Neytendablaðið - 01.03.2006, Page 18
14.6°®
Tilboðsvörur, auglýsingar og verðmerkingar
Auglýsingar, tilboö og verömerkingar
fyrirtækja eru oft tilefni kvartana.
Neytendablaöiö fékk starfsmenn Neyt-
endastofu til að svara nokkrum algengum
spurningum varðandi verömerkingar, aug-
lýsingar og tilboðsverð.
Tilboðsvaran uppseld
Stundum eru vörur auglýstar á tilboðsverði
en þegar komið er í verslunina kemur i Ijós
að tilboðsvaran eruppseld. Þetta getur verió
sama dag og auglýsingin birtist. Svo virðist
vera sem stundum séu einungis til örfá
eintök viðkomandi vöru. Eru engar reglur til
um þetta?
Svar:
Nei, engar reglur eru til um hversu mörg
eintök þurfa að vera til af vöru sem auglýst
er á tilboðsverði. Erfitt er að setja reglur
um ákveðinn fjölda eintaka á tilboði vegna
þess að um mjög mismunandi hluti getur
veriö að ræða. Þannig getur veriö erfitt að
skylda verslun til að hafa á tilboði mörg
eintök mjög dýrra hluta sem jafngilda
margra mánaða sölu. Það væri til mikilla
hagsbóta fyrir neytendur ef verslanir tækju
fram hversu mörg eintök væru á tilboði og
þannig forðað verslunum frá óánægðum
viðskiptavinum sem jafnvel hafa farið
um langan veg til að ná sér í vöru á góðu
tilboði. Rétt er þó að taka fram að einstaka
verslanir tiltaka hversu mörg eintök eru til á
tilboði og er það vel.
Tilboðsverð
Stundum eru vörur auglýstar á tilboðsverði
eða á útsölu án þess að upphaflegt verð
komi fram. Stundum sést jafnvel tilboðsverð
á glænýjum vörum svosem bókum fyrir jólin.
Þarfekki að sýna fram á að í rauninni sé um
tilboð að rœða?
Svar:
Þegar vörur eru auglýstar á útsölu, tilboöi
eða lækkuðu verði verður varan að hafa
verið seld á hærra verði áöur. Þannig
segir í lögum um eftirlit með óréttmætum
viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins
að eingöngu megi auglýsa lækkaö verð sé
um raunverulega verðlækkun að ræða. Þá
skuli koma skýrt fram með verðmerkingu
hvert upprunalegt verð vörunnar var. Þegar
nýjar jólabækur eru auglýstar á tilboði
miðast afslátturinn við leiðbeinandi verð
bókaútgefanda. Reglan er samt sem áður
sú að varan þarf að hafa verið seld á hærra
verði áður en hægt er að bjóða tilboð.
„Okeypis glaðningur"
Oft fylgja einhverjar „gjafir" með vörum.
Algengt er að sjá auglýst „fylgir ókeypis
með", fylgir frítt með" og þar fram eftir
götunum.
Eryfirhöfuð eitthvað til sem heitir „ókeypis"
og „gjafir" þegar keyptar eru vörur?
Erleyfilegt að auglýsa með þessum hœtti?
Svar:
Neytendastofa telur aö þaö sé villandi að
auglýsa vöru sem fría, ókeypis eða sem gjöf
þegar neytendur verða að greiða fyrir aðra
vöru til að fá „fríu vöruna". Slíkar auglýsingar
brjóta í bága við ákvæði laga um eftirlit með
óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi
markaðarins. Þessi skoðun Neytendastofu
byggist á því að á árinu 1993 kvað Hæsti-
réttur upp dóm í máli sem snerist um það
að samkeppnisráö hafði bannað fyrirtæki
að nota orðið „ókeypis" í auglýsingum.
Hæstiréttur taldi að hlutur væri ókeypis ef
hann væri látinn af hendi án endurgjalds
eða skuldbindingar. Kostnaður við „ókeypis”
vöruna væri innifalinn í því verði sem væri
greitt fyrir aðra vöru. Verið væri að gera
lítið úr kostnaðarþætti í þeim tilgangi að
hafa áhrif á eftirspurn eftir annarri vöru og
væri það villandi.
Ekki eru gerðar athugasemdir við að auglýst
sé að ein vara fylgi annarri.
Kassaverð hærra en hilluverð
Það kemur fyrir að verðmerkingar á hillu-
kanti eru ekki i samrœmi við kassaverð.
Hvaða rétt eiga neytendur þegar komið er á
kassann og í Ijós kemur að vara er dýrari en
verðmerkingar segja til um? Eiga neytendur
rétt á að fá vöruna á því verði sem hún er
verðmerkt á?
Svar:
Það er ekkert í lögum eða reglum sem
kveður á um rétt neytenda þegar verð í
afgreiðslukassa er hærra en í hillu. Hins
vegar er túlkun Neytendastofu sú að
verðmerking í hillu sé tilboð seljanda til
neytenda og eigi neytendur rétt á að fá
vöruna á því verði. Byggist þetta á því
að neytendur velja vöruna á grundvelli
verðmerkingarinnar en ekki á grundvelli
verðs í afgreiðslukassa enda hafa þeir engin
tök á því að sjá það verð fyrr en komið er að
því að greiða vöruna. í framkvæmd fylgja
verslanir þessu alla jafna.
Einstaka sinnum geta þó komið upp tilvik
þar sem um augljós mannleg mistök er að
ræða og sem dæmi má nefna að vara kosti
í raun 10.000 kr. en sé verðmerkt á 100 eða
1000 kr. í slíkum tilvikum ætti neytanda að
vera það Ijóst að um mistök sé að ræða.
Þaö eru sem betur fer ekki mörg dæmi um
slík mistök við verðmerkingar en þau geta
engu að síður valdið neytendum sárum von-
brigðum. Röng hillumerking má þó ekki
stafa af ásetningi.
Rangt verð í auglýsingabæklingi
Mikið er um að verslanir sendi aug-
lýsingabœklinga til neytenda. Oftast kemur
þar fram verð á einstökum vörum. Er verslun
ekki bundin afþví verði sem þarkemur fram?
Getur verslunin borið fyrir sig prentvillu,
jafnvel þegar enginn slíkur fyrirvari ergerður
i viðkomandi auglýsingabœklingi?
Svar:
Almenna reglan er sú aö verslun getur ekki
boriö fyrir sig prentvillu eða önnur mistök ef
neytendur geta ekki auðveldlega áttað sig
á því að verðið sé rangt. Þó getur verslun
fullyrt að verð sé rangt í auglýsingu ef það
er augljóst og neytendur vita eða hefðu
getað vitað að verðið væri rangt. Þá þarf
röng verðbirting að stafa af mannlegum
mistökum en ekki af ásetningi.
18 NEYTENDABLAÐIÐ1. TBL. 2006