Neytendablaðið - 01.05.2001, Blaðsíða 22
Neytendaréttur
Mikilvægar úrbætur
á neytendalöggjöf
Alþingi samþykkti á síðasta þingi mikilvægar úrbætur á neyt-
endalöggjöf. Um er að ræða ný lög um þjónustukaup og ný
kaupalög sem hafa verið endurskoðuð frá grunni en lög þessi
taka gildi 1. júní næst komandi.
Lög um þjónustukaup
Samþykkt hafa verið á Al-
þingi lög um þjónustukaup
sem taka gildi þann 1. júní
næstkomandi. Lög þessi eru
mikil réttarbót fyrir neytendur
en hingað til hafa ekki verið
til nein sérstök lög um kaup á
þjónustu. Lög þessi eru ófrá-
víkjanleg á þann veg að
óheimilt er að semja um lak-
ari rétt til handa neytendum
en kveðið er á um í lögunum.
Hvaða þjónusta fellur
undir lögin?
Lögin gilda um hvers kyns
samninga um kaup á þjónustu
sem veitt er neytendum í at-
vinnuskyni þegar þjónustan
felur m.a. í sér vinnu við
lausafjármuni eins og bif-
reiðaviðgerðir, vinnu við fast-
eignir, t.d. við pípulagnir,
geymslu á lausafjármunum
eins og búslóðageymslu, og
ráðgjafarþjónustu í tengslum
við vinnu við fasteignir, t.d.
þjónusta arkitekts.
Leiðbeiningarskylda
seljanda
í lögunum er lögð ákveðin
upplýsinga- og leiðbeininga-
skylda á seljanda þjónustu.
Þannig ber seljanda að upp-
lýsa neytandann um það hvort
kaup á þjónustunni t.d. við-
gerð á hlut sé hagkvæm eða
ekki með hliðsjón af verðgildi
hlutarins. Ef seljanda verður
það ekki ljóst fyrr en vinna er
hafin verður seljandi að til-
kynna neytandanum um þetta
svo hann geti tekið ákvörðun
um framhaldið. Ástæða þess-
arar leiðbeiningarskyldu selj-
anda er sú að aðili sem hefur
atvinnu af að selja þjónustu
sína á grundvelli fagþekking-
ar er betur fær en neytandinn
til að gera sér grein fyrir hvort
það svari kostnaði að vinna
verkið. Einnig er í lögunum
kveðið á um það að ef upp
kemur sú staða eftir að verk er
hafið að nauðsynlegt sé að
vinna viðbótarverk verður
seljandi þjónustunnar að gera
neytandanum grein fyrir því
og óska eftir fyrirmælum hans
um verkið.
Galli á seldri þjónustu
í lögunum er tiltekið hvenær
þjónusta telst gölluð en það er
m.a ef árangur af verki stenst
ekki þær almennu kröfur sem
gera má til útseldrar þjónustu
í atvinnuskyni eða hún víkur
frá almennum öryggiskröfum.
Þjónusta er einnig gölluð ef
hún er ekki í samræmi við
samning aðila. Seld þjónusta
getur jafnframt verið gölluð ef
seljandinn gefur rangar eða
villandi upplýsingar í auglýs-
ingum eða lætur ekki neyt-
anda í té upplýsingar sem
hann vissi um og þýðingu
hafa fyrir framkvæmd verks-
ins.
Neytandi á rétt á að selj-
andi bæti úr gallanum nema
það valdi seljandanum óhæfi-
lega miklum kostnaði eða
verulegu óhagræði. Jafnframt
getur seljandi krafist þess að
fá að bæta úr gallanum ef
hann gerir það innan sann-
gjarns frest og án kostnaðar
eða verulegs óhagræðis fyrir
neytandann. Ef þjónusta er
gölluð getur neytandinn kraf-
ist afsláttar frá verði þjónust-
unnar sem svarar til gallans.
Ef veittri þjónustu er verulega
áfátt miðað við tilgang verks-
ins og þjónustu sem fyrirhug-
að var að kaupa getur neyt-
andinn rift samningnum að
öllu leyti eða þeim hluta
verksins sem ólokið er. Verði
neytandi fyrir tjóni vegna
gallaðrar þjónustu á hann rétt
á skaðabótum nema seljandi
sýni fram á að gallinn verði
ekki rakinn til vanrækslu
hans.
Ef neytandi ætlar að bera
fyrir sig galla verður hann að
tilkynna seljanda það innan
sanngjarns frest eftir að hon-
um varð gallinn ljós. Neyt-
andi getur ekki borið fyrir sig
galla eftir að liðin eru 2 ár frá
því þjónustan fór fram, nema
seljandi hafi í samningi tekið
á sig ábyrgð vegna galla í
lengri tíma eða brotið gegn
góðum viðskiptaháttum eða á
annan hátt sýnt af sér vítavert
gáleysi.
Afhendingardráttur
á þjónustu
Seljanda ber að afhenda selda
þjónustu á þeim tíma sem
samið var um. Ef ekki hefur
verið samið um neinn afhend-
ingartíma skal seljandi þjón-
ustu skila af sér verkinu innan
sanngjarns frest frá því að
krafa um það kemur fram. Ef
drátturinn á að ljúka þjónust-
unni skiptir neytanda veru-
legu máli og seljanda er það
ljóst getur neytandi rift samn-
ingnum. Einnig getur neyt-
andi rift samningnum ef selj-
andi leysir hana ekki af hendi
innan umsamins frests eða
innan sanngjarns frests frá því
að krafa hefur komið fram um
afhendingu. Neytandi getur
svo ávallt krafist skaðabóta
fyrir tjón sem hann verður
fyrir vegna dráttar á að þjón-
ustu ljúki, nema seljandi sýni
fram á að drátturinn sé ekki af
hans völdum.
Verð á þjónustu
Ef ekki hefur verið samið um
verð fyrir keypta þjónustu
skal neytandi greiða það verð
sem telja má sanngjarnt með
hliðsjón af því hve vinnan er
mikil og hvers eðlis hún er.
NEYTENDABLAЮ - maí 2001