Foringinn - 01.02.1975, Page 3
FORINGINN
1. tbl. 1975.
Ötgefinn af:
BlS.
Samsetning:
Haraldur Bjarnason
Þorvaldur Bragason
Vélritun:
Sigrún Baldursdóttir
Allskonar aöstoð:
Guðbjartur Hannesson
Ljósmyndir:
Þórólfur Jónsson
Hönnun forsíðu:
Vignir Jóhannsson
Heimilisfang:
Pósthólf 831,Reykjavík
Prentun:
Prentiðn,
Löngufit 38,
Garöahreppi.
Ágæti leasari.
Hana nú, sagði hænan. Og enn
ainu sinni er Foringinn kominn
út , og að sjálfsögðu fer hann
stöðugt batnandi.
Við upphaf þessa árgangs, verð-
ur talsverð breyting á útgáfu-
formi Foringjans. Þetta ár er
áætlað að sex blöð komi ”út, og
jafnframt að allir foringjar og
dróttskátar í landinu fái blaðið
sent ókeypis. Síðastliðið ár
greiddu aðeins um 200 áskrifend-
ur áskriftargjaldið, en þetta
var aðeins lítið brot af áskrif-
endum blaðsins. Þessvegna var
það að bandalagsstjórnin tók
fyrrgreinda ákvörðun um breyt-
ingu á útgáfuforminu. Ákveðnir
hafa verið útgáfudagar blaðs-
ins og eru þeir þessir: 1 tbl.
13 febr. 2 tbl. 13 mars, 3 tbl.
17 apríl, 4.tbl. 5.júní, 5.tbl.
20.okt. og 6.tbl. 20.nóv.
En til þess að þetta geti tek-
ist verður allt efni í blaðið
að berast í tæka tíð, þ.e. um
hálfum mánuði fyrir útgáfudag.
Bréf með öllum þessum upplýsing-
um hafa þegar verið send starfs-
ráðum BÍS og fleiri aðilum.
Nú, samsetning er að mestu í
höndum þeirra sömu og sáu um
síðasta árgang, sem eins og all-
ir vita,var einstaklega góður.
Og að lokum. Félagsforingjar
drífið ykkur nú í að senda skrá
yfir alla foringja og drótt-
skáta í félögum ykkar, svo
viö getum sent þeim Foringjann.
Samsetningin.
3