Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.2003, Síða 22

Neytendablaðið - 01.12.2003, Síða 22
Spurningar og svör varðandi bílaviðskipti Til eru ófáar sögur af bílaviðskiptum sem minna frekar á hrossakaup. Af þeim sökum gætir oft mikil óöryggis hjá neytendum í bifreiðakaupum og margir eru hræddir um að gera ekki góð kaup. Á hverju ári leitar fjöldi ncytcnda til Neytendasamtakanna eftir aðstoð vegna bifreiðakaupa. FÍB veitir félags- mönnum sínum sambærilega aðstoð. Hér á eftir verður gerð stuttlega grein fyrir hclstu álitamálum sem koma inn á borð Neytendasamtakanna. Kaup á nýrri bifreið Almennt er nokkuð öruggt að kaupa nýja bifreið enda eru líkur á bilun í nýjum bíl fremur litlar. Margir neytendur bera auk þess mikið traust til bifreiðaumboða og gerir það oft útslagið þegar nýr bíll verð- ur fyrir valinu. Hver er fresturinn til aÖ tilkynna um galla? Samkvæmt nýjum lögum um neytenda- kaup sem tóku gildi 1. júní 2003 er frest- ur til að tilkynna um galla á hlutum sem ætlaður er verulega langur líftími 5 ár frá því að kaup áttu sér stað. í eldri kaupa- lögum sem giltu fram til 1. júní 2003 var frestur til að tilkynna um galla 2 ár frá því að kaup áttu sér stað. Hvert á að leita ef galli kemur upp í bifreið? Samkvæmt lögum um neytenda- kaup ber kaupanda að snúa sér beint til seljanda eða til þess aðila sem með samningi við selj- anda hefur tekið að sér að annast úrbætur gagnvart kaupandanum. Kaupanda ber því skylda til að leita beint til seljanda og bera upp erindi sitt hvort sem það er ósk um nýja bifreið, afslátt eða viðgerð. Hvar á að framkvæma viðgerð veg- na galla? Ef framkvæma á viðgerð á bíln- um ber seljanda að vísa kaupandanum á löggilt bifreiðarverkstæði sem umboðið viðurkennir. Ástæðan er sú að ekki eru öll verkstæði með viðurkenndan búnað sem er nauðsynlegur til viðgerðar á við- komandi bifreiðartegund. Mikilvægt er því að kaupandi leiti fyrst til seljanda, annað getur leitt til réttindamissis. Hver greiðir kostnað vegna viðgerð- ar á galla? Kaupandi á ekki að greiða neinn kostnað vegna viðgerðar vegna galla hvorki flutningskostnað né viðgerðar- kostnað. Krefjist umboðið t.d. þess að bíll- inn verði fluttur á verkstæði sem er langt frá staðsetningu bifreiðarinnar á neytand- inn rétt á að fá greiddan allan kostnað vegna flutnings bílsins á viðgerðarstað. Þó verður tjónþoli að takmarka tjón sitt sem mest. Hér er þó rétt að geta þess að ef í Ijós kemur að bíllinn er ekki gallaður verður kaupandinn sjálfur að greiða bæði viðgerðar- og flutningskostnað. Hver er réttur neytanda til að fá nýjan bíl? Fátt er jafn ergilegt eins og að kaupa nýja og dýra bifreið sem reynist svo vera gölluð. Algengt er að kaupendur krefjist þess að fá afhentan nýjan bíl. Ný lög um neytendakaup gera ráð fyr- ir því að kaupandi geti valið á milli þess að krefja seljanda um afslátt, viðgerð á galla eða nýja afhendingu. Ný afhending á þó ekki við ef fyrir hendi er hindr- un sem seljandi ræður ekki við eða það hefur í för með sér ósanngjarnan kostnað fyrir seljanda. Ný afhending er því háð mati á atvikum hverju sinni. Við mat á því hvort kostnaður sé ósanngjarn skal leggja áherslu á verðmæti ógallaðrar bifreiðar, þýðingu gallans og hvort hægt sé að beita öðrum úrræðum án verulegs óhagræðis fyrir kaupandann. Réttur til nýrrar afhendingar er því ekki skilyrðis- laus. Hér er sérstaklega bent á að lög um neytendakaup eiga aðeins við um kaup á bifreiðum eftir 1. júní 2003. Bifreiðar sem keyptar voru fyrir 1. júní 2003 falla undir eldri kaupalög en í þeim lögum var réttur seljanda til úrbóta mun sterkari og réttur neytanda til nýrrar afhendingar veikari en í nýju neytendakaupalögunum. Hvaða rétt á kaupandi ef hann á ekki rétt á nýjum bíl? Ef bifreið reynist vera gölluð er kaupanda tryggður réttur til 22 NEYTENDABLAÐIÐ 4. TBL. 2003

x

Neytendablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.