Foringinn - 01.10.1975, Síða 9
inu nauðsynlega festu og viðurkenningu
í samfélaginu. I um 30 ár var Tryggvi í
forsvari fyrir Skátafélagi Akureyrar og
hafa engir, mér vitanlega, gegnt félags-
foringjastarfi jafn lengi, í samfelldu
starfi. Það eitt er afrek út af fyrir
sig. En ef við tökum einnig tillit til
þess, að sennilega hefur starf félagsins
sjaldan eða aldrei verið meðmeiri blóma
og krafti, en síðustu ár Tryggva sem
félagsforingja, þá sýnir það ef til vill
betur en flest annað, hversu síungur hann
var í starfi og vakandi fyrir öllu því
sem gæti aukið og bætt starfið.
Þó að starfsvettvangur Tryggva hafi fyrst
og fremst verið á Akureyri, þá lét hann
málefni skáta á öllu landinu mikið til
sín taka, ekki síst foringjaþjálfun og
skátamót, þar sem hann gat miðlað öðrum
skátaforingjum af sinni miklu reynslu og
þekkingu.
Um leið og skátar um allt land standa í
þakkarskuld við Tryggva fyrir hans mikla
starf og traustu leiðsögn til hinsta dags,
þá getum við huggað okkur við það, að orð
hans munu stöðugt hljóma meðal okkar í
söngtextum hans og minna okkur á óbreytan-
legt gildi þeirrar hugsjónar sem skáta-
hreyfingin byggir starf sitt á.
Um leið og við sendum fjölskyldu og ást-
vinum Tryggva dýpstu samúðarkveðjur, þá
vitum við, að það er öllum mikil uppörvun,
að andi hans,"skátaandinn", mun stöðugt
fylgja okkur.
Með skátakveðju,
Ingólfur Ármannsson
SKYRSLA S.S.R.
Blaöinu hefur borist rit, sem ber
heitið: „Skýrsla um skátastarf
í Reykjavík 1974 - 1975".
Viö lesum þar, aö í Reykjavík eru
starfandi 10 skátafélög. Félagar
um sl. áramót voru 2149. Fjölg-
un skáta er vart teljandi í
Reykjavík ef tekið er tillit til
fólksfjölgunar þar. Taliö er aö
húsnæöisskortur sé ein helsta
orsök þess.
Skátasambandið á fjóra útilegu-
skála. Þá er í skýrslunni sagt
frá starfsemi Hjálparsveitarinn-
ar, en í sveitinni starfa um 60
félagar, fyrir utan aukafélaga,
þeirra 1 meðal eru 10 nýliðar.
Starfsemi sveitarinnar er mjög
fjölþætt aö venju.
Skýrsla þessi gefur gott yfirlit
yfir skátastarfið 1 Reykjavík
1974 - 1975.
9