Foringinn - 01.04.1975, Blaðsíða 15

Foringinn - 01.04.1975, Blaðsíða 15
komst inn i heimsmynd margra skáta og fjölskyldna Jeirra. Þannig verður einnig um Korður- lönd. Skátar úr öllum heimi kynnast líorðurlöndum á allt annan hátt en skólanám leyfir. Þannig verður líka um fjölskyldur þeirra. Sumar fara með í ferða- lagið til Norðurlanda, aðrar aö- eins i huganum eftir lýsingu skátanna i oröum og myndum. Þannig komast Koröurlöndin, og þá Island lika, inn i heimsmynd þúsunda eða tugþúsunda um allan heim. Skilningur ráðamanna á mikilvægi Jamboree er mikill. Þjóðhöfðingj- ar og forráðamenn þjóða koma i heirasókn. Norðurlandaráð styður mótið, ekki aðeins i orðum, heldur lika fjárhagslega. Það skilur rnikilvægi norrænnar sam- vinnu eins og þeirrar, sem er um undirbúning þessa móts. Það er að sjálfsögðu erfitt að starfa sarnan með fólki frá 4 öðrum þjóðlöndum að undirbúningi móts sem þessa, vegna fjarlægðarinnar milli fólksins, sem þarf að hittast, ráögast og ákveða um framkvemd móts i öðru landi. Verkefnið er jafnframt þvi skemmtilegra að glima við þeim mun flóknara sem það er. Kannske komu upp efasemdir um að taliast mundi að halda mót undir svona kringumstæðum. Efinn er horfinn núna. Nú vita allir, að mótið .verður haldið eins og ráðgert var. Þátttakan heföi orðið mun meiri, ef ekki hefðu verið sett efri mörk um þátttöku einstakra þjóða. Dagskrárundirbúningi mið- ar vel áfram, tæknileg vandamál verða sífellt færri og ýmis jaðarmálefni eru leyst eða leysast á þann hátt sem á aö vera. Mesta vandamálið er senni- D.ega að útvega nægilega marga gestgjafa til að veita viðtöku erlendum skátum, sem gjarnan vilja njóta gestrisni skáta- fjölskyldna á einhverju Ilorður- landanna um nokkurra daga skeið fyrir eða eftir mót. Til þessa hefur Jamboree aðeins verið mót fyrir drengi og pilta, en hér, eins og viða annars staðar, er fyrirsjáanleg breyting i framtiö- inni. I starfsliði mótsins eru fjölmargar stúlkur, i fyrsta sinn i sögunni. Þess veröur þvi væntanlega ekki langt að biða, að Jamboree veröur opnað stúlkum líka til almennrar þátttökú. FIMM FINGUR - EIN HÖND v_________________________________V ALLTAF FJÖLGAR Islenski hópurinn i vinnubúðum (seniorbúðum) Nordjamb'75 sttíík- ar alltaf, og er nú orðinn 85 skátar. Biðlistinn er þvi orðinn stuttur og vonandi komast nær allir n.eð, sem sóttu um vinnu- búðirnar. Nýlega er byrjaö stutt norsku- námskeið fyrir þá úr hópnum, sem vildu liðka málbeinið og er kennari Sigriður Júliusdóttir. 15

x

Foringinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foringinn
https://timarit.is/publication/905

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.