópsins, sem svo var nefndur, en einnig áttu sæti í
honum Birgir Arnason, hagfræðingur, frá Þjóðhagsstofn''
un, Hermann Sveinbjörnsson, deildarsú'óri, frá Iðnaðarráð-
uneytinu og Jón Vilhjálmsson, deildarstjóri Orkubúskapar-
deildar, frá Orkustofnun.
í lok skýrslunnar spá fjórmenningarnir því að stóriðja muni hafa
afgerandi áhrif á útflutningstekjur okkar í framtíðinni; jafnvel að hlut-
deild stóriðjuafurða í útflutningaframleiðslu árið 2010 gæti orðið næst-
um því sú sama og hlutdeild sjávarafurða, eins og lesa má út úr töflunni:
Tafla 1. Hlutdeild nokkurra afurðategunda í tekjum íslendinga af
vöruútflutningi 1985 og 2010.
1985* 2010
Upphæð Skipting % Upph
Stóriðjuafurðir
Sjávarafurðir
Annað
Samtals
’Utflutningstekjur í heild settar 1,000 og aðrar útflutningstekjur í hlut-
falli við það. Skipting útflutningatekna eftir afurðum er meðalskipting
áranna 1980-1984 til að útiloka áhrif skammtímasveiflna á skiptinguna.
Upphæð Skipting % Upphæð Skipting %
0,158 15,8 1,004 37,7
0,727 72,7 1,091 40,9
0,115 11,5 0,571 21,4
1,000 100,0 2,666 100,0
40 VERKTÆKNI