Neytendablaðið - 01.03.2006, Blaðsíða 20
Utvarpslög brotin
Sjónvarpsstöðvum er óheimilt að senda út
dagskrárefni, þar á meðal auglýsingar, sem
gœti haft alvarleg skaðvœnleg áhrifá líkam-
legan, andlegan eða siðferðilegan þroska
barna, einkum og sér í lagi dagskrárefni sem
felur í sér klám eða tilefnislaust ofbeldi, á
þeim dagskrártima sem hœtta er á að börn
sjái viðkomandi efni.
Neytendasamtökin sendu útvarpsréttar-
nefnd erindi vegna sýningar á myndinni Ken
Park en myndin er alls ekki viö hæfi barna
en var þó sýnd á föstudagskvöldi kl. 20.30.
Ef fólk telur aö 14. gr. útvarpslaga sé brotin
er hægt er að senda erindi til Útvarpsréttar-
nefndar Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík eða
hringja í síma 545 9581 á milli kl. 11.00 og
Neytendasamtökin fá gjarnan ábend-
ingar um sjónvarpsefni sem á ekki erindi
til barna en er þó sýnt á þeim tíma þegar
börn sitja fyrir framan skjáinn. Þaö geta
verið auglýsingar, myndbrot úr myndum
eða þáttum, auglýsingar um tölvuleiki
eða jafnvel kvikmyndir og þættir í fullri
lengd sem fundinn er staður i dagskránni
snemma kvölds.
í útvarpslögum er með 14. gr. laganna
bannað að sýna sjónvarpsefni sem
getur haft skaðvænleg áhrif á þroska
barna á tímum sem hætta er á að
börn sjái sjónvarpsefnið. Greinin er
svohljóðandi:
12.00.
Foreldrar taka höndum saman
„Parents Jury" eða foreldradómstóllinn eru
áströlsk samtök foreldra sem berjast fyrir
ýmsum hagsmunamálum barna. Aströlsk
börn, rétt eins og börn í Bandaríkjunum
og Evrópu, eiga við aukið offituvandamál
að stríða. Foreldradómstóllinn berst sér-
staklega fyrir því að sett verði bann á
ruslfæðisauglýsingar sem er beint að börn-
um.
Samtökin stóðu einnig fyrir könnun í 24
verslunum í Ástralíu og var niðurstaðan
sú að 80% matvöruverslana stilla upp
sælgæti við kassann, og oftast í augnhæð
barna. Þessu mótmæla samtökin enda
eru foreldrar orðnir langþreyttir á því að
berjast við börnin á meðan beðið er við
afgreiðslukassann.
sjá meira um á www.parentsjury.org.au
Endurvinnslustöðvar Sorpu á 8
stöðum á höfuðborgar svæðinu
taka við flöskum og dósum til
flokkunar og endumýtingar.
Hugsaðu vel um heimili þitt.
Þú ert öðrum fyrirmynd.
VÍN’vBl'JÐ
www.vinbud.is