Neytendablaðið - 01.04.1998, Qupperneq 8
Buddan og umhverfið
bensínstöðvum eru oft óná-
kvæmir.
• Athugaðu mánaðarlega
vökva á sjálfskiptingu,
bremsukerfi og stýrisbúnaði.
Skortur getur valdið óþarfa
eldsneytisbrennslu og minnk-
aröryggi.
• Athugaðu bremsukerfi ár-
lega. Láttu taka öll hjól undan
og gaumgæfa búnaðinn.
• Skiptu á tveggja ára fresti
um vökva á sjálfskiptingu og
bremsum, sem og síur.
Vistvænt aksturslag
Lítils háttar breyting á
meðferð bensínbílsins er fljót
að borga sig: Noti hann 7,2
1/100 km og fari 15 þúsund
km á ári (algeng viðmiðun) er
það um 20 þúsund krónum
ódýrara en ef hann eyðir 9
lítrum á hundraðið.
• Láttu bílinn vinna á sem
hagstæðastan hátt fyrir þig og
umhverfið. Taktu það rólega
og skiptu skynsamlega milli
gíra. Hagkvæmast er að aka á
sem jöfnustum hraða og nota
hæsta gírinn sem unnt er
hverju sinni.
• Notaðu þá gerð eldsneytis
sem hentar bflnum og fram-
leiðandinn segir fyrir um.
Ekkert er unnið við að nota
eldsneyti með hærri eða lægri
oktantölu en bfllinn er gerður
fyrir.
• Tilkeyrðu nýjan bfl var-
lega, aktu aldrei með bensfn-
gjöfina í botni fyrstu 1500
kflómetrana.
• Aktu rólega af stað og
auktu hraðann jafnt og þétt en
ekki í rykkjum. Meðan þú
eykur hraðann úr 32 í 64
km/klst. eyðirðu meira bens-
íni en á stöðugum 88 km
hraða. Eldsneytiseyðsla á 90
km hraða er um 20% meira en
á 70 km hraða.
• Hugsaðu um bensíngjöf-
ina sem opinn eldsneytis-
krana. Því meira sem þú stíg-
ur á hana, þeim mun meiri
eyðirðu. Bíllinn verður þér
ódýrari og mengar minna ef
þú heldur sem lengst stöðug-
um hraða. Hagkvæmasti og
vistvænasti ökuhraðinn er
48-88 km.
• Aktu í hæsta gír sem að-
stæður leyfa og hraðanum
8
Reiknað er með
að á næstu 10
árum fjölgi bílum
á jörðinni
um 30%
hæfir. í lágum gírum notar
bíllinn allt að 50% meira elds-
neyti ep í háum.
• Dreptu á bílvélinni ef þú
staldrar við, lendir í umferðar-
hnút eða veist að þú þarft að
bíða. Hægagangur í 30-60
sekúndur eða lengur eyðir
meira eldsneyti og veldur
meira sliti vélar en ef hún er
ræst að nýju.
• Notaðu kúplinguna að-
eins þegar nauðsyn krefur og
þá eins stutt og unnt er. Settu
bílinn í hlutlausan þegar þú
bíður eftir umferðarljósum
eða þarft að stansa um stund,
til dæmis í brekku, til að forð-
ast ótfmabært slit.
• Sé ekki sjálfvirkt innsog
á bílnum skaltu aðeins nota
það meðan nauðsynlegt er.
Mikið innsog eykur eldsneyt-
isnotkun og veldur sliti á vél-
inni því að um leið þvost inn-
an úr stimpilhólfunum olíur
sem eiga að smyrja núnings-
fleti.
• Forðastu að nota brems-
urnar of mikið eða harkalega
þvf að það veldur ótímabæru
sliti og kostnaði, og þá þarf
oftar að auka hraðann að nýju
og brenna auknu eldsneyti.
• Þyngdu bflinn ekki að
óþörfu. Geymdu ekki annað
en það nauðsynlegasta í skott-
inu og sætunum. Ohreinindi
og klaki á undirvagni geta
sigið í. Aukin þyngd eykur
eldsneytiseyðslu.
• Loftmótstaða og núning-
ur bílhluta auka eyðsluna.
Fjarlægðu af toppi bílsins far-
angursgrindur og haldara fyrir
reiðhjól, skíði, bretti eða ann-
að meðan slíkt er ekki í notk-
un. Farangursgrind á bílþaki
getur ein saman aukið elds-
neytiseyðsluna um allt að
12% við 100 km aksturshraða
vegna loftmótstöðu. Opnir
gluggar auka hana einnig.
Klaki getur þrengt að dekkj-
um og ásamt óhreinindum á
undirvagni dregið úr afkasta-
getu.
• Forðastu stuttar ferðir á
bílnum, þá er eldsneytiseyðsl-
an feiknarlegust, sérstaklega á
veturna eða í köldu veðri þeg-
ar innsogið er yfirleitt á.
Mengun frá bílnum er í há-
marki í slíkum akstri. Skyn-
samlegra er að sameina erindi
í eina ferð en fara margar
styttri, það eykur til dæmis
virkni hvarfakútsins en hún
hefst vart fyrr en eftir 3-5 km
akstur.
• Skipuleggðu ferðir
þannig að þú akir þegar um-
ferð er hvað minnst. Það eyk-
ur eldsneytiseyðslu stórlega
að þurfa að laga sig að mis-
munandi hraða, stöðva og
taka af stað aftur. Veldu bein-
ar brautir frekar en krókóttar
til að draga úr hraðabreyting-
um og stansi.
• Þegar þú ferð upp brekk-
ur skaltu halda þig á stöðug-
um hraða í hæsta gír sem unnt
er. Ef þú neyðist til að skipta
niður í lægri gír skaltu ekki
gefa í til að reyna að halda
sama hraða heldur minnka
bensíngjöfina og aka hægar.
• Notaðu skriðþunga bfls-
ins og láttu hann renna í hlut-
lausum gír niður brekkur sem
ekki eru mjög brattar eða ef
fyrirsjáanlegt er að þú þarft
bráðlega að stansa, til dæmis
á rauðu ljósi.
• Láttu bflinn ekki spóla.
Ef þú getur ekki komið hon-
um af stað í snjó, hálku, vatni
eða drullu skaltu ekki reyna
að rykkja honum lausum
heldur jugga honum varlega í
lágum gír áfram eða aftur á
bak. Stígðu til skiptis varlega
á bensíngjöfina og léttu á
henni til að koma honum á
hreyfingu og auktu hraðann
hægt.
Framtíðin
Reiknað er með að á næstu 10
árum fjölgi bílum ájörðinni
unt 30% og vegir lengist um
3%. í Kaliforníu, þar sem bar-
áttan gegn hvers konar loft-
mengun hefur verið hvað
hörðust, er miðað við að árið
2003 verði 10% bifreiða út-
búnar þannig að þær mengi
andrúmsloft ekkert með af-
gasi. Víða eru uppi svipaðar
hugmyndir. Og umhverfis-
verndarstefnan knýr bflafram-
leiðendur til viðbragða. Þeir
leggja nú áherslu á að kynna
létta óg sparneytna bíla sem
menga minna en eldri gerðir.
Stærstu bílaverksmiðjur
heims, General Motors,
kynntu í upphafi ársins nýja
línu rafmagnsbíla og spá því
að tímabili sprengihreyfilsins
muni ljúka innan 20-30 ára.
Honda hefur hannað nær
mengunarlausan bensínbfl.
Toyota og Mitsubishi hafa
verið í fararbroddi í fram-
leiðslu þunnbruna-bílvélanna.
Toyota, Nissan og Chrysler
eru að kynna eða setja á
markað svonefnda fjölorku-
bíla eða „tvinnbfla“ þar sem
hægt er að skipta yfir í raf-
magn í innanbæjarumferð en
eldsneyti á langferðum sem
nýtast þá til að hlaða
geymana. BMW er að þróa
bfl sem gengur fyrir lífrænu
gasi eða vetni. Ford,
Mercedes Benz og Toyota
hafa hannað bíla sem nota
efnarafala (eldsneytissellur)
með metanóli en það breytist í
vetnisgufu sem blandast súr-
efni og við það verður til raf-
hleðsla sem notuð er til að
knýja ökutækið. General
Motors ætlar að setja slíkan
bfl á markað árið 2001 og,
fjölorkubfl 2004.
Öllu þessu munu fylgja
miklar breytingar í fjárfest-
ingum og þjónustu. Og eitt er
víst: Þegar gagnrýnin á bfla-
mengunina minnkar beinist
athyglin í síauknum mæli að
annars konar mengun eins og
frá skipum, verksmiðjum og
stóriðju. Þar kunna Islending-
ar að mæta auknum vanda-
málum.
Heimildir: Bjöm Péturssoni fulltrúi
hjá FÍB; Ökuþór, tímarit FÍB 1/1994,
16-17, 1/1996, 6-7, 2/1997, 22-23;
sölumenn bifreiðaumboða; heimasíð-
ur olíufélaganna: (http://www -
olis.is, shell.is, esso.is); Vegagerðin;
Skráningarstofan hf.; Fjármálaráðu-
neytið; Consumer Reports júlí 1996,
okt. 1997; Páll Guðjónsson, Hjólhest-
urinn 2/1996; heimasíða fslenska
fjallahjólaklúbbsins,
http://www.mmedia.is/~inik; The
Economist: The World in 1988;
Björn Malmquist, Morgunblaðið 18.
jan. 1998, 2D; Morgunblaðið 20. jan.
1998, 30-31.
NEYTENDABLAÐIÐ - apríl 1998