Neytendablaðið - 01.06.1999, Blaðsíða 14
Frá samstarfsverkefni Neytendasamtakanna og ASÍ-félaga á höfuðborgarsvæðinu
Fjármálaþjónusta í síma og á
Netinu - þægileg og örugg
Með nýrri tækni er hægt að
annast öll almenn banka-
viðskipti með einu símtali eða
með því að nota Intemetið.
Mikil hagræðing fæst með
þessum nýju viðskiptaháttum.
Viðskiptavinimir þurfa ekki
lengur að gera sér ferð í bank-
ann og spara því bæði tíma og
peninga. Bankaþjónusta um
Netið og í gegnum síma eykst í
sífellu og verður forvitnilegt að
fylgjast með þessari þróun í
bankaviðskiptum. Netbanki er
byggður upp á sama hátt og
hefðbundinn banki, nema hvað
að hann þarf ekki að reka fjölda
af útibúum um allt land. í raun
er útibúið aðeins ein vefslóð.
Samstarfsverkefni Neytenda-
samtakanna og ASÍ-félaga á
höfuðborgarsvæðinu hefur
kynnt sér betur þá möguleika
sem eru í boði og fullyrðir að
engin ástæða er fyrir neytendur
að óttast þessa tegund þjónustu.
Hún er í raun bæði auðveld og
örugg, en um leið þægileg fyrir
neytendur og getur líka verið
hagkvæm.
Símaþjónusta
Allir bankar og sparisjóðir
bjóða viðskiptavinum sínum þá
þjónustu að geta hringt til þjón-
ustufulltrúa sinna og sent þeim
tölvupóst eða fax. íslandsbanki,
Landsbanki og Sparisjóður
Reykjavíkur og nágrennis
bjóða einnig sérstaka símaþjón-
ustu í gegnum þjónustuver. Þá
reka bankar og sparisjóðir
einnig sameiginlegan þjónustu-
síma hjá Reiknistofu bankanna.
Þjónustusími
Reiknistofu bankanna
Allir bankar og sparisjóðir eiga
aðild að þessum sérstaka þjón-
ustusíma þar sem símaþjónust-
an er tölvukeyrð. Ekki er um
persónulega þjónustu að ræða
og til að fá aðgang að þjónustu-
símanum þurfa viðskiptavinir •
bankans að tiltaka sérstaklega
þá reikninga sem þeir vilja fá
aðgang að, ásamt því að skrá
14
leyninúmer. í þjónustusímanum
er hægt að fá upplýsingar um
stöðu og færslu á reikningum,
millifæra á eigin reikninga,
millifæra af eigin reikningum
inn á reikninga annarra sam-
kvæmt skriflegri beiðni og
greiða af skuldabréfalánum.
Þjónustusíminn er opinn allan
sólarhringinn. Hægt er að milli-
færa og greiða af lánum kl.
7-19 alla virka daga. Saman-
lagðar skuldfærslur á reikning
eru að hámarki 250.000 kr. á
sólarhring. Þjónustusíminn hef-
ur grænan síma, 800 4444.
Þjónusta
Bæði bankar og sparisjóðir
bjóða svipaða þjónustu í síma-
verum sínum. I flestum tilvik-
um er veitt öll almenn þjónusta
sem hægt er að fá í útibúum.
Allir
A Leyninúmer skilyrði fyrir af-
greiðslu.
▲ Millifærsla milli eigin reikn-
inga og á aðra reikninga, lfka
í öðrum bönkum (hjá SPRON
þarf að gefa skriflegt leyfi).
▲ Fá uppgefna stöðu reikn-
inga.
A Greiða Visa og Eurocard.
▲ Greiða gíróseðla.
▲ Panta gjaldeyri.
A Fá upplýsingar um þjónustu.
A Tilkynna glötuð kredit- og
debetkort.
A Fjármálaráðgjöf.
A Fá upplýsingar um vaxtakjör.
A Upplýsingar um erlenda
gjaldmiðla.
A Aðstoð við notkun heima-
banka.
íslandsbanki og SPRON
A Stofna reikninga - í SPRON
er þó ekki hægt að stofna
tékkareikning.
A Hægt er að sækja um yfir-
dráttarheimild.
A Greiða af skuldabréfum.
A Greiða alla greiðsluseðla.
A Endurnýja debet- og kredit-
kort.
A Hægt að endurnýja og inn-
leysa verðbréf hjá VÍB hjá
símaþjónustu íslandsbanka.
A Hægt að endumýja og inn-
leysa verðbréf hjá Kaupþingi
hjá þjónustuveri SPRON.
Islandsbanki og Landsbanki
ATilkynna glataðar sparisjóðs-
bækur.
íslandsbanki
A Panta debet- og kreditkort.
Islandsbanki
Hjá íslandsbanka er síma-
þjónustan opin er kl. 8-19 alla
virka daga í síma 575 7575.
Hægt er að sannprófa að spurt
hafi verið um leyninúmer þar
sem aðgerðin er skráð í tölvu-
kerfi bankans. Leyninúmerið
fær fólk við stofnun reiknings
eða síðar með því að framvísa
persónuskilríkjum í einhverju
útibúa bankans. Viðskiptavin-
imir geta sjálfir valið sér leyni-
númer og breytt því að vild í
þjónustusímanum. Til að stað-
festa pöntun debet- og kredit-
korta þarf viðkomandi að fara í
útibúið og framvísa persónu-
skilnkjum. Viðskiptavinimir
greiða ekki sérstaklega fyrir
þjónustu símaþjónustunnar um-
fram það sem er í útibúunum.
Að fá senda kvittun kostar 60
krónur, að leggja inn á reikn-
inga í öðrum bönkum kostar 55
krónur, debetkortafærsla kostar
9 krónur og tékkafærsla eða út-
tekt kostar 19,60 krónur nema
millifært sé milli reikninga
sama eiganda, sem er frítt.
Gjaldfrjálst er að millifæra á
milli eigin reikninga og milli
þeirra reikninga sem viðkom-
andi er með prókúru á.
Landsbankinn
Þjónustuver Landsbankans er
opið frá 9-19 alla virka daga og
er síminn 560 6000. Að milli-
færa yfir á reikninga í öðrum
bönkum og millifærsla á reikn-
inga annarra innan Landsbank-
ans kostar 80 krónur við fyrstu
færslu, kvittun innifalin, en all-
ar færslur eftir það kosta 40 kr.
ef þær em í sömu úttekt. Gjald-
frjálst er að millifæra á milli
eigin reikninga og milli þeirra
reikninga sem viðkomandi er
með prófkúru á. Til að fá upp-
lýsingar eða millifæra verður
viðkomandi að vera með leyni-
númer þess reiknings sem í hlut
á.
Sparisjóður Reykjavíkur
og nágrennis
Þjónustuverið er opið kl. 8-19
alla virka daga og er síminn
550 1400. Gulldebetkorthafar
geta fengið skuldabréf allt að
600.000 krónur til allt að
þriggja ára í gegnum þjónustu-
verið. Önnur skuldabréf með
sjálfskuldarábyrgð er hægt að
samþykkja og útbúa í þjónustu-
verinu, en þau þarf lántakandi
að sækja og skrifa undir ásamt
lánsumsókn. Leyninúmerið
fylgir reikningnum þegar hann
er stofnaður, en einnig er hægt
að gera það síðar ef þess er
óskað. Hjá þjónustuverinu kost-
ar millifærsla 60 krónur og
staðfesting 50 krónur.
Sparisjóður Hafnarfjarðar
Sparisjóður Hafnarfjarðar er að
undirbúa opnun þjónustuvers
sem verður áþekkt þeim þjón-
ustuverum sem nú starfa.
Heimabankar
á internetinu
Allir bankar og sparisjóðir
bjóða nú bankaþjónustu á Inter-
netinu þar sem hægt er að fá
þjónustu allan sólahringinn alla
daga vikunnar. Hægt er að
sinna öllum almennum banka-
viðskiptum hvenær sólarhrings-
ins sem er frá eigin tölvu. Hægt
er að sækja um þjónustuna á
heimasíðum íslandsbanka og
Landsbanka en fara verður í
útibú til að sækja leyninúmerið.
Hjá Búnaðarbankanum og
Sparisjóðunum verður að fara í
útibú til að sækja um aðgang að
banka á Netinu.
Engin færslugjöld eru í net-
bönkunum þannig að allar að-
gerðir þar eru notendum að
kostnaðarlausu. Bankarnir eru
einnig með ýmis tilboð varð-
NEYTENDABLAÐIÐ - júní 1999