Foringinn - 01.04.1975, Qupperneq 5

Foringinn - 01.04.1975, Qupperneq 5
Sem sagt S.S.R. var aðeins samræmingar aðili. N6g um þetta aö sinni. Til að auka fjölbreytnina á þessum siðum sem D.S.Ráö hefur til ráðstöfunar, förum við þess á leit við D.S.sveitirnar aö þœr komi með greinar og myndir úr starfinu. Segið þið nú okkur hinum frá einhverju skemmtilegu sem þið hafið verið að gera i næsta blaði. Greinin þarf ekki að vera löng. Og að lokum, gætið þess að hafa starfsáætlunina fjölbreytta og passlega stóra næst þegar þiö geriö áætlun. Og gleymið ekki aö nota reynslu liðinna starfstima- bila. Að starfa án þess að gera áætlun verður alltaf laust í reipunum . Starf sem laust er i reipunum getur aldrei oröið gott starf. Starf sem aldrei getur orðið gott er ekki Dróttskátastarf. Drótt- skátastarf er starf sem skipulagt er fram i timann. Og auðvitað muna allir eftir DAGBOKINNI. ERLENDIS FRÁ Svo að við höldum olikur við spjallið frá siðasta blaði um skátastarf meðal fatlaðra, þá rakst ég á grein i dönsku skátablaði fyrir dróttskáta og foringja kallað "Broen". Þar skrifar fatlaður skáti um reynslu sina. Þessi skáti, sem kallar sig sprellikarlinn frá Illeröd, er spaptisk-fatlaður, þ.e. hann hef- ur ekki góöa stjórn á hreyfingum sinum þ.á.m. gangi og tali. Hann segir frá þvi að undanfarin 5 ár hafi hann feröast um Danmörku með það fyrir augum aö fræða börn og unglinga um það hvernig sé að vera fatlaður. Börnin hafa komið mjög mismunandi fram við hann, þau yngri jafnve.1 oröið hrædd þegar hann kom "sprellandi". Einnig héldu nokkur þau yngstu aö hann væri bara að leika sér. I greininni segir hann einnig frá útilegum, sem skipulagðar eru af bandalögunum þarna i sameiningu. I þessura útilegum eru heilbrigðir og fatlaðir skátar saman. Reynt er með þessu móti að fá hinn almenna skáta til að skilja að það sé i raun og veru ekkert athugavert við að hafa fatlaðan skáta með i flokknum eða sveitinni. I norska blaðinu "Speideren" rakst ég á grein með fyrirsögninni "Fisk fra Island, en gave til Nordjamb 75". Þar segir að Island ætlí að gefa eina fiskmáltið á Nordjamb i sumar. Hatarkostnaðurinn sé him- inhá upphæð og þess vegna sé gott að vita af þvi að ein máltiðin komi frá Islandi. Annars kemur margt athyglisvert fram i þessari grein. M.a. það að búið er að biðja um 12.600 klósettrúllur, 9000 metra af vatnsrörum og jipum og 4600 metra af striga. Radioskátar þurfa amk. 400 rafhlöður og borð. Einnig er buið að biðja um 1050 "tömmerstokk- er", svo eitthvað á að smiða fyrir mótið. Annars er tömmerstokker ekki okkar gömlu og góðu tommu- stokltar, heldur bara venjulegcir spýtur, en þær eiga lika að vera af lengdinni 5 metrar. I sama blaði er mikið fjallaö um náttúruvernd og gróður. Hafiö þið eitthvað á starfsáætl- un ykkar sem stuðlar aö þessu? Þið vitið að margt smátt gerir eitt stórt. 5

x

Foringinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foringinn
https://timarit.is/publication/905

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.