Neytendablaðið - 01.12.1983, Blaðsíða 62
röngum eða ófullnægjandi
upplýsingum í auglýsingum
eða með öðrum hætti, leið-
beiningarskyldu seljenda o.fl.
í sænsku lögin hafa verið tekin
upp ákvæði, sem miða að þvf
að stöðvuð verði sala á vörum,
sem kunna að valda tjóni á
mönnum eða munum (pro-
duktsákerhet). Ekki eru slík
ákvæði í lögum hinna þjóð-
anna. Margt bendir til þess, að
nauðsynlegt sé að hafa meira
eftirlit með slíkum vörum en
gert er.
Ósanngjarnir samningsskil-
málar. Svo sem áður segir hafa
stöðluð samningsform mjög
rutt sér til rúms í viðskiptalíf-
inu á síðari tímum. Oftar en
ekki eru skilmálar slíkra samn-
inga sniðnir eftir hagsmunum
annars aðilans. Neytendur
hafa verið varnarlausir gagn-
vart þessu og orðið að sæta
þeim kjörum, sem seljendur
ákveða þeim í hinum margvís-
legu samningsformum. Þetta
hefur leitt til þess, að talið
hefur verið nauðsynlegt að
vinna gegn notkun slíkra
samningsskilmála af opinberri
hálfu víða um lönd. Nokkur al-
þjóðleg samvinna mun hafa
verið um þetta. Sett hafa verið
sérstök lög til þess að uppræta
samningsskilmála, sem óhæfi-
legir teljast gagnvart neytend-
um, m.a. í Svíþjóð og Finn-
landi (sænsk lög frá 1971 með
síðari breytingum „om förbud
mot otillbörliga avtalsvillkor"
og 3. kafli finnsku laganna um
neytendavernd, sem ber yfir-
skriftina „reglering av avtals-
villkor“).
Neytendaumboðsmennirnir
fylgjast með framkvæmd lag-
anna og fylgja málum fram
samkvæmt þeim. Ekki eru sér-
stök lög um þetta efni í Dan-
mörku, en svonefnd almenn
regla í lögum um markaðs-
starfsemi er talin ná til óhæfi-
legra samningsskilmála og á
þeim grundvelli er unnið gegn
notkun þeirra.
Sala í heimahúsum o.fl. Á
Norðurlöndum hafa verið sett
lög, sem veita kaupendum í
„neytendakaupum" rétt til
þess að segja sig frá kaupum
innan tiltekins frests, þegar
viðskiptin fara fram utan
starfsstöðvar seljenda, þ.e.a.s.
við sölu í heimahúsum, á vöru-
sýningum, o.fl. Hér er um að
ræða svonefnd „hemförsáljn-
ingslag" í Svíþjóð, lög um
„angrefrist ved visse avtaler
om forbrukerkjöp“ í Noregi og
6. kafla finnsku laganna um
neytendavernd, en þessi kafli
ber yfirskriftina „hem- og post-
försáljning av konsumtion-
svara“. í Danmörku mun sölu-
starfsemi við heimili svo og
símaprang nú vera óleyfilegt
með nokkrum undantekning-
um.
Samningalög. Ógildingará-
kvæði almennra samningalaga
hafa verið rýmkuð þannig, að
einstökum viðskiptum, sem
fara í bága við allsherjarréttar-
legar reglur til verndar neyt-
endum, er nú hættara við
ógildingu en áður.
Neytendakaup. Sökum þess,
að talið var, að almenn lög um
lausafjárkaup veittu neytend-
um ekki nægilega vernd vegna
mikilla breytinga á öllum við-
skiptaháttum, var í það ráðist
að setja sérstök ákvæði til þess
að tryggja hagsmuni kaupenda
í svokölluðum „neytendakaup-
um“, sem nánar eru skilgreind
í lögunum. Nokkuð misjafn-
lega hefur verið staðið að laga-
setningu um þetta á Norður-
löndum. Sérstök lög hafa verið
sett um þetta efni í Svíþjóð, en
í Noregi hefur gildandi lögum
um lausafjárkaup verið breytt.
Fleiri leiðir hafa verið farnar í
þessum efnum, en allt að einu
eru þessar reglur svipaðar,
enda er stefnt að sama marki.
Of yfirgripsmikið yrði að
gera hér grein fyrir þessum
reglum í einstökum atriðum.
Verður látið nægja að lýsa
þeim almennt svo, að aðal-
áherslan sé lögð á að tryggja
kaupendum í „neytendakaup-
um“ viss lágmarksréttindi með
ófrávíkjanlegum reglum, en
eins og kunnugt er þá eru
ákvæði laga um lausafjárkaup
frávíkjanleg eða með öðrum
orðum þau gilda aðeins sé ekki
sérstaklega um annað samið.
Þessar nýju reglur hafa skipt
miklu máli fyrir réttarstöðu
neytenda í einstökum við-
skiptum þeirra.
Afborgunarkaup o.fl. Lög
um afborgunarkaup voru fyrst
sett á Norðurlöndum í byrjun
þessarar aldar. Lögin voru síð-
ar endurskoðuð og endurbætt.
Þessi málefni hafa á síðustu
árum enn verið í endurskoðun
og ný lög sett. Þau lög taka
ekki aðeins til afborgunar-
kaupa eins og áður heldur
einnig kaupa, sem fjármögnuð
eru með lánsfé frá 3ja aðila
fyrir tilstuðlan eða milligöngu
seljenda eða samkvæmt samn-
ingi milli kaupanda og lánveit-
anda um lánsheimild að
Neytenciur hafa misst fótfestu og tapað allri yfirsýn í stórauknu vöruframboði, lækninýjungum og auglýsing-
arskrumi.