Foringinn - 01.02.1975, Side 4
SAMSTARF OG SAMFRÆÐSLA í SKATA-
STARFI.
Annaö höfuömálefni ráöstefn-
unnar var aukin samvinna drengja-
skáta og kvenskáta í löndum
Evrópu.
Á síðustu árum hafa mörg skáta-
bandalög tekiö upp mismunandi
nána samvinnu. Samsvarandi
drengja- og kvenskátabandalög
hafa sameinast og annaö "hvort
tekiö upp stjórnunarlegt sam-
starf, sem nefnt hefur verið co-
operation eöa sameinaö skátastarf
meÖ nýjum aöferöum, svonefnt co-
education eöa samfræöslu.
Co-education. - Samfræðsla.
Carl A. Lindstén haföi tekið
saman plagg um samfræöslu sem
starfsaöferö, og fara hér á
eftir nokkrir punktar úr því. Þar
segir, aö hin nýja starfsaðferð
miöi fremur aö þjálfun í mannleg-
um samskiptum en leikni í vinnu-
brögöum svo sem áöur tíökaöist.
UppeldisaðferÖir eru mjög
háöar gerð þess þjóðfélags, sem
starfaö er í. Víöa hefur komist
átöluvert jafnræöi meö kynjunum
og karlar og konur vinna hlið við
hliö í ýmsum störfum. Æskulýðs-
hreyfing sem telur sig undirbúa
æskufólk undir starf í þjóöfél-
aginu getur ekki takmarkað sig
viö eitt kyn.
Samfræösla í skátastarfi er
þvi aðeins hentug aöferð, aö
viötekin séu eftirfarandi markmiö
í þjóðfélaginu:
- Útilokun allrar mismununar
vegna kynferöis
- Heföbundin hlutverkaskipting
kynjanna sé lögö niöur
- I uppeldi sé lögö áhersla á aö
þroska hæfileika til mannlegra
samskipta, fremur en að þroska
kvenlega eöa karlmannlega eig-
inleika.
4
Á hinn bóginn er samfræðsla
vart heppileg aðferö í skátastarfi
þar sem jafnrétti kynjanna er
ekki viðurkennt markmið, og pilt-
ar og stúlkur eru alin upp til
ólíkra hlutverka þegar á fullorö-
insár kemur. Þar er þaö vart á
færi skátahreyfingarinnar aö
breyta þeim þjóðfélagsháttum.
Samkvæmt aöferð samfræðsl-
unnar er lögö áhersla á aö dreng-
ir og stúlkur læri að vinna sam-
an sem einstaklingar en ekki
sem fulltrúar kynja sinna. Því
er mikilvægt, aö samvinnan sé
hversdagslegur hlutur, en ekki
eingöngu til hátíöabrigöa, svo
sem á skemmtunum og samkomum,
þar sem einmitt er hætta á, að
samskipti falli í form viðtek-
inna kynhlutverka.
Forincr j aþ jálfun .
Þótt þjálfun foringja þyrfti
í sjálfu sér ekki aö breytast
svo mjög frá því sem var fyrir
eitt kvn, þarf hún aö sjálfsögöu
aö vera sameiginleg op vekja
þyrfti athygli foringja á ýms-
um báttum, sem eiga sér rætur
í hefðbundinni þjóöfélagslegri
afstööu svo sem:
- 1 hinu hefðbundna þjóöfélagi
er hlutverk konunnar oft
fremur aö vera stoö og stytta
manns síns en aö hafa sjálf
frumkvæði. Sérstaklega þarf
aö gæta þess aö kenna stúlk-
um aö taka frumkvæði og vinna
sjálfstætt.
- Varast þarf aö falla í hefð-
bundna hlutverkaskiptingu til
dæmis í útilepum, aö stúlkurn-
ar eldi matinn og drengirnir
höggvi viöinn, þar sem miklu
líklegra er aö drengirnir þurfi
þjálfunar viö í eldamennsku,
og stúlkurnar í viðarhöggi.
- Þótt pörun sé eðlilegur hlutur
í hópi dróttskáta, vill slíkt