Neytendablaðið - 01.05.2001, Blaðsíða 6
Gæðakönnun
Geisladiskaskrifarar
- síbatnandi þarfaþing
Gæði geisladiskaskrifara hafa
stórbatnað á fjórum árum.
Þeir eru mestu þarfaþing fyrir
tölvunotendur og tónlistar-
áhugafólk en geisladiskamir
eru býsna viðkvæmir.
Geisladiskaskrifarar eru
notaðir til að taka afrit af staf-
rænu efni, hvort sem það eru
tölvugögn, myndir eða hljóð.
Þeir eru mikil þarfaþing og
mörgum tölvunotendum
nauðsynlegir en ekki síst not-
aðir til að útbúa geisladiska
með tónlist. Seljendur láta
geislaskrifara stundum fylgja
nýjum tölvum en tiltölulega
auðvelt og fljótlegt er að setja
þá í. Hér fást um 30 gerðir á
verðbilinu um 14-65 þús. kr.
(Sjá nánar markaðskönnunina
á www.ns.is.)
Geisladiskarnir undir gögn
eru ódýrir, kosta innan við
100 og upp í nokkur hundruð
kr. stykkið. A hvern disk er
samt hægt að vista feikna
magn af gögnum, yfirleitt 650
MB sem er um 460 sinnum
meira en kemst á venjulegan,
harðan diskling. A ódýrustu
diskana (CD-R) er aðeins
hægt að skrifa einu sinni en
hinir dýrari (CD-RW) eru
enduráritanlegir (endurskrif-
anlegir). Verð geisladiska fer
einnig eftir endingu þeirra og
gæðum, þeir eru viðkvæmir
og tölvur og geisladiskaspilar-
ar geta iðulega ekki lesið
diska sem hafa skemmst smá-
vægilega.
Geisladiskaskrifarar eru
líka oft kallaðir geislaskrifar-
ar, geislabrennarar eða geisla-
diskabrennarar (CD-writers,
CD-burners). Þeir eru ýmist
festir inn í tölvur (innbyggðir,
innværir) eða standa lausir og
eru þá tengdir tölvunum með
kapli (utanáliggjandi, útvær-
ir). Með innbyggðum skrifur-
um fæst almennt meira fyrir
peningana, þeir eru hraðvirkir
og áreiðanlegir í notkun.
Gæðakönnunin
í gæðaprófum á geislaskrifur-
um gekk mikið á en útkoman
var jákvæð: Næstum hver ein-
asti skrifari og mestallur hug-
búnaður sinnti verkum sínum
rétt og vandræðalaust. Alltaf
gekk eins og í sögu að fram-
kvæma það algengasta og
þýðingarmesta sem geisla-
skrifurum er ætlað, að afrita
geisladiska með tónlist og
taka öryggisafrit af tölvu-
gögnum.
Hraði skrifara er miðaður
við hve hratt hann skrifar
miðað við þann tíma sem það
tekur að lesa, nota eða hlusta
á gögnin. Hraðastuðullinn 1
samsvarar á CD-R og CD-
RW 150/KBásek. ÁDVD
samsvarar stuðullinn 1 hins
vegar gagnastreymi upp á
1,35 MB/sek. Hraðinn er í
auglýsingum og kynningum
yfirleitt gefinn upp sem talna-
röð með skástrikum á milli
eins og hér: 16/10/40. Þetta
merkir að skrifarinn skrifar á
CD-R diska á 16-földum
hraða, á CD-RW á tíföldum
hraða og les CD-diska á 40-
földum hraða.
Betri tækni en áður
I fyrstu gæðakönnunum evr-
ópskra neytendablaða á
geislaskrifurum árið 1997
tókst afar misjafnlega að
skrifa áfallalaust með þeim á
diskana og þar var meira um
úrkast en gæði. Núna heppn-
uðust eiginlega allar tilraunir
með skrifarana. Munaði þar
mestu um nýja tækni sem
nefnd er á ensku ýmist „burn-
proof ‘ eða „just link“. Bestu
skrifararnir stjórna geislanum
með henni þannig að lítil
hætta er lengur á því að
geisladiskarnir „brenni við“.
Tæknin sér til þess að óað-
finnanlega skrifist á diskinn
þó að gagnastreymið rofni um
stundarsakir, t.d. ef annað for-
rit er ræst á meðan. Þetta ger-
ist með því að geislaskrifarinn
setur alltaf hluta af verkefnum
sínum í biðminni (buffer).
Það er því kostur að hafa mik-
ið innra minni í skrifaranum.
I gæðaprófum á skrifurum
með þennan búnað var reynt
að ofbjóða honum með því að
opna Word, Excel og Internet
Explorer 10 sinnum hvort um
sig meðan þeir voru að afrita
á diska. Með þessu tókst að
láta PC-tölvuna frjósa, forritin
komu með villuboð og ljós-
merkin á geislaskrifurunum
sýndu að þeir voru hættir að
skrifa. Starfsemi forritanna
var stöðvuð á venjulegan hátt
með „Task Manager“
(Ctrl+Alt+Delete) - og þá
héldu skrifarnir áfram að
skrifa eins og ekkert hefði í
skorist og skiluðu af sér not-
hæfum geisladiskum.
Diskagallar magnast
Innbyggðir skrifarar voru
sannfærandi í gæðaprófunum,
þeir unnu hratt og örugglega.
Undantekningin var Yamaha
CRW 2100 en við tónlistaraf-
ritun framkallaði hann fleiri
villur (block errors) en allir
hinir skrifararnir samanlagt.
Að meðaltali gerði hann 500
gagnavillur á sekúndu en það
er þó innan marka því spilarar
ráða við að hoppa yfir 800
gagnavillur á sek. Enda
heyrðist ekkert athugavert
þegar hljómdiskar úr honum
voru spilaðir. En hins vegar
magnast áhrifin af slíkum
göllum smám saman við
hverja smárispu eða fingrafar
sem kemur á diskinn svo að
tónlistin af honum kann að
þagna skyndilega síðar meir.
Aðrir skrifarar en Yamaha
voru skínandi góðir í þessu
efni og gerðu minna en 20
gagnavillur á sek. Það merkir
að þeir skapa betri vörn gegn
slæmum afleiðingum af risp-
um og óhreinindum.
Markaðskönnunin er á www.ns.is
Um 30 gerðir af geisladiskaskrifurum feng-
ust hérlendis þegar Neytendablaðið gerði
markaðskönnun í apríl. Innbyggðir skrifarar
voru rúmlega 25 og á verðbilinu um 14-60
þúsund kr. en sex utanáliggjandi skrifarar
fengust á 29-65 þús. kr.
I markaðskönnuninni koma fram eftir-
taldir þættir:
Staðgreiðsluverð
Framleiðandi
Framleiðsluland
Skrifhraði á CD-R
Skrifhraði á CD-RW (endurskriO
Leshraði
Hvaða tengi fylgja?
Hvaða hugbúnaður fylgir?
Athugasemdir
Markaðskönnunin er á vef Neytendasamtak-
anna www.ns.is
Lykilorð að könnunum er „neytandi".
6
NEYTENDABLAÐIÐ - maí 2001