Foringinn - 01.04.1975, Qupperneq 25
Þá var myndaöur hópur til
stjórnar félaginu:
Adolf Adolfsson sem félags-
foringi, Guömundur Guöjónsson,
Sigríöur Harðardóttir, Jónas
Már Ragnarsson og Hólmfríöur
Benediktsdóttir.
I heild má segja aö skátastarfið
á öllum þeim stööum sem heimsótt-
ir voru í ferðinni hafi gengið
vel.
A Akureyri hafði samstarf félag-
anna eitthvað gengið illa eftir
landsmótiö en það haföi nú lagast
aö mestu.
A Dalvík er stór hópur sem stend-
ur að starfinu og ætti ]?ví að
geta verið um mjög gott starf að
ræöa. Ekki er aö efa að félaginu
ætti aö vera pað mikill styrkur
að fá húsnæði sitt alveg út af
fyrir sig, þó paö hafi ýmsa fjár-
hagslega örðugleika í för með
sér. Vonandi er að bæjarfélagið
sjái sóma sinn i þvi að styðja
rausnarlega stærstu æskulýðs-
starfsemina i bænum.
A Olafsfiröi er sterkur kjarni
stráka sem hafa hlotið góöa
reynslu og hafa dýrmætan áhuga
á starfinu. Félagið skortir
tilfinnanlega húsnæði út af
fyrir sig, en aðstaðan i skól-
anum er að visu góð og fúslega
veitt af fél.for. Birni Stefáns-
syni.
Ekki er að efa að gaman væri
fyrir þá stráka sem nú eru i
starfinu að vinna við húsbyggingu
eða húsnæðislagfæringar og vist
er að langt verður þangað til
svo álitlegur hópur verður til-
búinn til starfsins.
I Hrísey hafa nokkrir krakkar
alltaf haldiö fundi frá þvi
skátastarf var kynnt i kirkjunni
sl.vetur er ds. frá Akureyri
voru þar i heimsókn. Sr. Kári
Valsson hefur sýnt málinu mikinn
áhuga og lánað herbergi til
sérstakra afnota fyrir starfið.
Stjórnar hann þeim krökkum sem
við þetta fást.
Nú eru nálega 14 starfandi í
Hrísey i tveimur flokkum, en
von á að þeir verði nokkru
fleiri nú eftir að Hriseyingar
hafa sótt sitt fyrsta flokksfor-
ingjanámskeið.
A Húsavik hefur starfiö legið að
mestu niðri 1 vetur og aðeins
starfað mjög litillega þeir 20
strákar sem hafa verið með frá
þvi Andrés Þórarinsson endur-
reisti félagið fyrir nokkrum
árum. Aður en ég kom hafði þó
verið sent bréf i 12 ára, 1. og
2. bekk skólanna og fólki boðið
að skrá sig i félagið
Nálega 80 skráðu sig og eru nú
komnir i flokka og sveitir und-
ir stjórn strákanna sem lengst
hafa verið og eru i 2. og 3-
bekk.
Félagið hefur fengið til afnota
húsiö "Gömlu Húsavík", sem er
gamall prestbústaður, en mjög
illa farið burstahús, sem þó má
mjög vel gera upp og gera að
skemmtilegu skátahúsi.
Hefur bærinn einnig lofað að
kosta helstu lagfæringar og
greiða efni handa skátunum við
innréttingar. Er þar mikið
óunnið verk en skemmtilegt og
ætti það að ganga greiðlega með
þvi fólki sem þarna er. Þá
stendur alltaf til að lagfæra
skála félagsins en þaö fórst
fyrir s.l. sumar. Er vonandi að
nú takist þaö. Adolf fékk nú i
fyrsta skipti með sér fólk i
skátastarfið og er vonandi að
þaö breyti nokkru.
FLOKKSFORINGJAFERD Á ÓLAFSFIRDI.
25