Foringinn - 01.10.1975, Side 9

Foringinn - 01.10.1975, Side 9
inu nauðsynlega festu og viðurkenningu í samfélaginu. I um 30 ár var Tryggvi í forsvari fyrir Skátafélagi Akureyrar og hafa engir, mér vitanlega, gegnt félags- foringjastarfi jafn lengi, í samfelldu starfi. Það eitt er afrek út af fyrir sig. En ef við tökum einnig tillit til þess, að sennilega hefur starf félagsins sjaldan eða aldrei verið meðmeiri blóma og krafti, en síðustu ár Tryggva sem félagsforingja, þá sýnir það ef til vill betur en flest annað, hversu síungur hann var í starfi og vakandi fyrir öllu því sem gæti aukið og bætt starfið. Þó að starfsvettvangur Tryggva hafi fyrst og fremst verið á Akureyri, þá lét hann málefni skáta á öllu landinu mikið til sín taka, ekki síst foringjaþjálfun og skátamót, þar sem hann gat miðlað öðrum skátaforingjum af sinni miklu reynslu og þekkingu. Um leið og skátar um allt land standa í þakkarskuld við Tryggva fyrir hans mikla starf og traustu leiðsögn til hinsta dags, þá getum við huggað okkur við það, að orð hans munu stöðugt hljóma meðal okkar í söngtextum hans og minna okkur á óbreytan- legt gildi þeirrar hugsjónar sem skáta- hreyfingin byggir starf sitt á. Um leið og við sendum fjölskyldu og ást- vinum Tryggva dýpstu samúðarkveðjur, þá vitum við, að það er öllum mikil uppörvun, að andi hans,"skátaandinn", mun stöðugt fylgja okkur. Með skátakveðju, Ingólfur Ármannsson SKYRSLA S.S.R. Blaöinu hefur borist rit, sem ber heitið: „Skýrsla um skátastarf í Reykjavík 1974 - 1975". Viö lesum þar, aö í Reykjavík eru starfandi 10 skátafélög. Félagar um sl. áramót voru 2149. Fjölg- un skáta er vart teljandi í Reykjavík ef tekið er tillit til fólksfjölgunar þar. Taliö er aö húsnæöisskortur sé ein helsta orsök þess. Skátasambandið á fjóra útilegu- skála. Þá er í skýrslunni sagt frá starfsemi Hjálparsveitarinn- ar, en í sveitinni starfa um 60 félagar, fyrir utan aukafélaga, þeirra 1 meðal eru 10 nýliðar. Starfsemi sveitarinnar er mjög fjölþætt aö venju. Skýrsla þessi gefur gott yfirlit yfir skátastarfið 1 Reykjavík 1974 - 1975. 9

x

Foringinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foringinn
https://timarit.is/publication/905

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.