Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.2002, Síða 9

Neytendablaðið - 01.12.2002, Síða 9
Umhverfið Umhv vænni Umhverfismerkt dekk eru seld hér Fyrstu umhveifismerktu dekkin sem komu á markað voru sóluð sumardekk og hér á landi er hægt að fá slík dekk af gerðinni Green Diamond. í haust komu svo fyrstu Svans- merktu vetrardekkin á mark- að. Þetta eru Izen 7401-dekk frá kóreska dekkjaframleið- andanum Kumho, og eru þau einnig fáanleg hér. Kurnho- verksmiðjurnar hafa lengi lagl áherslu á umhverfismál og fengu vottað umhverfisstjórn- unarkerfi þegar árið 1996 (Iso 14001, sem er alþjóðlega við- urkennt kerfi). Sænsku Volvoverksmiðj- umar hafa sýnt þessu framtaki Kumho mikinn áhuga og farið þess á leit við dekkjaframleið- endur sína, þ.e. Pirelli, Nokia, Michelin, Goodyear og Continental/Gislaved, að þeir framleiði dekk sem standist kröfur Norræna umhverfis- merkisins. Þessari ósk fylgir það fyrirheit að slík dekk njóti markaðsforskots og forgangs hjá Volvoverksmiðjunum, en þær reka um 160 Volvo/ Renaultbúðir í Svíþjóð og hal'a um 10% hlutdeild á dekkjamarkaðnum þar. Einnig hefur heyrst að forsvarsmenn Saabverksmiðjanna séu í svipuðum hugleiðingum. Sænsk stjórnvöld hafa beitt sér fyrir banni við notkun tjölarómatískrar úrgangsoltu í dekk á Evrópska efnahags- svæðinu. Markmið þeirra er einsog hjá Norrænni umhverf- ismerkingu að dekk með þessa eitruðu úrgangsolíu hverfi af markaði. Eftir því sem fleiri bflaframleiðendur og almennir neytendur gera kröfu um umhverfisvæn dekk undir bíla sína fjölgar þeim dekkjaframleiðendum sem standa sig á þessu sviði. Þar með næði norræna umhverfis- merkið tilgangi sínum, sem er að örva umhverfisvæna fram- leiðslu og draga úr umhverf- isálagi. Þetta haust hefur verið fremur milt og vindasamt það sem af er en nokkrir undanfamir vet- ur hafa hins vegar einkennst af stillum og kulda. Við slíkar aðstæður nær ryk og önnur mengun að safnast upp í þétt- býli og síðasta vetur spannst töluverð umræða um mengun frá bílaumferð, enda hefur hún aukist verulega síðustu ár og nálgast ískyggilega þau mörk sem gefin eru upp í reglugerðum um rykmengun. Mest hefur þessi umræða snú- ist um notkun nagladekkja. Krabbameinsvaldandi efni í dekkjum Margir ökumenn treysta sér ekki út á götumar eftir að bera fer á hálku öðruvísi en á negldum dekkjum. Gatna- málayfirvöld kvarta hins veg- ar sáran yfir mikilli nagla- dekkjanotkun, enda fræsa naglarnir upp göturnar, sér- staklega þegar þær eru auðar mestallan veturinn eins og síðustu vetur. Talið er að um 15 þúsund tonn af malbiki losni árlega út í umhverfið af völdum bflaumferðar hér á landi. Umhverfisálag af völd- um dekkja takmarkast hins vegar ekki við slil þeirra á malbikinu. Malbikið slítur líka dekkjunum og af því hlýst önnur tegund mengunar. Slitflötur flestra dekkja er gerður úr gúmmíi sem inni- heldur umtalsvert magn svo- kallaðrar fjölarómatískrar olíu (PAH) sem er ekki annað en úrgangsolía frá olíuhreinsun- arstöðvum. Þessi olía er bæði krabbameinsvaldandi og þrá- virk (brotnar seint og illa nið- ur og safnast því upp í lífver- um). PAH-olían er ódýr, enda lítt fallin til annars brúks, og dekkjafrantleiðendur nota hana óspart til að mýkja gangsolíu í dekkin heldur efni sem koma að sama gagni en eru ekki eitruð og valda mun ntinna umhverfisálagi. Þau efni eru nokkru dýrari en úr- gangsolían, en í innkaups- verði olíunnar er hins vegar hvorki gert ráð fyrir kostnaði við heilsutjón né þann um- hverfisvanda sem þessi efni valda. Einnig taka reglurnar til rykmengunar, hávaða, við- náms og aksturseiginleika sem dekkjunum fylgja. gúmmíið, gera það þjálla og drýgja það. Við slit á hjól- börðunum losna örsmáar gúmmíagnir af slitfiötunum og úrgangsolían á þar með greiða leið út í umhverfið. Kröfur norræna umhverf- ismerkisins Umhverfisálag af völdum bíldekkja er verulegt og var því ákveðið að Norræn um- hverfisnterking (aðstandendur Svansins, norræna umhverfis- merkisins) útbyggi viðmiðun- arreglur fyrir umhverfismið- aða framleiðslu hjólbarða. Þær komu út í júní 1999. Þar með gafst framleiðendum tækifæri til að sýna á óyggj- andi máta að framleiðsla þeirra væri umhverfismiðuð. I reglunum er meðal annars gerð sú krafa að framleiðend- ur noti ekki hina eitruðu úr- w —f NEYTENDABLAÐIÐ - desember 2002 9

x

Neytendablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.